Unnið að mati á tilnefningu Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO

Chris Wood, fulltrúi Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN), er nú staddur hér á landi vegna tilnefningar Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO. IUCN gegna því hlutverki að leggja mat á umsóknir og verndun náttúruminja sem tilnefndar eru á heimsminjaskrána. Chris Wood fór til Surtseyjar í gær í fylgd fulltrúa umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Frá Surtsey var […]

Hermann Hreiðars og Gunnar Heiðar valdir í landsliðið

Eyjamennirnir Hermann Hreiðarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson voru í dag valdir í landsliðshóp Eyjólfs Sverrissonar fyrir vináttulandsleik á Laugardalsvelli miðvikudaginn 22.ágúst. Hermann er byrjaður að leika með Portsmoth og spilaði hann sinn fyrsta leik í enska boltanum um síðustu helgi og lagði Hermann upp annað mark sinna manna sem gerðu 2-2 jafntefli við Derby.Gunnar Heiðar […]

Flóahreppur selur íbúðarhús

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti að selja íbúðarhús við Þingborg þeim Hafsteini Hafliðasyni og Iðunni Óskarsdóttur, sem hafa haft þar búsetu undanfarin ár. (meira…)

Fimm skip til Eyja á rúmu ári

Uppbygging skipaflota Vestmannaeyinga fyrir milljarða króna stendur nú sem hæst. Í gærkvöldi bættist nýtt skip Bergey VE 544 við í flotann Bergey er fjórða skipið sem bætist við Eyjaflotann á rúmu ári og er að minnsta kosti eitt skip enn væntanlegt fljótlega. Það er útgerðarfyrirtækið Bergur Huginn í eigu Magnúsar Kristinssonar sem kaupir skipið hingað […]

MK og talan 44

„Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, fagnaði ásamt mörgum öðrum komu nýs togara til Eyja í gær. Lagði hann áherslu á að togarinn myndi leggjast að bryggju klukkan 18.44. Magnús hefur nefnilega lýst því yfir að talan 44 hafi fært honum og fjölskyldu hans gæfu,“ segir í Fréttablaðinu í dag. (meira…)

Stórskipahöfn í �?orlákshöfn ræðst af atvinnuuppbyggingu

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, segir við RÚV að gerð stórskipahafnar í Þorlákshöfn ráðast af atvinnuuppbyggingu þar. Gerð Bakkafjöruhafnar sé önnur framkvæmd og varði samgöngur við Vestmannaeyjar. Hann kveðst treysta sérfræðingum Siglingastofnunar til að meta öryggi Bakkafjöruhafnar. (meira…)

Samgöngur við Eyjar

Í júní á síðasta ári skilaði starfshópur þáverandi samgönguráðherra skýrslu um samgöngur til Vestmannaeyja. Starfshópurinn gerði að tillögu sinni að skoðuð yrði nánar sú lausn að byggja ferjuhöfn í Bakkafjöru. Starfshópnum var meðal annars falið að gera úttekt á möguleikanum á því að gera jarðgöng til Vestmannaeyja. Hópurinn komst að þessari niðurstöðu varðandi jarðgöng:Raunhæfar kostnaðartölur, […]

Topp Þjóðhátíð

Nú er akkúrat vika liðin síðan ég lá upp í rúmi, á mánudagseftir-miðdegi, sofandi úr mér þynnkuna eftir hreint stórkostlega Þjóðhátíð. Þjóðhátíðin 2007 fer í bækurnar sem ein sú albesta; fer inn á topp 3 listann með hátíðunum 1998 og 2004, en ég geri ekki upp á milli þeirra. Það er bara ekkert út á […]

Stórskipahöfn ræðst af atvinnuuppbyggingu

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, segir gerð stórskipahafnar í Þorlákshöfn ráðast af atvinnuuppbyggingu þar. Gerð Bakkafjöruhafnar sé önnur framkvæmd og varði samgöngur við Vestmannaeyjar. Hann kveðst treysta sérfræðingum Siglingastofnunar til að meta öryggi Bakkafjöruhafnar Bæjarstjórnin í Ölfusi hefur skrifað forsætisráðherra bréf, með áskorun á ríkisstjórnina að stækka höfnina í Þorlákshöfn þannig að […]

Mikill fjöldi tók á móti Bergey VE

Bergey VE 544, nýtt skip Bergs-Hugins ehf. í Vestmannaeyjum kom til heimahafnar um kvöldmatarleytið. Bergey er smíðuð í Póllandi og er systurskip Vestmannaeyjar VE 444 sem útgerðin fékk afhenta fyrr á þessu ári. (meira…)

