Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar

Húsfyllir var á íbúafundi um stöðu Landeyjahafnar sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum í gær. Á vef Vegagerðarinnar hefur nú verið birt ítarleg samantekt um það sem fram kom á fundinum, þar sem meðal annars er fjallað um stöðu hafnarinnar, frumniðurstöður rannsókna danskra sérfræðinga, dýpkunarmál og hugmyndir um næstu skref. Eyjafréttir birta hér samantektina. Á fundinum […]

Eyjamenn fjölmenntu á samgöngufund Vegagerðarinnar

Vegagerðin og Vestmannaeyjabær stóðu fyrir opnum íbúafundi í Höllinni í gær þar sem fjallað var um stöðu Landeyjahafnar, þær áskoranir sem upp komu í vetur og árangur dýpkunarframkvæmda undanfarin ár. Á fundinum voru einnig kynntar frumniðurstöður úr rannsóknarverkefni danskra sérfræðinga hjá DHI A/S sem unnið hafa að greiningu á sandburði og mögulegum úrbótum til að […]

Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Vestmannaeyja eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí fer fram í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 3. júní, og hefst klukkan 14:00. Fundurinn markar upphaf nýs kjörtímabils þar sem kjörnir fulltrúar taka formlega til starfa og móta skipan bæjarstjórnar og nefndakerfis næstu fjögur árin. Á dagskrá fundarins eru meðal annars staðfesting á kjöri bæjarfulltrúa, kosning […]

Hvers vegna segja svona margir það sama?

Páll Magnússon birti í gær grein þar sem hann telur sig hafa hrakið nokkrar af þeim staðhæfingum sem fram hafa komið í umræðu um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ. Það er eðlilegt og sjálfsagt að leiðrétta rangfærslur ef þær hafa átt sér stað. Um það ætti ekki að vera ágreiningur. En jafnvel þótt einhver einstök atriði reynist […]

Tónleikar og skemmtun í Höllinni um helgina

Tónleikar með SSSÓL hafa verið staðfestir og fara fram á föstudagskvöld í Höllinni. Fyrir helgi kom ákall frá Höllinni þar sem forsala var sögð undir væntingum. „Þetta er alltaf áhætta og samtal milli okkar og listamannanna. Ég hafði aldrei séð forsölu fara svona hægt af stað hjá okkur á Sjómannadagstónleika en hafði samt alltaf trú. […]

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu í dag borstæði Eyjaganga í Vestmannaeyjum ásamt fleiri fulltrúum frá innviðaráðuneytinu og Vegagerðinni. Í færslu á vef Eyjaganga kemur fram að heimsóknin sé mikilvægur áfangi fyrir verkefnið og sýni þann áhuga og stuðning sem rannsóknir vegna fyrirhugaðra jarðganga til Vestmannaeyja njóti hjá stjórnvöldum og samgönguyfirvöldum. Á […]

Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært

Frá og með 5. júní stóð til að Herjólfur hæfi átta ferða siglingaáætlun til og frá Landeyjahöfn. Vegna þess að ferjan siglir enn á einni skrúfu verður hins vegar ekki hægt að standa við þá áætlun að svo stöddu. Þett Herjólfur mun því áfram sigla hefðbundna sjö ferða áætlun þar til annað verður tilkynnt. Frá […]

Högum okkur

DSC_3312

Það væri út af fyrir sig verðugt félagsfræðilegt rannsóknarsefni hvernig ein færsla á facebook breytist í blaðagrein, síðan frétt og loks í illskeyttari og orðljótari persónuárásir í athugasemdum en við erum vön hér í Eyjum. Sérstaklega vegna þess að þær staðhæfingar sem hrundu málinu af stað – og hægt er festa hendur á – eru […]

Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku

Rannsóknarvinna vegna Eyjaganga heldur áfram af krafti. Kjarnaborun í rannsóknarholunni EG-01 á Eiðinu hefur gengið afar vel undanfarna daga og er borinn nú kominn niður á 222,3 metra dýpi. Ef áætlanir standast lýkur boruninni um næstu helgi og verður búnaðurinn þá fluttur yfir á Landeyjasand þar sem næsta rannsóknarhola tekur við. Þetta kemur fram í […]

Nei, það er ekki glæpur

Fyrir nokkrum dögum sat ég í veislu þar sem ég þekkti fáa. Sessunautur minn var ungur og duglegur iðnaðarmaður. Meðal verkefna hans er viðhald í fiskveiðiskipum. Við fórum að ræða atvinnulíf, stjórnmál og umræðuna um sjávarútveginn. Þá rifjaðist upp fyrir mér að fjöldi fólks hefur lífsviðurværi sitt ekki bara af sjómennsku og landvinnslu heldur víðtækri […]

