Ísfélagið kemur að nýrri lausn til að verjast laxalúsinni

Norska tæknifyrirtækið LiceDefence, sem Ísfélagið á um 30% hlut í, hefur þróað nýstárlega vörn gegn laxalús. Kerfið notar ljósagildrur sem settar eru upp í kringum sjókvíarnar til að eyða laxalúsarlirfum áður en þær ná að festa sig á laxinum.  44% minna lúsasmit  Ný rannsókn Dýralæknastofnunar Noregs (Veterinærinstituttet) sýnir að gildrurnar geta minnkað lúsasmit um allt að 44% án þess að hafa neikvæð áhrif á fiskinn í kvíunum. Niðurstöðurnar hafa […]

Ottó N. Þorláksson dreginn til hafnar eftir vélarbilun

Sigurvin dregur Ottó N Þorláksson

Togarinn Ottó N. Þorláksson frá Vestmannaeyjum varð vélarvana undan Siglufirði í kvöld og var björgunarskipið Sigurvin kallað út á mesta forgang til að koma skipinu til aðstoðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Rétt fyrir klukkan 19 bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá áhöfn Ottós um að skipið væri aflvana og hættulega nálægt landi. […]

Bergey með blandaðan afla

sjomadur_bergey_opf_22

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum mánudaginn 22. júní og aftur í gær. Rætt er stuttlega við Jón Valgeirsson skipstjóra á vefsíðu Síldarvinnslunnar og er hann spurður um veiðarnar. „Við lönduðum fullfermi mánudaginn 22. júní en héldum síðan ekki til veiða á ný fyrr en á fimmtudag. Síðan lönduðum við fullfermi á […]

Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn

Binni Opf

Alþingismaðurinn Sigurjón Þórðarson skrifar grein á vísi.is þar sem hann hefur áhyggjur af áhrifum aðildar að Evrópusambandinu á íslenskan sjávarútveg og sérstaklega sjávarbyggðir. Ég er honum sammála um að líklega verði afleiðingarnar miklar og neikvæðar, ekki bara fyrir sjávarbyggðir, heldur landið allt þegar til lengdar lætur. Aðal ástæða þess að við erum sammála er, eins […]

Nýr áfangi í rannsóknum Eyjaganga að hefjast

Hafsbotnsmælingar vegna fyrirhugaðra Eyjaganga hefjast í þessari viku þegar sjómælingaskipið Baldur kemur til Vestmannaeyja. Mælingarnar eru mikilvægur liður í áframhaldandi rannsóknum á mögulegri vegtengingu milli lands og Eyja. Í meðfylgjandi myndbandsviðtali ræðir Halldór B. Halldórsson við Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga, um rannsóknirnar og tilgang þeirra. Haraldur útskýrir hvernig hljóðendurvarpsmælingar fara fram, hvaða upplýsingum þær eiga […]

Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað

Fyrirhuguð afmælishátíð Landhelgisgæslu Íslands í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1. júlí hefur verið frestað vegna verkefna Landhelgisgæslunnar í vikunni. Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, samskiptastjóra Landhelgisgæslunnar helgast það af verkefnum Landhelgisgæslunnar í vikunni. „Því þurfum við að aflýsa fyrirhuguðum afmælisviðburði. Við viljum koma á framfæri kærum þökkum til Eyjamanna sem hafa verið einstaklega liðlegir að aðstoða okkur við […]

Litla-Hraun jafnað við jörðu

Niðurrif er hafið á húsinu Litla-Hrauni við Reglubraut, sem er skráð að Vesturvegi 17b. Húsið hefur um árabil staðið autt og verið í afar slæmu ásigkomulagi. Litla-Hraun var reist árið 1911 og telst því meðal eldri íbúðarhúsa í Vestmannaeyjum. Húsið var endurbætt árið 1960 og á sér langa sögu í bænum. Meðal annars var það […]

Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyjabæjar mótmælir harðlega þeirri stöðu að stór hluti barna sem lokið hafa 7. bekk geti ekki tekið þátt í vinnuskóla bæjarins vegna gildandi laga um vinnu barna. Þetta kemur fram í bókun ráðsins, sem var tekin fyrir í framhaldi af svari frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Þar kemur skýrt fram að ekki sé […]

Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur hafnað erindi Terra um breytingar á gjaldskrá fyrirtækisins. Í fundargerð ráðsins kemur fram að Terra hafi óskað eftir breytingum á gjaldskrá samkvæmt minnisblaði sem lagt var fyrir fundinn. Ráðið samþykkti að hafna erindinu og fól jafnframt sviðsstjóra að ræða við bréfritara vegna málsins. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvaða breytingum […]

Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja

Í vikunni tilkynnti Laxey að félagið hefði lokið farsælu hlutafjárútboði og undirritað alþjóðlegt sambankankalán. Samkvæmt Bændablaðinu er um að ræða sambankalán uppá 220 milljónir evra eða tæplega 32.milljarða króna og  heildarfjármögnun þriðja áfanga með hlutafé rúmlega 38 milljarðar. Það sem gerir þennan áfanga enn merkilegri er að félagið gerir nú ráð fyrir að þetta verði í […]