Banaslys í �?lfusi

Karlmaður á fimmtugsaldri lést í bílslysi við Grímslæk í Ölfusi á sjöunda tímanum í kvöld. Maðurinn kastaðist út úr bifreið sinni eftir að hún fór út af veginum og valt nokkrar veltur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann var einn á ferð. (meira…)

Nýtt skip í flota eyjamanna

Bergey VE 544 kom til heimahafnar í dag eftir siglingu frá Póllandi þar sem skipið var smíðað fyrir útgerðarfyrirtækið Bergur Huginn ehf. Fyrr á þessu ári fékk Bergur Huginn Vestmannaey VE 444 og í lok þessa árs kemur nýr Dala-Rafn frá sömu skipastöð í Póllandi. Fjöldi gesta fylgdist komu Bergeyjar VE til Vestmannaey sem sigldi inn í Vestmannaeyjahöfn […]

Ian Jeffs leikmaður 15. umferðar að mati Fótbolta.net

Created by PhotoWatermark Professional

Ian Jeffs átti stórleik á miðjunni hjá ÍBV þegar að liðið sigraði Stjörnuna 4-2 í fyrstu deildinni á föstudaginn. Jeffs skoraði meðal annars tvívegis í leiknum og fyrir góða frammistöðu hefur hann hlotið nafnbótina leikmaður 15.umferðar á Fótbolta.net. Ian Jeffs: Ian Jeffs er 25 ára gamall Englendingur sem gekk í raðir ÍBV frá Crewe Alexandra […]

Toyota styrkir handboltann hjá ÍBV

Magnús Kristinsson útgerðarmaður og eigandi Toyota umboðsins á Íslandi og Jóhann Pétursson formaður ÍBV Íþróttafélags undirituðu í dag styrktarsamning milli handknattleiksdeildar ÍBV og Toyota á Íslandi. Samningurinn er til þriggja ára. Eins og kunnugt er er einnig í gildi samningur milli Toyota og knattspyrnudeildar ÍBV. Þetta mun vera í fyrsta skipti, sem mfl. félagsins bæði […]

Ian Jeffs leikmaður 15. umferðar að mati Fótbolta.net

Ian Jeffs átti stórleik á miðjunni hjá ÍBV þegar að liðið sigraði Stjörnuna 4-2 í fyrstu deildinni á föstudaginn. Jeffs skoraði meðal annars tvívegis í leiknum og fyrir góða frammistöðu hefur hann hlotið nafnbótina leikmaður 15.umferðar á Fótbolta.net. (meira…)

Toyota styrkir handboltann hjá ÍBV

Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og eigandi Toyota á Íslandi, skrifaði í dag, klukkan 15.44, undir styrktarsamning fyrir hönd Toyota ásamt Jóhanni Péturssyni, formanni ÍBV. Samningurinn er fyrir handknattleiksdeild félagsins en fyrr á þessu ári var skrifað undir svipaðan samning fyrir knattspyrnudeild ÍBV. Samningurinn er til þriggja ára en við undirritunina kom fram í máli Jóhanns að […]

Eldur í rusli en ekki sumarbústað

Tilynnt var um reyk sem leggði upp frá sumarbústaðabyggð í Klausturhólum í Grímsnesi um kl. 11 í gærdag. Slökkvi- sjúkra- og lögreglulið fór á vettvang þar sem búist var við að eldur væri laus í sumarbústað. (meira…)

Tvisvar tilkynnt um skemmdir á eignum

Það var öllu rólegra hjá lögreglunni í vikunni sem leið en vikunni á undan enda stóð þá þjóðhátíð sem hæst og mikill fjöldi fólks í bænum. Það var hins vegar öllu færra í bænum í vikunni sem leið enda hefð fyrir því að Eyjamenn fari í frí á þessum árstíma. Þrátt fyrir það hafði lögreglan […]

Segir hann sjálfum sér samkvæman í rugli sínu

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, er heldur óhress með Sigmund teiknara Morgunblaðsins. Segir hann Sigmund feta í fótspor rugludallanna á visir.is með mynd sinni í sunnudagsblaðinu. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu Björns á heimasíðu hans, bjorn.is á laugardaginn.Pistill Björns: (meira…)

Grunur um þýfi og fíkniefni

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit á Eyrarbakka og Stokkseyri , einu húsi á hvorum stað. Lögregla hafði grun um að á þessum stöðum væri verið að hýsa þýfi og að jafnframt væru þar hugsanlega fíkniefni. Aðilar þessara húsa tengdust. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.