Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum

Heimaey VE

Loðnuvertíðinni sem lauk í mars skilaði ekki aðeins góðri afkomu fyrir Ísfélagið heldur einnig mjög góðum tekjum fyrir áhafnir skipanna. Í tilkynningu með uppgjöri félagsins kemur fram að hásetahlutur á Sigurði VE og Heimaey VE hafi verið á bilinu 8,7 til 8,9 milljónir króna, án orlofs, eftir leiðréttingar samkvæmt kjarasamningum. Vertíðin stóð yfir í 41 […]

Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til

Það furða sig kannski sumir á því hvers vegna ég skuli enn einu sinni skrifa um Landeyjahöfn. Þó hún sé ekki barnið mitt þá ól ég hana upp og því rennur mér blóðið til skyldunnar þegar mér finnst henni ekki sinnt sem skyldi og að henni vegið. Síðustu átta ár hefur lítið verið gert til […]

Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár

Eldri ökumenn þurfa framvegis ekki að leggja fram læknisvottorð við endurnýjun ökuskírteinis fyrr en þeir hafa náð 75 ára aldri. Þetta er meðal breytinga á reglugerð um ökuskírteini sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Fram að þessu hefur almennt verið krafist læknisvottorðs við endurnýjun ökuskírteina frá 65 ára aldri, en með […]

Vel heppnað söngkvöld og aðalfundur

Aðalfundur Á.t.V.R. var haldinn í gærkvöldi, 28. maí, í sal Kiwanis-félagsins Eldeyjar í Kópavogi og hófst með stuttum en skemmtilegum fundarstörfum, þar sem hefðbundin aðalfundarmál voru tekin fyrir. Á fundinum var ný stjórn félagsins kjörin. Í stjórn Á.t.V.R. sitja nú: Rúnar Ingi Guðjónsson, Petra Fanney Bragadóttir, Hjördís Jóhannesdóttir, Dögg Lára Sigurgeirsdóttir og Svala Helga Sigurðardóttir. […]

Lögregla bíður gagna áður en næstu skref verða tekin í andlátsmáli

Hraunb IMG 3125 2

Lögreglan á Suðurlandi segir stöðu rannsóknar á andláti á Hraunbúðum í lok janúar vera óbreytta að svo stöddu. Beðið sé eftir frekari gögnum áður en hægt verði að taka næstu skref í málinu. Þetta kemur fram í svari Rúnars Þórs Steingrímssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi, við fyrirspurn Eyjafrétta. „Við höfum engar aðrar fréttir af […]

Ísfélagið með 2,8 milljarða króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi

Stebbi.isfelagjpg

Ísfélag hf. skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026 samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í dag. Góð loðnuvertíð, sterk aflabrögð og hátt verð á afurðum félagsins eru meðal helstu skýringa á góðri afkomu. Rekstrartekjur félagsins námu rúmum 9 milljörðum króna á tímabilinu, samanborið við 4,6 milljarða á sama tíma […]

Munum að njóta!

Síðustu vikur og mánuðir hafa verið langt frá því skemmtilegar þegar kemur að samgöngum milli lands og eyja. Siglingar í Landeyjahöfn hafa verið ótryggar og það hefur haft gríðarleg áhrif á verslunar- og ferðaþjónustufyrirtæki í eyjum. Ég þekki þetta vel af eigin reynslu sem fyrrverandi eigandi að ferðaþjónustufyrirtæki að hver einasta vika skiptir máli, hver […]

Rúta lenti í vandræðum á nýja hrauninu

Hópferðabifreið lenti í vandræðum á nýja hrauninu í dag þegar hópur var á leið að skoða nýtt listaverk eftir Ólaf Elíasson á svæðinu. Að sögn sjónarvotta var verið að aðstoða við að koma rútunni til baka þegar hún grófst niður í jarðveginn. Litlu hafi munað að bifreiðin færi út af veginum við þessar aðstæður. Samkvæmt […]

Ræsa lestrarvélarnar á laugardag

Sumarlestur Bókasafns Vestmannaeyja hefst formlega laugardaginn 30. maí klukkan 12:00 og eru öll börn hvött til að taka þátt í sumar. Í ár er þema sumarlestursins tengt kappakstri og hefur bókasafnið verið skreytt í takt við það. Skráning fer fram í afgreiðslu bókasafnsins, en einnig verður hægt að skrá sig til leiks allt sumarið. Börn […]

Milena í eldlínunni með U16 ára landsliðinu

Knattspyrnukonan unga, Milena Mihaela Patru, var á dögunum í eldlínunni með U16 ára landsliði Íslands á UEFA þróunarmóti í Finnlandi. Milena, sem er fædd árið 2011, hefur leikið upp alla yngri flokka ÍBV og vakið athygli fyrir markaskorun sína. Hún hefur þegar leikið 24 meistaraflokksleiki með ÍBV og skorað í þeim 11 mörk. Á mótinu […]

