Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð

Goslokahátíðin hélt áfram af fullum krafti í Vestmannaeyjum í dag þar sem fjölbreytt dagskrá bauð upp á afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Halldór B. Halldórsson var á ferð um bæinn með myndavélina og tók saman þriggja mínútna myndband sem fangar stemninguna á deginum. Meðal annars leit hann við á dorgveiðikeppni SJÓVE á Básaskersbryggju, heimsótti Björnis brunabangsa […]

Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar

Blíðskaparveður og fjölbreytt dagskrá settu svip sinn á annan dag Goslokahátíðar í Vestmannaeyjum í gær. Um allan bæ var líf og fjör þar sem heimamenn og gestir nutu listasýninga, tónlistar, markaða og annarra viðburða sem boðið var upp á frá morgni og fram á kvöld. Ljósmyndari Eyjafrétta heimsótti þrettán viðburði víðs vegar um Vestmannaeyjar yfir […]

Forsendur dómsins verða yfirfarnar

radhustrod_ráðhús_merki_cr

Vestmannaeyjabær segir að forsendur dóms Héraðsdóms Suðurlands í vatnslagnarmálinu verði nú skoðaðar vandlega áður en tekin verði ákvörðun um næstu skref. Bærinn segir dóminn viðamikinn og varða flókið lögfræðilegt álitaefni en tjáir sig að öðru leyti ekki um niðurstöðuna að svo stöddu. Tilkynningu bæjaryfirvalda má lesa í heild sinni hér að neðan. Dómur kveðin upp […]

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku

ÍBV tekur á móti Val á Hásteinsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 og stefna Eyjamenn á að halda áfram góðu gengi sínu í Bestu deild karla. Eyjamenn fara inn í leikinn í 9. sæti deildarinnar með 12 stig eftir tólf leiki. Í síðustu umferð gerði ÍBV 1:1 jafntefli við FH í Kaplakrika […]

Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð

Sól, logn og lífleg Goslokahátíð. Halldór B. Halldórsson fór með myndavélina vítt og breitt um Vestmannaeyjar í dag og fangar stemninguna á einum fallegasta degi sumarsins hingað til. Myndbandið sýnir mannlífið um bæinn, hafnarsvæðið og stóra skemmtiferðaskipið sem liggur við ytri höfnina og vekur verðskuldaða athygli. (meira…)

Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært

Héraðsdómur Suðurlands kvað í dag upp dóm í skaðabótamáli sem Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn höfðuðu vegna skemmda á neysluvatnslögninni NSL-3 og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn eftir að akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 festist í lögnunum í nóvember 2023. Dómurinn sýknaði Vinnslustöðina hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. af kröfum stefnenda. Jafnframt var viðurkennt að Huginn ehf. […]

Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra

Ágreiningur skapaðist á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja um heimsókn forsætisráðherra til Vestmannaeyja þann 26. júní síðastliðinn. Bæjarfulltrúar Eyjalistans gagnrýna að hafa ekki verið boðaðir á fund sem haldinn var í heimsókninni en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja fundinn hafa verið að frumkvæði skrifstofu forsætisráðherra en ekki á vegum Vestmannaeyjabæjar. Málið kom upp við yfirferð bæjarstjóra á helstu verkefnum […]

Vinnupása skilaði vinning

Eurojackpot Vel

Rúmlega fimmtugur karlmaður, sem spilar reglulega í leikjum íslenskrar Getspár, neyddist til að taka örlitla pásu á annasömum vinnudegi vegna hægagangs samstarfs félaga. Á meðan hann beið heyrði hann Eurojackpot-auglýsingu í útvarpinu og var ekki lengi að grípa símann, opna lottó appið og kaupa einn miða með sjálfvali. Töfin átti heldur betur eftir að skila […]

Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag

Á miðvikudaginn kom út nýtt lag með Patrek „PBT“ Atlasyni söngvara. Í laginu kveður heldur betur við nýjan tón en lagið er opinbert Þjóðhátíðarlag, samið og sungið á kassagítar sem ekki hefur verið mest notaða hljóðfærið í hans lögum til þessa. Lagið samdi hann með Arnari Dór Arnarssyni, Anya Shaddock og Hákoni Guðna Hjartarsyni sem […]

Lokasprettur í forsölu Þjóðhátíðarmiða fyrir félagsmenn

Forsala á Þjóðhátíðarmiðum fyrir félagsmenn ÍBV stendur nú yfir og lýkur henni á miðnætti á morgun, föstudaginn 3. júlí. Félagsmenn eru hvattir til að tryggja sér miða á dalurinn.is. Eldri borgarar á aldrinum 67–70 ára geta keypt Þjóðhátíðarmiða á sérkjörum fyrir 15.990 krónur. Eldri borgarar sem jafnframt eru félagsmenn ÍBV geta einnig nýtt sér félagsmannaafsláttinn […]

Helgarskákmót og afmælisblað í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja

Skák Lagf 25

Þann 29. ágúst næstkomandi verða liðin 100 ár frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja (TV). Í tilefni þessara merku tímamóta stendur félagið fyrir tveimur öflugum skákmótum helgina 29.–30. ágúst í Vestmannaeyjum. Atskákmót verður haldið laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00–17:30. Teflt verður með tímamörkunum 15 mínútur á skák auk fimm sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Sunnudaginn 30. ágúst […]

Komnir í þriggja vikna stopp: „Menn njóta þess í botn”

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE er kominn í þriggja vikna frí. Dyttað verður að skipinu í fríinu og áhöfnin mun njóta góðra daga. Heimasíða Síldarvinnslunnar segir frá. Fram kemur að slegið hafi verið á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar skipstjóra og var hann fyrst spurður um síðustu veiðiferðir skipsins. „Við lönduðum fullfermi í Vestmannaeyjum 23. júní og […]

Frumraun Ennisrakaðra á spænsku

Það eru rúmir þrír áratugir síðan hljómsveitin Ennisrakaðir steig sín fyrstu skref, en nú er komið að útgáfu sjöundu hljóðversplötu sveitarinnar, Casa del Publico. Útgáfunni verður fagnað með tónleikum á Goslokahátíð í kvöld, fimmtudaginn 2. júlí.  Forsprakki sveitarinnar, Elías Bjarnhéðinsson, segir að nýja platan marki ákveðin tímamót í sögu Ennisrakaðra.  „Þetta er fyrsta platan okkar þar sem við […]

Þegar siðareglum er beitt til að forðast umræðu

Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar lögðu bæjarfulltrúar Miðflokksins fram bókun undir dagskrárliðnum um ráðningu bæjarstjóra. Þar var þeirri afstöðu lýst að tímabært væri að skipta um forystu sveitarfélagsins í ljósi þeirra upplýsinga sem komið hafa fram um slæman starfsanda og framkomu gagnvart starfsfólki. Jafnframt var lögð fram tillaga um að Trausti Hjaltason yrði ráðinn bæjarstjóri. […]

Fyrsta tölublað Eyjafrétta sem kemur eingöngu út á vefnum

Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út. Blaðið markar tímamót, því það er í fyrsta sinn sem reglulegt tölublað kemur eingöngu út á vefnum. Frá og með þessu verður megináherslan á rafræna útgáfu, samhliða því sem Eyjafréttir hyggjast gefa út þrjú til fjögur vegleg prentblöð á ári. Á forsíðu blaðsins eru Orkumótsmeistarar FH árið 2026, en […]

Umferðin tók vel við sér í júní

Farþegaflutningar með Herjólfi jukust í júní 2026 samanborið við sama mánuð í fyrra en alls voru fluttir um 76 þúsund farþegar, sem er tæplega 5% aukning frá júní í fyrra. Bílaflutningar jukust einnig en alls voru fluttir um 18.600 bílar, eða 10,4% fleiri en í júní á síðasta ári. Siglt var með tveimur skipum hluta […]

Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir í Pálsstofu á Goslokahátið

Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir opnar á föstudag í Safnahúsinu en þar sýnir Árni Vilhjálmsson, myndlistarmaður verk sín. Árni er ekki ókunnugur Eyjum en þær hefur hann heimsótt um árabil, bæði heimsótt vini en líka spilað á Þjóðhátið með hljómsveitinni FM Belfast. „Það er ótrúlegt hve margir sem ég hef kynnst og unnið með, […]

Samfélag í sókn þarf samgöngur sem duga

Mynd/TMS

Undanfarnar vikur hafa verið óvenjulegar í samgöngum milli lands og Eyja. Bilun í Herjólfi hefur kallað á breyttar lausnir og Baldur sinnt hluta siglinganna. Áætlanir hafa tekið breytingum oftar en nokkur hefði kosið. Það hefur reynt á starfsfólk Herjólfs, Vegagerðarinnar og alla þá sem komið hafa að því að halda samgöngunum gangandi. En í þessum […]

Ábyrgð í verki: Vestmannaeyjabær styður við verðbólgumarkmiðið

eythor_h_cr

Með tillögu inn í fjárhagsáætlanagerð um að  gjaldskrár í A-hluta hækki aðeins um 2,5% leggur Vestmannaeyjabær sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi, vernda hag heimila og fyrirtækja og stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Við styðjum þannig við verðbólgumarkmið Seðlabankans til þess að samningar haldi. Þegar allir þurfa að leggja sitt af mörkum Verðbólga og […]

Bæjarstjórn fundar í dag – samgöngur, lögreglumál og vinnuskólinn á dagskrá

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til fundar í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 1. júlí, og hefst fundurinn klukkan 14:00. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu hér að neðan. Meðal helstu mála á dagskrá eru umræður um samgöngumál, fyrirhugaða fækkun lögregluembætta og samkomulag ríkis og sveitarfélaga um þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Einnig mun bæjarstjóri fara […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.