Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun

Þrjú tilboð bárust í smíði nýs sviðs á Vigtartorgi þegar opnað var fyrir þau þann 18. júní síðastliðinn. Lægsta tilboðið hljóðaði upp á tæpar 52,9 milljónir króna og er rúmum 10,6 milljónum yfir kostnaðaráætlun verksins. Fram kemur í bókun framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja að kostnaðaráætlun hafi verið 42.237.000 krónur. Tilboðin voru eftirfarandi: SA Smíðar ehf. […]

Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar

Formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartozsek, hefur undanfarið haldið því fram á samfélagsmiðlum að aðild Íslands að ESB gæti leitt til verulegrar lækkunar matvælaverðs. Hefur hann gengið svo langt að halda því fram að verð á matvörum og skyndibitum, svo sem tilteknum vefjum á veitingastöðum, gæti lækkað um allt að 25%. Sem hagfræðingur með áralangan áhuga á […]

Fiskibátur vélarvana við Vestmannaeyjar

Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út klukkan 10 í morgun þegar fiskibáturinn Veiga VE varð vélarvana suðvestan við Hellisey. Björgunarbáturinn Þór hélt þegar af stað úr höfn og kom bátnum til aðstoðar. Veiga VE var síðan tekin í tog og gekk aðgerðin vel fyrir sig. Bátarnir komu til hafnar um tveimur og hálfri klukkustund síðar þar […]

Úti er ævintýri

MyndGJÁ

Við hjónin ákváðum að fara í brúðkaupsferð til Ítalíu árið 2017. Í skipulagningu náði ég að sannfæra hana um að ég mætti alfarið bóka gistingarnar og var planið mitt að bóka ekkert hótel, heldur einungis AirBnb gistingar og búa til ævintýri. Konan mína var ekkert hrifin. Hún gerði sitt allra besta til að ýta mér […]

Áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og kerfils

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur tekið til umræðu útbreiðslu ágengra gróðurtegunda í Eyjum, einkum lúpínu og kerfils, og vill grípa til aðgerða til að vernda viðkvæm vistkerfi og jarðminjar. Fram kemur í bókun ráðsins að töluverð útbreiðsla hafi orðið bæði í Gamlahrauni og Eldfellshrauni. Undanfarin ár hafi verið reynt að takmarka útbreiðslu lúpínu í Gamla […]

Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé

Mynd/Laxey

Laxey hefur lokið 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði til fjármögnunar næsta áfanga í uppbyggingu félagsins í Vestmannaeyjum. Eftirspurn eftir hlutum í útboðinu var verulega umfram framboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Upphaflega var stefnt að því að sækja 5,8 milljarða króna í nýtt hlutafé. Langstærstur hluti fjármögnunarinnar kom frá núverandi hluthöfum félagsins, en að […]

Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt

default

Vinna við þriðja áfanga grjótleitar á Haugasvæðinu er komin á fullt skrið og hefur svæðið nú tekið á sig mynd virks framkvæmdasvæðis, líkt og fjallað var um hér á vef Eyjafrétta um helgina. Í þessu myndbandi, sem Halldór B. Halldórsson tók upp í gær, má sjá hvernig framkvæmdirnar standa nú og umfang þeirrar vinnu sem […]

Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst

FIV 20201012 173231

Innritun fyrir komandi skólaár í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum er lokið og ljóst er að skólinn verður þétt setinn þegar kennsla hefst í ágúst. Mikill áhugi hefur verið á námi við skólann og fagna stjórnendur þeirri þróun. Að þessu sinni reyndist ekki unnt að veita öllum umsækjendum skólavist. Þeir sem ekki fengu inni en hafa áfram […]

Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta

Heimaklettur er eitt helsta kennileiti Vestmannaeyja og vinsæll áfangastaður jafnt heimamanna sem ferðafólks. Í nýju myndbandi Halldórs B. Halldórssonar fær kletturinn að njóta sín í allri sinni dýrð, en um leið vekur myndbandið athygli á ástandi gönguleiðarinnar upp á klettinn. Árið 2024 fékk Vestmannaeyjabær rúmlega ellefu milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að ráðast […]

Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld

ÍBV tekur á móti Breiðabliki á Hásteinsvelli klukkan 18:00 í kvöld í Bestu deild kvenna. Breiðablik situr í öðru sæti deildarinnar með 18 stig eftir átta umferðir en ÍBV er í fjórða sæti með 14 stig. Með sigri geta Eyjakonur minnkað bilið í aðeins eitt stig og styrkt stöðu sína verulega í baráttunni um efstu […]

Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

ÍBV tekur á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í kvöld klukkan 18:00 þegar 11. umferð Bestu deildar karla heldur áfram. Leikurinn getur haft veruleg áhrif á stöðu liðanna í neðri hluta deildarinnar. Stjarnan situr í 7. sæti með 11 stig eftir ellefu leiki en ÍBV er í 10. sæti með 8 stig eftir tíu leiki. Með […]

Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu

Vinna við þriðja áfanga grjótleitar á Haugasvæðinu er hafin af fullum krafti og hefur svæðið nú formlega tekið á sig mynd virks framkvæmdasvæðis. Þetta kemur fram í upplýsingum sem birtar voru á samfélagsmiðlum Vestmannaeyjahafnar fyrr í vikunni. Verktakar hófu jarðvegsvinnu á svæðinu í vikunni og markar það upphaf nýs kafla í rannsóknar- og undirbúningsvinnu vegna […]

Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Í nýju myndbandi frá Halldóri B. Halldórssyni er sjónum beint að þeirri íbúðauppbyggingu sem nú stendur yfir í Vestmannaeyjum. Halldór heimsækir tvö af fjölbýlishúsunum sem eru í byggingu. Annars vegar á Sólhlíðinni og hins vegar við Áshamar, þar sem framkvæmdir hafa verið áberandi undanfarna mánuði. Þá kemur hann einnig við á Stakkagerðistúninu og sýnir hvernig […]

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi

Fyrstu kjarnasýnin hafa nú komið upp úr rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi, sem er hluti af þeim jarðfræðirannsóknum sem unnið er að vegna mögulegra Eyjaganga. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Eyjaganga. Samkvæmt upplýsingum frá Eyjagöngum náðist mikilvægur áfangi í dag þegar borinn fór í gegnum sandlögin á svæðinu og niður í fast berg. […]

Hélt að verið væri að gera grín í sér

lotto

Einn heppinn og tryggur áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn er skattfrjáls og kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að það hafi tekið dágóða stund fyrir vinningshafann […]

Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“

Tónlistarmaðurinn Jóhannes Jensson hefur sent frá sér nýtt lag undir listamannsnafninu Útlaginn. Í samtali við Eyjafréttirr segir hann að um sé að ræða draum sem loksins hafi ræst eftir langt og tilfinningaríkt ferli. „Loksins, eftir langa bið, er lítill draumur orðinn að veruleika,“ segir Jóhannes. Hann segir erfitt að lýsa því með orðum hvað það […]

Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd

Uppbyggingin hjá Laxey heldur áfram af fullum krafti í Viðlagafjöru og breytingarnar á svæðinu verða sífellt sýnilegri. Í nýju myndbandi frá Halldóri B. Halldórssyni er komið við á athafnasvæði Laxeyjar þar sem fylgst er með framvindu framkvæmda og þeirri miklu uppbyggingu sem þar á sér stað. Verkefnið er eitt það umfangsmesta í atvinnuuppbyggingu Vestmannaeyja á […]

Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum

Bergey 20251009 102412

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir um helgina og í byrjun vikunnar. Vestmannaey landaði fullfermi af karfa í Grindavík á sunnudaginn og síðan blönduðum afla í Eyjum strax á mánudag. Bergey landaði fullfermi af blönduðum afla í Eyjum á þriðjudag. Rætt er stuttlega við skipstjórana um aflabrögðin á vef Síldarvinnslunnar. Egill Guðni Guðnason, […]

Krakkafjör í Hvítasunnukirkjunni

Það eru góðir gestir í Vestmannaeyjum þessa dagana. James Joransen ásamt fimm öðrum ætla að hafa prógramm fyrir okkur, sérstaklega fyrir börn eldri en 6 ára. Það verður Havaí þema kl 19.00 í kvöld með kvikmynd og tilheyrandi. James hefur starfað við sumarbúðirnar að Ástjörn, hann hefur staðir fyrir ráðstefnu um rithöfundinn C.S. Lewis og […]

​Byggjum upp framtíðina

Nú hefur nýr meirihluti tekið við – meirihluti Sjálfstæðisflokksins. Ég vona að þessi góði hópur sem kosinn var til að fara með völdin taki sér það vald sem bæjarbúar fólu þeim, en láti ekki ​e​mbættismenn taka sér of mikið vald í hendur. ​Kjörnir fulltrúar​: ykkur var falið valdið, setjið mark ykkar á stjórnun bæjarins. Það sama var upp […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.