ÍBV sækir botnlið FH heim

ÍBV sækir FH heim á Kaplakrikavöll síðdegis í dag, en alls eru fjórir leikir á dagskrá Bestu deildar karla í dag. Flautað verður til leiks klukkan 17:00 í hafnarfirði og eru dýrmæt stig í húfi fyrir bæði lið. ÍBV er í 9. sæti deildarinnar með 11 stig eftir ellefu leiki, en FH rekur lestina með […]

Breytt siglingaáætlun Baldurs næstu daga

Breytingar hafa verið gerðar á siglingaáætlun Baldurs sunnudaginn 28. júní og mánudaginn 29. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna falla niður þrjár ferðir frá Vestmannaeyjum á sunnudag, klukkan 08:15, 10:45 og 20:45, auk þriggja ferða frá Landeyjahöfn klukkan 09:30, 12:00 og 22:00. Jafnframt falla niður allar þrjár áætlaðar ferðir […]

Áfram ÍBV

Ég er ekki maðurinn sem situr á hverjum handbolta- eða fótboltaleik. Ég fylgist lítið með íþróttum og hef aldrei haft sérstakan áhuga á ensku knattspyrnunni. En það þýðir ekki að ég hafi ekki skoðun á ÍBV. Þvert á móti. ÍBV er ekki bara íþróttafélag. Það er ein af grunnstoðum samfélagsins í Vestmannaeyjum. Þar fer fram […]

Varðskip danska sjóhersins í heimsókn í Eyjum

Danska varðskipið HDMS Thetis (F357) kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun. Ekki liggur fyrir af hvaða tilefni skipið heimsækir Eyjar, en það hefur undanfarnar vikur verið við verkefni á Norður-Atlantshafi og kom meðal annars við í Reykjavík fyrr í þessum mánuði. Thetis tilheyrir danska sjóhernum og er eitt fjögurra skipa í Thetis-flokknum sem sinna […]

Ríkið gæti komið að Eyjagöngum með ábatagreiðslum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heimsótti í gær athafnasvæði Eyjaganga á Eiðinu þar sem hún kynnti sér framgang rannsókna vegna fyrirhugaðra jarðganga milli lands og Eyja. Meðal þess sem henni var sýnt voru kjarnasýni úr rannsóknarborunum sem þegar hafa farið fram. Forsætisráðherra óskaði eftir fundinum Í samtali við Eyjafréttir segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, að forsætisráðherra hafi […]

Íslendingur vann tæpar 65 milljónir í EuroJackpot

Heppinn Íslendingur var með 3. vinning í EuroJackpot í útdrætti kvöldsins og hlýtur tæpar 65 milljónir króna í vinning. Þrír miðaeigendur voru með réttan leik fyrir 3. vinning og skipta þeir vinningnum á milli sín. Auk íslenska miðans voru hinir tveir keyptir í Þýskalandi. Stærsti vinningurinn gekk einnig til Þýskalands, þar sem einn miðaeigandi var […]

Hafsbotnsmælingar vegna Eyjaganga hefjast í næstu viku

Nýr áfangi í rannsóknum vegna fyrirhugaðra jarðganga milli lands og Vestmannaeyja hefst í næstu viku þegar hafsbotnsmælingar fara af stað í Eyjasundi. Mælingarnar eru unnar á vegum Eyjaganga í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands og marka upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu. Fram kemur á vef Eyjaganga að áætlað sé […]

Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag

Viðgerð á rafmótor Herjólfs miðar vel, að því er fram kemur í nýrri stöðufærslu frá Herjólfi ohf. Tafir á afhendingu koparvírs urðu hins vegar til þess að viðgerðin dróst á langinn. Nú er unnið af fullum krafti á verkstæði í Hollandi og stefnt að því að henni ljúki um miðjan júlí. Frá þessu greinir Ólafur […]

Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma

Sorpa Ruslagamur Tms 20250227 142322

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur hafnað beiðni Terra um að breyta opnunartíma móttökustöðvar fyrirtækisins við Eldfellsveg. Arngrímur Sverrisson og Daníel Edward Jónsson, starfsmenn Terra, sátu fund ráðsins þegar málið var tekið fyrir. Terra lagði fram tvær tillögur að breytingum á opnunartíma. Í fyrri tillögunni var lagt til að opið yrði alla virka daga frá klukkan […]

Grjóthrun við Friðarhöfn

Grjót féllu úr fjallshlíðinni við botn Friðarhafnar síðdegis í gær, fóru yfir gangstétt og enduðu á akveginum vestan við seiðastöð Laxeyjar. Samkvæmt upplýsingum frá staðkunnugum virðist grjóthrunið hafa átt upptök sín í Langabergi, sem er á milli Skiphella og Klifsins. Atvikið varð eftir að vinnudegi lauk hjá Laxey en á daginn leggja starfsmenn fyrirtækisins jafnan […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.