Herjólfur til Þorlákshafnar

Herjólfur ohf. hefur gefið út nýja tilkynningu um siglingar dagsins þar sem fram kemur að aðeins verði farin ein ferð til Þorlákshafnar fyrri hluta dags. Aðstæður í og við Landeyjahöfn hafa farið versnandi og hefur það áhrif á siglingaráætlun Herjólfs. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:00. Í tilkynningunni eru farþegar […]

Íslendingur vann 336 milljónir!

Heppinn Íslendingur, sem keypti sér miða í N1 v/Austurveg á Selfossi, var meðal þeirra tíu sem deila með sér 2. vinningi í EuroJackpot. Fær hver vinningshafi rúmlega 336 milljónir króna í sinn hlut. Hinir miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Slóveníu, tveir í Svíþjóð og fimm í Þýskalandi. Þetta segir í frétt á vef Íslenskrar Getspár. […]

Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni

Tindur Snær Sigurbjörnsson hefur lokið sveinsprófi í veiðarfæratækni, fagi sem fáir hafa lagt stund á undanfarin ár. Í viðtali á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir hann starfsgreinina bjóða upp á endalaus tækifæri og að nánast enginn vinnudagur sé eins. Tindur hefur sameinað nám og störf hjá Vinnslustöðinni undanfarin ár. Hann hefur verið á námsstyrk hjá fyrirtækinu frá […]

Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir

lotto

Lottópotturinn síðastliðinn laugardag var sexfaldur og fyrsti vinningur nam rúmum 130,9 milljónum króna. Það var rúmlega áttræð kona í Reykjavík sem reyndist vera hinn heppni vinningshafi, en hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is. Í tilkynningu frá Getspá segir að vinningshafinn hafi verið nývaknaður á mánudagsmorgni þegar gleðisímtalið barst. Hún hafði enga hugmynd um að […]

Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri

Staða Þekkingarseturs Vestmannaeyja er sterk um þessar mundir að sögn Harðar Baldvinssonar, framkvæmdastjóra setursins. Hann segir bæði fjárhag og verkefnastöðu hafa tekið miklum framförum á undanförnum árum og sér fram á áframhaldandi vöxt í starfseminni. „Staða Þekkingarsetursins er mjög sterk. Fjárhagsstaðan er mjög sterk og verkefnastaðan hefur aldrei verið betri,“ segir Hörður í samtali við […]

Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun

Óvissa ríkir um siglingar Herjólfs um hvítasunnuhelgina eftir að nýjar veður- og ölduspár benda til þess að aðstæður við Landeyjahöfn geti orðið erfiðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Samkvæmt tilkynningunni eru allar ferðir enn á áætlun að svo stöddu. Ef gera þarf breytingar verði hins vegar tilkynnt um þær um leið og […]

Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum

Samtök atvinnulífsins halda opinn morgunverðarfund í Akóges-salnum, miðvikudaginn 27. maí, klukkan 8.30. Hringferð SA, sem hefur yfirskriftina Rjúfum vítahringinn, stendur yfir næstu þrjár vikur og verður farið vítt og breitt um landið og efnt til funda við fyrirtæki, sveitarfélög og almenning um stöðu íslensks efnahagslífs og leiðir til aukins stöðugleika. Á fundinum verður rætt um […]

Þakklæti efst í huga

Úrslit bæjarstjórnarkosninganna sl. laugardag voru mjög skýr og afgerandi. Við, sjálfstæðismenn, náðum frábærum árangri,  fengum 55,7% atkvæða og hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Við erum gríðarlega stolt með þessa niðurstöðu en jafnframt þakklát kjósendum í Eyjum fyrir þeirra ómetanlega stuðning við framboð okkar. Glæsileg niðurstaða Sigur okkar í þessum kosningum er glæsilegur, því það er ekki […]

Mikilvæg stig í húfi þegar ÍBV mætir ÍA

Í dag hefst áttunda umferð Bestu deildar karla þegar ÍBV sækir ÍA heim á ELKEM-völlinn á Akranesi. Fyrir Eyjamenn er um afar mikilvægan leik að ræða eftir erfiða byrjun á tímabilinu þar sem fyrsti sigur liðsins lætur enn bíða eftir sér. ÍBV situr á botni deildarinnar með eitt stig eftir fyrstu sjö leikina. Liðið hefur […]

