Baldur verður áfram í Eyjum

Ferjuleiðir ehf. hefur tilkynnt að Baldur verði áfram í siglingum milli lands og Vestmannaeyja fram í miðjan júlí að ósk Vegagerðarinnar. Í tilkynningu félagsins á samfélagsmiðlum kemur fram að Vegagerðin hafi farið fram á að ferjan verði lengur í Vestmannaeyjum en upphaflega var ráðgert. Baldur mun því sinna áætlunarferðum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja þar til […]

Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina

fánar_17_juni_cr

Rigning hefur sett svip sinn á þjóðhátíðardaginn í Vestmannaeyjum og því fara hátíðarhöld dagsins fram innandyra í Íþróttamiðstöðinni. Skrúðgangan verður engu að síður á sínum stað og leggur af stað frá Skátaheimilinu við Faxastíg klukkan 13:45. Þrátt fyrir breytinguna verður dagskrá dagsins að mestu óbreytt og lögð er áhersla á að skapa hátíðlega og gleðilega […]

Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli

ÍBV tekur á móti toppliði FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á Hásteinsvelli í dag, miðvikudag. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 og sæti í undanúrslitum er undir. FH-konur leiða Bestu deildina með 19 stig eftir átta umferðir en ÍBV er í fjórða sæti með 14 stig. Liðin mættust fyrr í sumar í deildinni þegar […]

Vertíðin 2026

Nú þegar tillögur Hafró um hámarksafla fyrir næsta fiskveiðiár liggja fyrir, þá ætla ég aðeins að fara yfir málin og byrja á loðnunni. Fyrir síðustu áramót gaf Hafró það út að þeir áætluðu að loðnuafli á vertíðinni yrði að hámarki 35-40 þúsund tonn. Eftir áramót hins vegar fylltist allt af loðnu og endaði vertíðin í […]

Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini

default

Óvíst er hvenær Herjólfur III getur hafið siglingar á ný, en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er skipið enn í viðamiklu viðhaldi og getur ekki fengið haffærisskírteini fyrr en sérstök prófun á rýmingarbúnaði þess hefur farið fram. Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Eyjafrétta kemur fram að Herjólfur III hafi verið í slipp frá byrjun júní þar […]

Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt yfir áætlun

Yfir eyjar, HBH 26

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í síðustu viku var lagt fram fjögurra mánaða rekstraryfirlit fyrir árið 2026. Fram kemur í fundargerð að heildartekjur samstæðu A og B hluta Vestmannaeyjabæjar hafi verið 8,8% hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Á sama tíma var heildarrekstrarkostnaður 1,4% hærri en áætlað hafði verið. Samkvæmt yfirlitinu […]

Sonur fékk eignarhlut sinn leiðréttan í Landsrétti

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands í máli milli móður og sonar vegna eignarhlutfalla í íbúð sem þau festu kaup á árið 2011. Niðurstaðan er sú að sonurinn telst eigandi 86,9% eignarinnar en móðirin 13,1%, þrátt fyrir að kaupsamningur hafi upphaflega kveðið á um 40% hlut sonarins og 60% hlut móðurinnar. Fjármagnaði nær öll kaupin […]

Tesla opnar sex nýjar hraðhleðslustöðvar í Eyjum

Sex nýjar Tesla Supercharger-hraðhleðslustöðvar hafa verið teknar í notkun við Tangagötu í Vestmannaeyjum. Um er að ræða stöðvar af nýjustu gerð, svokallaðar V4-stöðvar, sem geta skilað allt að 250 kW hleðsluafli og eru opnar fyrir allar gerðir rafbíla. Davíð Guðmundsson, sem komið hefur að uppbyggingu hleðsluinnviða í Eyjum um árabil, segir að verkefnið hafi verið […]

Kjarnaborun að hefjast á Landeyjasandi

default

Undirbúningi fyrir næstu rannsóknarholu Eyjaganga á Landeyjasandi er nú lokið og stendur til að hefja bæði fóðrun og kjarnaborun á næstu dögum. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Eyjaganga. Rannsóknarholan, sem ber heitið EG-02, er hluti af umfangsmiklum jarðfræðirannsóknum sem ætlað er að varpa ljósi á hvort raunhæft sé að ráðast í gerð […]

Lokanir Landeyjahafnar hafa áhrif á gjaldskrá Herjólfs

Fargjöld með Herjólfi hækkuðu um 4% þann 8. júní samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Hækkunin kemur á sama tíma og félagið glímir við erfiðar rekstraraðstæður vegna samgönguvandans sem skapast hefur í vetur og vor. Samkvæmt nýrri gjaldskrá hækkar fargjald fyrir fullorðna með lögheimili í Vestmannaeyjum um 50 krónur, en um 100 krónur fyrir aðra farþega. […]