Nethamar hætt starfsemi

Bíla- og vélaverkstæðið Nethamar hefur lokið starfsemi eftir 33 ár og hefur verkstæðinu verið lokað. Eigendur og starfsfólk vilja þakka Eyjamönnum kærlega fyrir viðskiptin í gegnum árin, segir í tilkynningu. (meira…)

Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi

Samfylkingin er áfram stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup, en Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi milli mánaða og mælist nú með 23,5 prósenta fylgi. Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn með 17,6 prósent fylgi. Samkvæmt könnuninni myndu 28,4 prósent kjósa Samfylkinguna ef gengið yrði til Alþingiskosninga í dag, 23,5 prósent Sjálfstæðisflokkinn og 17,6 prósent Miðflokkinn. […]

Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar

Vegagerðin og Vestmannaeyjabær boða til opins íbúafundar í Höllinni þriðjudaginn 2. júní klukkan 17:00 þar sem farið verður yfir stöðu Landeyjahafnar, þær áskoranir sem upp komu í vetur og árangur dýpkunarframkvæmda undanfarin ár. Fundurinn kemur á tímum þegar samgöngumál Vestmannaeyja hafa verið mikið í umræðunni vegna erfiðrar stöðu í Landeyjahöfn, bilunar í Herjólfi og þeirra […]

Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna

Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins, notar tækifærið í uppgjöri félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung til að svara gagnrýni sem beinst hefur að hagnaði sjávarútvegsfyrirtækja og fjárfestingum þeirra utan greinarinnar. Í yfirlýsingu sinni vísar Stefán til nýrrar skýrslu Hagfræðistofnunar um fjárfestingar sjávarútvegsfyrirtækja og segir umræðuna um hagnað og arðgreiðslur greinarinnar oft einkennast af rangfærslum. „Orðræða sumra þeirra sem […]

„Nú þurfum við á ykkur að halda“

ÍBV tekur á móti Keflavík á Hásteinsvelli í dag þegar 9. umferð Bestu deildar karla heldur áfram. Flautað verður til leiks klukkan 17:00. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir Eyjamenn sem sitja á botni deildarinnar með tvö stig eftir fyrstu átta leikina. Liðið er enn í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu en hefur sýnt […]

Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni

Líf og fjör var í Höllinni í Vestmannaeyjum í dag þegar Arsenal-klúbburinn í Eyjum stóð fyrir fjölskyldudegi fyrir stuðningsmenn og aðra gesti. Yngri kynslóðin lét sig ekki vanta og nutu börnin sín vel í hoppuköstulum á meðan boðið var upp á pylsur og drykki fyrir alla sem mættu. Fjölmargir lögðu leið sína í Höllina til […]

Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik

Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna lýkur í dag þegar fjórir leikir fara fram samtímis klukkan 14:00. Athygli Eyjamanna beinist að leik Stjörnunnar og ÍBV á Samsungvellinum í Garðabæ. ÍBV hefur farið vel af stað í sumar og situr í 3. sæti deildarinnar með 13 stig eftir sex leiki, jafnmörg stig og FH sem er í […]

45 nemendur útskrifuðust frá FÍV

Skólaslit vorannar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fóru fram í dag, föstudaginn 29. maí, þar sem 45 nemendur voru útskrifaðir af sex mismunandi brautum. Athöfnin hófst klukkan 13.00 og fór fram að viðstöddum útskriftarnemum, fjölskyldum, starfsfólki skólans og öðrum gestum. Nemendur útskrifuðust af stúdentsbrautum, húsasmiðabraut, sjúkraliðabraut, iðnmeistaranámi, starfsbraut og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Í ræðu skólameistara kom fram […]

Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum

Peninga

Það hefur verið líf og fjör hjá Íslenskri getspá í vikunni, enda hafa vinningshafar lagt leið sína á skrifstofu Getspár eftir stóra vinninga sem féllu um síðustu helgi. Á föstudagskvöldið kom 2. vinningur í EuroJackpot til Íslands, rúmar 336 milljónir króna. Vinningshafarnir eru eldri hjón sem keyptu miðann sinn hjá N1 við Austurveg á Selfossi. […]

Stuttir túrar skiluðu góðum afla

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Neskaupstað í gær og í dag að loknum stuttum veiðiferðum. Vestmannaey landaði í gær um 60 tonnum af ýsu og þorski og sagði Birgir Þór Sverrisson skipstjóri í samtali við vef Síldarvinnslunnar að vel hefði gengið að veiða. „Við byrjuðum á Undirbyrðishrygg sunnan við Hvalbakinn en fórum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.