Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður

„Í dag eru fjörutíu ár frá því að fyrsta blað Frétta kom út þar sem ég var titlaður blaðamaður. Það var stór titill og maður vonast til að standa undir honum í dag,“ segir Ómar Garðarsson, ritstjóri Eyjafrétta, sem hóf störf í blaðamennsku fyrir sléttum fjórum áratugum. Ómar rifjar upp fyrstu árin þegar hann hitti […]
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar

Dýpkunarskipið Álfsnes mun taka um tveggja vikna hlé frá störfum í Landeyjahöfn á meðan Herjólfur og Baldur sinna samtals 12 ferðum á dag milli lands og Eyja. Vegagerðin segir að mikill tími fari forgörðum þegar skipið þarf að færa sig í hvert sinn sem ferjur sigla um hafnarmynnið og því verði dýpkunarverkefninu frestað tímabundið. Í […]
Landað í Grindavík og í Eyjum

Eyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE héldu til veiða um hádegi á mánudag að lokinni sjómnnadagshelgi. Skipin lönduðu í gær að loknum örstuttum túr, Vestmannaey í Grindavík og Bergey í Eyjum. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar að aflinn hjá þeim hefði verið um 50 tonn. „Við vorum rétt […]
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“

Breytingar á sorphirðu í fjölbýlishúsum við Foldahraun hafa vakið óánægju meðal íbúa. Einar Friðþjófsson, sem hefur um árabil séð um ruslageymslu við Foldahraun 41, segir í samtali við Eyjafréttir að nýtt fyrirkomulag taki ekki mið af aðstæðum í fjölbýlishúsum þar sem margir íbúar deila sömu sorpaðstöðu. Málið hófst þegar íbúar fengu upplýsingar um að sorp […]
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar

Nýkjörin bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fyrsta fundi sínum bókun þar sem ríkisstjórn Íslands er skoruð á að grípa til aðgerða til að tryggja ásættanlegar samgöngur til og frá Vestmannaeyjum. Bókunin kemur í kjölfar opins fundar Vegagerðarinnar og Vestmannaeyjabæjar sem haldinn var í Höllinni 2. júní þar sem farið var yfir stöðu Landeyjahafnar, dýpkunarmál og […]
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir

Það hefur verið nóg um að vera hjá Íslenskri getspá að undanförnu og nú hafa tveir skemmtilegir vinningshafar með stóra potta og áhugaverðar sögur að baki bæst í hóp heppinna milljónamæringa. Annar þeirra er rúmlega fimmtug amma sem hefur verið með Lottótölurnar sínar í áskrift um árabil. Tölurnar eru henni kærar, enda byggja þær á […]
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand

Kjarnaborun í rannsóknarholu Eyjaganga á Eiðinu í Vestmannaeyjum er nú lokið og undirbúningur fyrir næsta áfanga verkefnisins hafinn. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Eyjaganga. Samkvæmt upplýsingum frá Eyjagöngum hefur rannsóknarholan EG-01 skilað mikilvægu efni og gögnum um jarðlög á svæðinu sem nýtast munu við áframhaldandi undirbúning og hönnun mögulegra ganga milli lands […]
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar

Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem haldinn var í Ráðhúsinu nýverið var kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara auk þess sem skipað var í ráð, nefndir og stjórnir á vegum Vestmannaeyjabæjar fyrir nýtt kjörtímabil. Hildur Sólveig Sigurðardóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa. Eyþór Harðarson var kjörinn varaforseti, einnig […]
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fyrsta fundi sínum að ráða Írisi Róbertsdóttur áfram í starf bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar til næstu fjögurra ára. Tillagan var samþykkt með atkvæðum allra fimm bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Tveir bæjarfulltrúar Miðflokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni en tveir bæjarfulltrúar Eyjalistans sátu hjá. Við afgreiðslu málsins lagði Miðflokkurinn fram breytingartillögu þar sem lagt var til að […]
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni

Það var mikið um að vera í gær á Vigtartorgi og á bryggjunni þar sem börn og fullorðnir nutu fjölbreyttrar dagskrár í tilefni af sjómannadeginum. Hoppukastalar, sjómannaþrautir og fjölskylduskemmtun af bestu gerð. Óskar Pétur Friðriksson var á vappinu og tók meðfylgjandi myndir. Fyrri frétt af sjómannafjörinu: Svipmyndir frá sjómannagleði við sjávarsíðuna (meira…)
Léttir hlaut nafn sitt við hátíðlega athöfn – myndir