Vorið lætur á sér kræla í Eyjum

Vestmannaeyjar skarta sínu fegursta þessa dagana og tók Halldór B. Halldórsson upp þetta myndband vítt og breitt um Heimaey í gær. Þar má sjá Eyjuna, þar sem náttúran, byggðin og lífið á bryggjunni og í bænum njóta sín vel í vorblíðunni. Sjón er sögu ríkari. (meira…)

Ósigraðar Eyjakonur mæta FH í kvöld

Heil umferð fer fram í Bestu deild kvenna í kvöld þegar leikið verður í fimmtu umferð mótsins. Fyrir Eyjamenn beinast augu fyrst og fremst að Kaplakrika þar sem ósigrað lið ÍBV mætir FH klukkan 18:00 í leik sem gæti haft talsverð áhrif á toppbaráttu deildarinnar. Fullt hús hjá ÍBV Eyjakonur hafa byrjað tímabilið af krafti […]

Humar í fyrsta sinn á Matey

Matey er handan við hornið og framundan er helgi þar sem sjávarfang, matarmenning og eyjastemning verða í forgrunni. Á vef Vinnslustöðvarinnar er fjallað um þátt fyrirtækisins í hátíðinni, en VSV er meðal styrktaraðila og leggur jafnframt til hráefni fyrir viðburðina. Grípum niður í umfjöllunina. Sjávarréttahátíðin Matey hefur á undanförnum árum skapað sér sérstakan sess í […]

Vel veiðist hjá Eyjunum

Eyjarnar landa

Það sem af er þessum mánuði hefur veiði verið góð hjá Vestmannaeyjatogurunum Vesatmannaey og Bergey. Veiðiferðirnar hafa verið stuttar eða tveir til þrír sólarhringar og hefur yfirleitt verið komið með fullfermi að landi. Oftast hefur verið landað í Grindavík en einnig í Þorlákshöfn og í Eyjum, að því er segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar. […]

​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum

Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum reyndist minni en í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Samkvæmt lokatölum greiddu 2.649 atkvæði af 3.538 á kjörskrá, sem jafngildir 74,9% kjörsókn. Til samanburðar var kjörsókn í bæjarstjórnarkosningunum árið 2022, 80,9%, árið 2018, 83,2% og árið 2014, 74,7%.​ Munurinn frá kosningunum árið 2022 nemur um ​​sex prósentustigum, en kjörsóknin nú er þó svipuð og hún var […]

Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum

Framkvæmdir við rannsóknarboranir vegna Eyjaganga hafa mætt ýmsum áskorunum síðustu vikur. Borun hefur reynst erfið á köflum og segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, að samgönguerfiðleikar milli lands og Eyja séu einnig farnir að hafa veruleg áhrif á framvindu verkefnisins. Borunin er nú komin niður á 66,3 metra í þeirri holu sem nú er unnið í. […]

„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“

Samgöngur til Vestmannaeyja voru til ítarlegrar umræðu á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær þar sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sat fyrir svörum. Á fundinum var meðal annars rætt um stöðu Landeyjahafnar, bilun í Herjólfi, varaskipamál, áhrif á atvinnulíf og fjárhagstjón fyrirtækja í Eyjum. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Höllu Hrundar Logadóttur, þingmanns Framsóknar […]

Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já

Íbúar í Vestmannaeyjum hafa sagt skýrt sitt álit í íbúakosningu um þróunarsvæðið M2, sem fór undir hraun í Heimaeyjargosinu árið 1973. Niðurstaðan sýnir að meirihluti þeirra sem tóku þátt vill að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á svæðinu. Í íbúakosningunni var spurt: „Ertu fylgjandi því að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á þróunarsvæðinu M2, sem […]

Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu

Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki munaður. Þær eru lífæð samfélagsins. Þess vegna olli opinn fundur um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs miklum vonbrigðum hjá okkur Eyjamönnum. Það sem átti að vera fundur um lausnir, framtíðarsýn og ábyrgð varð að stórum hluta upptalning á „náttúruöflum“ og ástæðum fyrir því af hverju hlutirnir séu erfiðir. Auðvitað skilja allir […]

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja

Skemmtiferðaskipasumarið í Vestmannaeyjum hófst formlega í dag þegar fyrsta skemmtiferðaskip ársins lagði leið sína til Eyja. Þar með er ákveðinn sumarkafli hafinn í bænum, en næstu mánuðir munu þúsundir gesta streyma til Eyja með skipum hvaðanæva að úr heiminum. Von er á um 100 skemmtiferðaskipum til Vestmannaeyja í sumar og talið er að farþegar verði […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.