Grunur er um íkveikju sl. nótt

Eldur kom upp í bílskúr við fasteignasöluna Bakka við Sigtún á Selfossi um tvöleytið í nótt. Bílskúrinn er nýbyggður og ekki fullkláraður. Grunur er um íkveikju af mannavöldum. (meira…)
Trikot með tvö lög á myspace.com
Tríkot er hljómsveit frá Vestmannaeyjum og hefur verið starfandi í nokkur ár. Þeir hafa verið að spilað á allskyns gleðum, blótum, tíðum og pöbbum út um allar trissur. Mest hefur þó verið að gera á heimavelli. Hljómsveitin er með mjög fjölbreytt lagaval, allt frá gömlu dönsunum að þungarokki. Trikot er með tvo lög á myspace […]
Hrósið fær …

Í fyrsta lagi á hann skilið hrós fyrir að höggva á þann hnút sem jarðgangnamálið var komið í. Ekki það að ég sé ekki fylgjandi jarðgöngum, það var auðvitað kostur númer eitt en á meðan endalausar rannsóknir og misvísandi upplýsingar koma frá hinum og þessum vísindamönnunum um kostnað og í raun hvort gerandi séu göng […]
Ferjusiglingar um Bakka hættulegar

Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi, segir hættulegt að stunda fólksflutninga um Bakkafjöru vegna grynninga þar. Hann telur að kosta þurfi tvöfalt meira fé til hafnarframkvæmdanna en gert er ráð fyrir í samgönguáætlun. Segir hann í samtali við RÚV að Kostnaðurinn verði um tíu miljarðar króna. (meira…)
Grímur kokkur sló í gegn á Fiskideginum mikla

Grímur kokkur mætti með sitt fólk á Fiskidaginn mikla á Dalvík sem fór fram á laugardag og kynnti vörur sínar. Óhætt er að segja að vörur Gríms hafi slegið í gegn enda voru viðbrögð einstaklega góð og samkvæmt upplýsingum að norðan var plokkfiskurinn lofsunginn mikið og víða um svæðið, enda eðalvara. (meira…)
Huginn VE á tilraunaveiðum á makríl

Uppsjávarskipið Huginn VE frá Vestmannaeyjum hélt í síðustu viku á tilraunaveiðar á makríl við sunnanvert landið og eru sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun með í för. Ætlunin er að kanna hvort makríl sé þar að finna í einhverju verulegu magni. Útgerð Hugins átti frumkvæði að leiðangrinum. Frá þessu er skýrt í nýjustu Fiskifréttum. Óvenjumikið af makríl hefur […]
Bjargað af þaki bíls í Gilsá

Björgunarsveitin Dagrenning Hvolsvelli var kölluð út rétt fyrir kl 20:00 í gærkvöldi vegna bílstjóra sem hafði lent í hrakningum þegar bíll hans flaut upp og barst niður með Gilsá um nokkra vegalengd. Manninum var bjargað af þaki bílsins og er hann heill á húfi, nú er unnið að því að ná bílnum á þurrt. (meira…)
Eyjamenn hafna stórskipahöfn í �?orlákshöfn

Fráleitt er að skipta út hugmynd um ferjusiglingar til Bakkafjöru fyrir stórskipahöfn í Þorlákshöfn. Þetta hefur RÚV eftir bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum. Segir hann málið snúast um samgöngur milli lands og Eyja en ekki atvinnuuppbyggingu í Ölfusi. (meira…)
Ferjusiglingar um Bakka hættulegar

Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi, segir hættulegt að stunda fólksflutninga um Bakkafjöru vegna grynninga þar. Hann telur að kosta þurfi tvöfalt meira fé til hafnarframkvæmdanna en gert er ráð fyrir í samgönguáætlun. Kostnaðurinn verði um tíu miljarðar króna. Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir 5,6 miljarða króna fjárveitingu til byggingar nýrrar ferju, […]
�?llum boðið um borð að skoða skipið

Veðurguðirnir ætla að heilsa nýju skipi í björtu og fallegu veðri því ekki er annað að sjá en að Vestmannaeyjar muni skarta sínu fegursta þegar Bergey VE 544 siglir inn í höfnina klukkan 18.44 í kvöld. (meira…)
Furðufata- og búningadagur í dag

Í dag, mánudaginn 13. ágúst, verður búningadagur á gæsluvellinum Strönd. Starfsfólk og krakkar á aldrinum tveggja til sex ára eru hvött til að mæta í furðufötum. (meira…)
Eyjapeyjinnn Birgir Stefánsson situr fyrir svörum

Eyjar.net fór á stúfanna og heyrði í nokkrum vel kunnum Eyjamönnum varðandi hvað væri hægt að gera við þessa 3.6 milljarða sem að Vestmannaeyjabær fékk fyrir söluna á Hitaveitu Suðurnesja. Tilgangurinn er einfaldur,að fá sem flestar hugmyndir svo að hægt sé að finna bestu lausnirnar, því að þetta er eitt það besta sem komið hefur […]
Grímur kokkur á fiskideginum mikla Dalvík.