Nýr vinnubátur Vestmannaeyjahafnar, Léttir, hlaut nafn sitt við athöfn í höfninni í gær. Fjölmenni var viðstatt þegar báturinn var formlega nefndur. Það kom í hlut Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra að gefa bátnum nafn. Að lokinni nafngift blessaði séra Viðar Stefánsson skipið og áhöfn þess áður en gestum var boðið til létts veisluhalds á hafnarskrifstofunni. Léttir er […]
Svipmyndir frá sjómannagleði við sjávarsíðuna

Það var líf og fjör í Vestmannaeyjum í dag þegar fjölskyldur og gestir tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá sjómannadagsins. Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Nausthamarsbryggju naut mikilla vinsælda og á Vigtartorgi var boðið upp á fjölbreytta skemmtun fyrir alla aldurshópa. Eyjafréttir voru á staðnum og hér má sjá myndir og myndband frá deginum þar sem […]
Fjörugt föstudagskvöld með SSSól í Eyjum

Það var líf og fjör í Höllinni á föstudagskvöldið þegar SSSól – með Helga Björns í fararbroddi – steig á svið fyrir troðfullu húsi. Gestir tóku vel undir með hljómsveitinni og stemningin var með besta móti þegar sjómannadagshelgin fór af stað af fullum krafti. Eyjafréttir voru á staðnum og fangaði ljósmyndari og myndatökumaður kvöldið á […]
Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju

Undanfarnar vikur hefur ástandið í Búastaðagryfju verið til umræðu meðal íbúa Vestmannaeyja vegna mikillar uppsöfnunar timburs og annars efnis á svæðinu. Í tilkynningu sem birt hefur verið á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að orsök vandans sé bilun í búnaði hjá Terra og að unnið sé að því að koma svæðinu aftur í viðunandi horf. Þá […]
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn

Undirbúningur fyrir sjómannadaginn er kominn á fullt í Vestmannaeyjum. Starfsfólk umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar hefur undanfarna daga unnið að því að fegra Stakkagerðistúnið fyrir hátíðarhöld helgarinnar. Kjartan Vidó og hans fólk hafa lagt lokahönd á ýmis verkefni á túninu og meðal annars útbúið glæsilegt blómaakkeri í blómareitnum bak við stóra steininn. Þar er sjómennskunni og […]
Myndir: Karlakórinn söng sumarið inn í Eldheimum – Uppfært: Myndband

Karlakór Vestmannaeyja hélt árlega vortónleika sína í Eldheimum í gærkvöld. Þar bauð kórinn upp á fjölbreytta dagskrá sem samanstóð af hefðbundnum karlakórslögum, vinsælum Eyjalögum og þekktum erlendum lögum. Tónleikarnir voru vel sóttir og ríkti góð stemning í salnum. Flutningurinn einkenndist af krafti og sönggleði við góðar undirtektir viðstaddra. Meðfylgjandi eru myndir frá tónleikunum sem gefa […]
„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“

Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar vakti athygli þegar fulltrúar Miðflokksins lögðu til að Trausti Hjaltason yrði ráðinn bæjarstjóri. Tillagan náði ekki fram að ganga en Trausti segir hana hafa komið sér á óvart og þakkar það traust sem honum var sýnt. Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á miðvikudag var Íris Róbertsdóttir ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra […]
Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Þegar fyrst var haldið upp á sjómannadaginn fyrir miðja síðustu öld eða árið 1938 var tilgangur hátíðarhaldanna ekki hvað síst að vekja athygli þjóðarinnar á störfum sjómanna. Gildi starfa þeirra til verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið. Ef litið er til baka til ársins 1938 blasir við að grettistaki hefur verið lyft í öryggismálum sjómanna og það er […]
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum

Nýtt tölublað Eyjafrétta, sjötta blað ársins, er komið út. Að þessu sinni er blaðið að stórum hluta helgað sjómannadeginum, með fjölbreyttu efni um sjómennsku, útgerð og mannlífið í Vestmannaeyjum. Á forsíðu blaðsins eru sjómennirnir Óttar Steingrímsson og Friðrik Ásmundsson, en blaðið kemur út í aðdraganda sjómannadagshelgarinnar. Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Jónínu Björk […]
Lífríki íslenskra hafna í hættu?

Í blaði Eyjafrétta á morgun, sem helgað er Sjómannadeginum er athyglisverð grein um drög að nýrri stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Surtsey. Mælt er með hertari reglum um umferð um svæðið, meðal annars gagnvart farþega skipum, minni bátum og drónum. Þar kemur líka fram að hætta stafar af skemmtiferðaskipum sem bera með sér framandi lífverur. […]