„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf

Eftir hálfa öld hjá Vinnslustöðinni hefur Sigurður Sveinsson látið af störfum. Í viðtali á heimasíðu fyrirtækisins rifjar hann upp breytingar í gegnum árin og lýsir starfsferlinum í einni setningu: „Þetta hefur verið dans á rósum.“ Það eru ekki margir sem geta litið yfir öxlina og sagt frá hálfrar aldar starfsferli hjá sama fyrirtæki. Sigurður Sveinsson […]

Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH

Leikmaður ÍBV, Olga Sevcova, hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna atviks sem átti sér stað í leik FH og ÍBV í Bestu deild kvenna þann 20. maí síðastliðinn. Málið kom inn á borð nefndarinnar frá málskotsnefnd KSÍ samkvæmt ákvæðum reglugerðar um aga- og úrskurðarmál. Um var að ræða […]

Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár

Ráðhús_nær_IMG_5046

Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar hafa svarað fyrirspurn Eyjafrétta í kjölfar opinbers pistils fyrrverandi starfsmanns þar sem sett var fram gagnrýni á starfsumhverfi og stjórnarhætti hjá bænum. Í svari bæjarins segir að engar formlegar kvartanir eða ábendingar hafi borist á undanförnum árum sem varði starfsumhverfi eða samskipti stjórnenda og starfsfólks. „Hjá Vestmannaeyjabæ starfa rúmlega 500 starfsmenn við 18 […]

Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig

Eyjagöng ehf. hefur gert samstarfssamning við prófessor Eivind Grøv, einn fremsta sérfræðing heims á sviði neðansjávargangagerðar. Grøv mun gegna hlutverki tæknilegs ráðgjafa félagsins við undirbúning og hönnun fyrirhugaðra neðansjávarganga milli meginlands Íslands og Heimaeyjar. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. Eivind Grøv er aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknarstofnuninni SINTEF og aðjúnkt við NTNU-háskólann í Þrándheimi. Hann hefur […]

Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ

Opinber færsla Lindu Rósar Sigurðardóttur á samfélagsmiðlum hefur vakið athygli þar sem hún lýsir reynslu sinni af störfum hjá Vestmannaeyjabæ og setur fram gagnrýni á starfsumhverfi og stjórnarhætti innan bæjarkerfisins. Linda Rós starfaði um árabil hjá Vestmannaeyjabæ, fyrst í Íþróttamiðstöðinni og síðar á umhverfis- og framkvæmdasviði. Í pistli sínum lýsir hún breytingum sem hún segir […]

Framkvæmdir hafnar í Miðgerði

Nú eru framkvæmdir hafnar við gatnagerð og fráveitu í Miðgerði og fyrstu merki uppbyggingar á svæðinu farin að sjást. Jarðvinna er komin af stað og vinnuvélar hafa verið á svæðinu síðustu daga þar sem unnið er að undirbúningi innviða fyrir framtíðaruppbyggingu. Eyjafréttir greindu áður frá því að Gröfuþjónusta Brinks ehf. hefði verið valin til að […]

Landa fyrir austan

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa landað fullfermi í Neskaupstað í gær og í dag. Vestmannaey landaði í gær og hélt til veiða strax að löndun lokinni. Í kjölfar Vestmannaeyjar kom Bergey einnig til hafnar í gær og hófst löndun úr henni í morgun. Rætt er við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar um gang veiðanna. […]

Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný

Rannsóknarholan EG-01 á Eiðinu er nú komin niður á 101,3 metra dýpi. Samkvæmt nýrri uppfærslu á vef Eyjaganga er verkefnið komið á betra skrið á ný eftir tafir síðustu daga. Eyjafréttir greindu áður frá því í síðustu viku að samgönguerfiðleikar milli lands og Eyja væru að hafa áhrif á framgang rannsóknarborana vegna Eyjaganga, þar sem […]

Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag

Herjólfur ohf. hefur gefið út nýja tilkynningu þar sem fram kemur að siglt verði samkvæmt hefðbundinni sjö ferða áætlun til Landeyjahafnar í dag. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00, 19:30 og 22:00. Frá Landeyjahöfn verða brottfarir klukkan 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15, 20:45 og 23:15. Í tilkynningu Herjólfs kemur jafnframt fram […]

Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?

ÍBV tekur á móti Grindavík/Njarðvík á Hásteinsvelli í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Eyjastúlkur hafa farið vel af stað í sumar, unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum og sitja í öðru sæti deildarinnar með 12 stig. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á Hásteinsvelli og þar fá Eyjastúlkur tækifæri til að halda áfram öflugri […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.