Grímur kokkur og hans lið stóð í ströngu á laugardaginn á fiskideginummikla á Dalvík, þar sem hann kynnti og gaf smakk af plokkfiskinum sínum ogosta fylltum saltfiskbollum. Gríðarlegur fjöldi var á Dalvík en talið erað yfir 35 þúsund manns hafi verið á svæðinu. Grímur vakti gríðarlega athygliá svæðinu og mikla lukku með plokkfiskinn sinn og […]
Eyjamenn féllu aftur niður í 2. deild
Golfklúbbur Vestmannaeyja féll að nýju í 2. deild eftir að hafa tapað viðureign sinni gegn Golfklúbbi Akureyrar en Golfklúbburinn Setberg fylgir Eyjamönnum niður í 2. deild. Það var hins vegar Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar sem fór með sigur af hólmi í sveitakeppninni. (meira…)
Bergey til heimahafnar kl. 18.44 á morgun

Sigling Bergeyjar 544, nýtt skip sem Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum lét smíða í Póllandi, ætlar standast áætlun. Um tíma leit út fyrir að skipið kæmi ekki fyrr en seint annað kvöld og átti að taka það inn á þriðjudagsmorguninn. (meira…)
Bakkafjara

Jæja nú er kominn tími til að tjá sig eða ég þarf bara að koma þessu frá mér á einhvern hátt. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér og að allt verð yndislegt þegar Bakkafjara er tilbúin en ég er mjög hræddur um að svo verði ekki. Ég hef ekki vit á tæknilegri útfærslu […]
Staðan í samgöngumálum eyjanna.

Umræðan um stöðu samgöngumála eyjanna verður sífellt hærri og hærri og eru samgöngur við eyjarnar farnar að bitna á fyrirtækjum og einstaklingum í eyjum í meira mæli á hverjum degi. Erfitt er að fara í frí nema að vera búinn að bóka ferð með Herjólfi með löngum fyrirvara ef að farið er með bíl upp […]
Fv. ráðherra lítt hrifinn af stórskipahöfn í Þorlákshöfn

Bæjaryfirvöld í Ölfusi hafa skrifað forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á ríkisstjórnina að láta gera stórskipahöfn í Þorlákshöfn. Ekki sé raunhæft að búa til höfn í Bakkafjöru, eins og stjórnvöld hafa ákveðið. Birna Borg Sigurgeirsdóttir forseti bæjarstjórnar Ölfuss, segir að stórskipahöfn sé meðal annars forsenda fyrir álveri í nágrenni Þorlákshafnar. Sturlu Böðvarssyni, fyrrverandi samgönguráðherra, […]
Atvinnuhugmyndir byrjaðar að detta inn á spjallið

Nokkrar athyglisverðar atvinnuhugmyndir eru komnar inn á www.eyjar.net/spjall og hefur t.d. ein borist frá aðila sem hefur enginn tengsl við Eyjarnar fögru og hann koma bara með dúndur hugmynd sem ferðaþjónustuaðilar ættu að skoða. Hérna eru þær hugmyndir sem hafa birst. Ljósmyndaferðir til Eyja: Nú er ég ekki eyjabúi en hef mikið verið að skoða […]
Kallað eftir stórskipahöfn í Þorlákshöfn

Bæjaryfirvöld í Ölfusi hafa ritað forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á ríkisstjórnin að byggja stórskipahöfn í Þorlákshöfn í stað Bakkafjöruhafnar, sem yrði hvorki fugl né fiskur. Stórskipahöfn í Þorlákshöfn myndi koma öllum sunnlenskum fyrirtækjum til góða og er nauðsynleg aðstaða fyrir væntanleg stórfyrirtæki í Þorlákshöfn. . „Markmiðið með bréfinu var að vekja athygli á […]