Svipmyndir frá sólríkum sunnudegi

Eyjar, smáeyjar, HBH

Veðrið lék við Eyjamenn og gesti alla helgina. Í þessu myndbandi fangar Halldór B. Halldórsson stemninguna á fallegum degi þar sem sól, kyrrð og mannlíf settu svip sinn á Eyjarnar. Myndbandið var tekið upp víðs vegar um Vestmannaeyjar og gefur skemmtilega innsýn í daginn eins og hann blasti við íbúum og gestum. Myndband og klipping: […]

Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband

Mikil umferð hefur verið í Vestmannaeyjasiglingum síðustu daga og var líf og fjör við ferjuhöfnina í gær, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem Halldór B. Halldórsson tók. Frá því í byrjun vikunnar hafa Herjólfur og Baldur siglt saman á milli lands og Eyja og eru nú farnar tólf ferðir á dag. Samkvæmt upplýsingum […]

ÍBV getur farið upp fyrir Þór

ÍBV sækir Þór heim á VÍS-völlinn á Akureyri í dag þegar 10. umferð Bestu deildar karla heldur áfram. Flautað verður til leiks klukkan 16:30. Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið í neðri hluta deildarinnar. Þór situr í 10. sæti með sex stig eftir níu leiki en ÍBV er sæti neðar með fimm stig. Eyjamenn geta […]

Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar

Vestmannaeyjabær hefur ráðið Línu Katrínu Þórðardóttur í starf deildarstjóra launadeildar. Starfið var auglýst í maí og bárust alls fimm umsóknir. Lína Katrín kemur til starfans með reynslu af fjármálastjórnun, launa- og mannauðsmálum auk verkefnastjórnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins. Þar segir ennfremur að Lína Katrín hafi lokið BA prófi í viðskiptafræðum og […]

Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið

Tæplega 2.000 farþegar ferðuðust með áætlunarflugi milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 29. maí 2026. Á sama tíma var nýting sæta um 65%, samkvæmt upplýsingum frá Norlandair. Alls ferðuðust 1.926 farþegar með fluginu á tímabilinu. Nýting á sætaframboði var um 66% á leiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja og um 63% […]

ÍBV sækir Þrótt heim í dag

ÍBV sækir Þrótt heim á AVIS-völlinn í Laugardal í dag þegar 8. umferð Bestu deildar kvenna fer fram. Flautað verður til leiks klukkan 14:00. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið, sem eru í hópi þeirra sem berjast um efri sæti deildarinnar. ÍBV situr í 3. sæti með 13 stig eftir sjö leiki en Þróttur […]

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí

bidrod_bbilar_herj_2022

Viðgerð á rafmótor Herjólfs hefur tafist vegna seinkunar á afhendingu varahluta og ljóst er að skipið verður ekki komið aftur í fullan rekstur eins fljótt og vonir stóðu til. Þetta kom fram á fundi fulltrúa Herjólfs með forsvarsmönnum hollenska verkstæðisins Emri, þar sem rafmótor skipsins er í viðgerð. Upphaflega var gert ráð fyrir að viðgerðinni […]

Standa þarf vörð um hafrannsóknir

Sjonum DSC 7447 Min

Hafrannsóknastofnun birti í morgun ráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Niðurstöðurnar fela í sér lækkun í ráðgjöf fyrir nokkrar af mikilvægustu nytjategundum okkar, þar á meðal þorsk, ýsu, ufsa og síld. Í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar lækkar ráðlagður afli þorsks um 1% og verður 201.674 tonn á næsta fiskveiðiári. Þá lækkar ráðgjöf fyrir ýsu um 20% í […]

Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum

Laxey greinir frá því að stórseiðahús félagsins sé komið í rekstur eftir að flutningi seiða í húsið lauk 5. júní. Að sögn félagsins markar það mikilvægan áfanga í uppbyggingu fyrirtækisins og styrkir framleiðslugetu þess til framtíðar. Samkvæmt upplýsingum frá Laxey voru fyrstu seiðin flutt úr seiðastöð félagsins í nýja stórseiðahúsið þann 27. maí. Flutningi alls […]

Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu

Í dag kynnti Hafrannsóknastofnun úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lagt er til aflamark fyrir á annan tug stofna á grundvelli langtímamarkmiða íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu.  1 % lækkun aflamarks þorsks Hafrannsóknastofnun ráðleggur 1 % lækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2026/2027. Fylgir sú ráðgjöf aflareglu íslenskra stjórnvalda. Ráðlagður heildarafli lækkar úr 203 […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.