Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ráðhús_nær_IMG_5046
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Rekstur Vestmannaeyjabæjar gekk betur á fyrstu sex mánuðum ársins en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Tekjur jukust hlutfallslega mun meira en rekstrarkostnaður, bæði hjá samstæðu bæjarins og sveitarsjóði.

Þetta kemur fram í drögum að sex mánaða rekstraryfirliti Vestmannaeyjabæjar sem lögð voru fyrir bæjarráð í liðinni viku.

Tekjurnar 9,8 prósentum yfir áætlun

Heildartekjur samstæðu A- og B-hluta voru 9,8 prósentum hærri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Heildarrekstrarkostnaður var á sama tíma 2,2 prósentum yfir áætlun.

Rekstrarafkoma samstæðunnar á fyrri helmingi ársins var því töluvert betri en áætlað hafði verið.

A-hlutinn einnig vel yfir áætlun

Tekjur A-hluta, eða sveitarsjóðs, voru 11,3 prósentum hærri en áætlað var. Rekstrarkostnaðurinn fór hins vegar aðeins 0,9 prósent fram úr áætlun.

Rekstrarafkoma sveitarsjóðs fyrstu sex mánuði ársins var því mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Bæjarráð þakkaði fyrir upplýsingarnar en lagði jafnframt áherslu á að áfram yrði fylgst vel með rekstri sveitarfélagsins, enda væru áskoranir í rekstrarumhverfinu enn umtalsverðar.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.