Gleðisprengjur sprungu með látum

Það var mikil spenna í loftinu þegar ég gekk inn í leikhúsið á miðvikudaginn sl. til að sjá sýninguna Á þjóðhátíð ég fer. Í kynningunni stóð að hér væri um að ræða leiksýningu aldarinnar með Gleðisprengjunum. Ég vissi ekki alveg hverju ég átti von á, en hafði þó séð Gleðisprengjurnar koma fram á Brothers Brewery […]

Samgöngur til Eyja til umræðu á Alþingi í dag

Staða samgangna til Vestmannaeyja verður til umræðu á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag, mánudaginn 18. maí. Gestur fundarins verður Eyjólfur Ármannsson en fundurinn hefst klukkan 15:00 og verður í beinu streymi á vef Alþingis. Fundurinn er jafnframt opinn almenningi og fulltrúum fjölmiðla á meðan húsrúm leyfir. Það var Halla Hrund Logadóttir, þingmaður […]

Gleymum því ekki að það er ekki búið að laga neitt

Nú erum við loksins eftir langa bið að nálgast eðlilegra ástand í samgöngumálum. Herjólfur farinn að ganga í Landeyjar milli lægða og stutt í að viðgerð geti hafist á skipinu eftir bilun í skrúfu. Á miðvikudag fer svo fram fundur með þingmönnum og ráðherra í Höllinni þar sem ræða á næstu skref í samgöngumálum okkar og […]

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis

20200912_herj_ystiklett_sjor_min

Herjólfur ohf. hefur gefið út nýja tilkynningu þar sem fram kemur að siglt verði tvær ferðir til Landeyjahafnar í dag. Annars vegar seinni partinn í dag og hins vegar í kvöld. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00 og 19:30, en ferðin klukkan 16:00 hafði áður verið áætluð til Þorlákshafnar. Frá Landeyjahöfn verður siglt klukkan 18:15 […]

MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs

Vertu með okkur í matarævintýri á Næs á MATEY sjávarréttahátíðinni, þar sem Vilhjálmur Sigurðarson leiðir gesti í gegnum einstaka matarupplifun byggða á íslensku hráefni, árstíðatengingu og djúpri virðingu fyrir bragði og uppruna. Seðill Vilhjálms einkennist af einfaldleika og nákvæmni þar sem hvert hráefni fær að njóta sín. Máltíðin hefst m.a. á reyktum þorskhrognum með sellerírót […]

Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga

ÍBV fær verðugt verkefni í dag þegar Víkingur Reykjavík kemur í heimsókn á Hásteinsvöll í Bestu deild karla. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og er hluti af heilri umferð þar sem öll lið deildarinnar eru í eldlínunni. Eyjamenn hafa átt erfitt uppdráttar á fyrstu vikum mótsins og sitja á botni deildarinnar eftir sex umferðir með aðeins […]

Kíkt inn á kosningavökur framboðanna

Spennan var farin að magnast verulega þegar fyrstu tölur höfðu verið kynntar og ljóst að úrslitin í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum væru að skýrast. Stuðningsmenn framboðanna fylgdust grannt með framvindunni á kosningavökum sínum þar sem fólk ræddi stöðuna, beið eftir næstu tölum og fylgdist með úrslitunum berast inn. Kosningavaka Sjálfstæðisflokksins fór fram í Akóges, Miðflokkurinn hélt […]

Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn vann afgerandi sigur í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum og fær fimm bæjarfulltrúa af níu samkvæmt lokatölum. Miðflokkurinn verður næst stærsti flokkurinn með tvo fulltrúa og Eyjalistinn fær einnig tvo fulltrúa. Alls greiddu 2.649 atkvæði í kosningunum. Af þeim voru 84 auð og 12 ógild. Kjörsókn var 74,8% sem er mun dræmari kjörsókn en fyrir fjórum […]

Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Vestmannaeyjum samkvæmt fyrstu tölum sem birtar hafa verið eftir að talning hófst í Barnaskólanum í kvöld. Miðað við þessar tölur fær D-listinn fimm bæjarfulltrúa, en Miðflokkurinn og Eyjalistinn tvo hvor. Talin hafa verið 1.077 atkvæði af alls 3.540 á kjörskrá. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið 585 atkvæði eða 55,7% samkvæmt fyrstu tölum. […]

Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir

Það var líf og fjör víða um bæ í dag samhliða bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum. Eftir að kjósendur höfðu greitt atkvæði sitt lögðu margir leið sína í hið sígilda kosningakaffi framboðanna þar sem boðið var upp á veitingar og spjall. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, kíkti við hjá öllum þremur framboðum bæjarins og tók púlsinn á […]

Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi

Herjólfur ohf. hefur birt jákvæðar fréttir fyrir farþega og tilkynnt að frá og með mánudeginum 18. maí verði stefnt að siglingum samkvæmt hefðbundinni sjö ferða áætlun til Landeyjahafnar – þar til annað verður tilkynnt. Samkvæmt tilkynningunni verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00, 19:30 og 22:00. Frá Landeyjahöfn verða brottfarir klukkan 08:15, […]

Talning hefst upp úr klukkan 22 – fyrstu tölur um hálf ellefu

Kjörfundur vegna bæjarstjórnarkosninganna í Vestmannaeyjum stendur nú yfir og verður opið á kjörstað til klukkan 22:00 í kvöld. Samkvæmt nýjustu tölum um kjörsókn höfðu 1.512 manns greitt atkvæði á kjörstað klukkan 17:00 eða 42,7 prósent þeirra sem eru á kjörskrá. Þegar utankjörfundaratkvæði eru tekin með í reikninginn hafa alls 2.152 greitt atkvæði, sem jafngildir um […]

Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!

Í dag tökum við ákvörðun um næstu fjögur ár; um hvernig við viljum byggja upp samfélagið okkar, verja hagsmuni Eyjanna og nýta þau tækifæri sem framundan eru. Það hefur verið mér mikill heiður að njóta þess trausts að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins sem bæjarstjóri síðustu átta ár. Þessi tími hefur kennt mér eitt afdráttarlaust […]

Við gefum loforð og efnum það

Kjördagur er runnin upp. Í dag göngum við Eyjamenn að kjörborðinu og veljum okkur þá fulltrúa sem við viljum hafa við stjórnvöl bæjarins næstu fjögur árin. Kosningarétturinn er okkur mikilvægur og því hvet ég alla til að nýta kosningaréttinn, mæta á kjörstað og greiða atkvæði. Hvert atkvæði skiptir máli þegar kemur að því að móta framtíð […]

Lengi lifi lýðræði á Íslandi!

Upp er runninn kjördagur en þessum degi fylgir ávallt mikil tilhlökkun. Stjórn Eyjalistans langar að koma fram þökkum til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem stutt hafa við okkur í verki í baráttunni og í félagastarfinu í vetur. Án ykkar væri listinn ekki neitt!  Við viljum nýta tækifærið og minna ykkur á, kæru kjósendur að nýta […]

Veljum reynsluna

Í dag fara fram sveitarstjórnarkosningar og bæjarbúar velja það framboð og þá fulltrúa sem þeir treysta best til að taka ákvarðanir sem varða stefnu og framtíð Vestmannaeyja. Í nýrri bæjarstjórn munu níu bæjarfulltrúar taka sæti. Sjálfstæðisflokkurinn er eina framboðið sem býður fram fólk sem hefur reynslu af því að sitja sem kjörnir bæjarfulltrúar. Ferskir vindar […]

Kjósum með framtíðina í huga

Miðflokkurinn

Í komandi sveitarstjórnarkosningum standa íbúar Vestmannaeyja frammi fyrir mikilvægu vali um framtíð samfélagsins. Það skiptir máli að kjósa með skýra sýn að leiðarljósi og velja fólk sem er tilbúið að verja hagsmuni bæjarbúa af festu og ábyrgð. Fyrir marga er Miðflokkurinn sá kostur sem sameinar skynsemi, raunhæfar lausnir og sterka rödd fyrir venjulegt fólk. Vestmannaeyjar […]

Kona fer í framboð

Frambjóðandinn Þegar kona ákveður að taka áskorun um að fara í framboð, blaut á bakvið eyrun og þó varla, verandi miðaldra, menntuð manneskja, eigandi þriggja barna og gift besta manni í heimi, ásamt því að vera með eina hraðasekt á bakinu síðan 1999, en ég keyrði Dalveginn á 52 km/klst. og var sektuð um 10 […]

Kjósum með hjartanu!

Kæru Vestmannaeyingar!  Á morgun fáum við tækifæri til að hafa áhrif. Við fáum tækifæri til að taka þátt í mótun samfélagsins okkar með því að nýta kosningaréttinn og kjósa þau sem við viljum sjá leiða samfélagið okkar til næstu fjögurra ára.  Ég er ótrúlega meyr eftir þessa kosningabaráttu með Eyjalistanum og hafa fengið tækifæri til […]

Saman gerum við góðan bæ enn betri

Við í Eyjalistanum trúum því að sterkar Vestmannaeyjar byggist á öflugri þjónustu, ábyrgum rekstri og skýrri framtíðarsýn. Við viljum byggja upp samfélag þar sem fjölskyldur, börn og eldri borgarar njóta góðs stuðnings og þar sem tækifæri eru fyrir alla. Menntun og uppeldi Við viljum tryggja að aðstaða og þjónusta við börn og fjölskyldur sé til […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.