Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Þó að kosningarnar í ágúst fjalli eingöngu um hvort halda skuli áfram aðildarumsókn þá hverfist umræðan um Evrópusambandið gjarnan um efnahagsmuni, tolla, markaðsaðgang, vexti og verðbólgu. Það er sannarlega eðlilegt að þessi atriði séu skoðuð og metin þegar tekin er afstaða til mögulegrar aðildar Íslands að ES. En Evrópusambandið (ES) er miklu meira og flóknara […]

Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu

lundaveidi

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði frá 23. júlí til 15. ágúst, þrátt fyrir að Náttúrustofa Suðurlands hafi mælt gegn öllum veiðum á þessu ári vegna áframhaldandi hnignunar lundastofnsins. Ráðið segir hins vegar mikilvægt að viðhalda þeirri menningu sem tengist lundaveiðum, enda verði veiðarnar takmarkaðar og stundaðar af ábyrgð. Fyrir ráðinu lágu […]

Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ

Sorpa Ruslagamur Tms 20250227 142322

Terra umhverfisþjónusta hefur sagt upp þjónustusamningi sínum um úrgangsþjónustu fyrir Vestmannaeyjabæ. Uppsögnin var send bænum 29. júní og gildir samkvæmt samningi með sex mánaða fyrirvara. Verði ekki samið um annað rennur samningurinn út 31. desember 2026. Frá þessu var greint á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja í gær. Í kjölfar uppsagnarinnar hefur ráðinu verið lögð […]

Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti

Þjóðhátíðargestir geta nú sótt nýtt app, Dalurinn, sem verður miðpunktur upplýsinga og þjónustu fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Appið er nú aðgengilegt bæði í App Store og Google Play og verður stöðugt uppfært eftir því sem nær dregur hátíðinni. Í Dalnum verður dagskrá Þjóðhátíðar alltaf við höndina. Gestir geta skoðað alla dagskrána, merkt við sín uppáhaldsatriði og búið til sína […]

Síld farin að hrygna suður af landinu

Bergey 20251009 102412

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði 60 tonnum í Grindavík á mánudagsmorgun og aftur 60 tonnum í Eyjum í gær. Rætt er stuttlega við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar. „Það er í sjálfu sér ekki mikið að frétta. Við lönduðum á mánudaginn vegna þess að það vantaði fisk í vinnsluna hjá Vísi. Aflinn þá var […]

Herjólfur III gæti orðið haffær í lok júlí

Herjólfur III gæti orðið tilbúinn til siglinga fyrir lok júlímánaðar gangi áætlanir eftir. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er vinna við skipið vel á veg komin. Á mánudag er fyrirhugað að framkvæma deployment test á björgunarbúnaði skipsins. Prófið felst í því að björgunarbúnaðurinn er leystur út, eða „sprengdur út“, til að sannreyna að hann starfi rétt. […]

Öll börn eiga að sitja við sama borð

Það á ekki að skipta máli hvort barn eigi afmæli í maí eða september þegar kemur að því að fá fyrstu kynni af atvinnulífinu. Í Vestmannaeyjum hefur vinnuSKÓLINN um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í uppeldi og samfélagsþátttöku ungmenna. Þar læra börn ábyrgð, stundvísi, samvinnu og virðingu fyrir vinnu. Fyrir mörg er þetta fyrsta reynslan af […]

Sólmyrkvinn sést vel í Vestmannaeyjum 12. ágúst

Vestmannaeyjar verða einn besti staðurinn á Íslandi til að fylgjast með sólmyrkvanum sem verður miðvikudaginn 12. ágúst. Þótt almyrkvinn sjálfur nái ekki til Eyja verður áhrifamikið að fylgjast með þegar tunglið hylur um 99,4% af þvermáli sólarinnar þegar mest verður.  Sólmyrkvinn hefst í Vestmannaeyjum klukkan 16:49, nær hámarki klukkan 17:50 og lýkur klukkan 18:49.  Þegar myrkvinn verður mestur mun […]

Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju

herjolf_bjarnarey

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi sínum sameiginlega bókun þar sem lögð er áhersla á að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Segir í bókuninni að reynslan undanfarinna vikna hafi sýnt með skýrum hætti hversu mikilvægt sé að tryggja öryggi og stöðugleika í samgöngum við Eyjar. Málið var tekið fyrir í kjölfar yfirferðar Írisar […]

ÍBV sækir Víking heim á morgun

Keppni í Bestu deild kvenna hefst á ný á morgun, fimmtudag, eftir hlé vegna lokakeppni Evrópumóts U19-landsliða. ÍBV sækir þá Víking Reykjavík heim á Víkingsvöll þar sem flautað verður til leiks klukkan 18:00. Eyjakonur sitja í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu umferðir en Víkingur er í sjöunda sæti með 10 stig. Með […]

Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun

Viðgerðir á rafmótor Herjólfs IV eru á áætlun, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Gert er ráð fyrir að mótorinn verði sendur með skipi frá Hollandi 13. júlí. Þegar mótorinn berst til landsins verður hann settur í Herjólf. Að uppsetningu lokinni er gert ráð fyrir að ferjan taki aftur upp hefðbundnar siglingar með fullu afli. Í tilkynningu […]

Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum

Siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hafa gengið erfiðlega í dag vegna mikillar ölduhæðar við Landeyjahöfn. Þegar þetta er skrifað hefur aðeins tekist að sigla eina ferð. Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum klukkan 7:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45. Eftir það hafa allar áætlaðar ferðir verið felldar niður. Fyrr í dag var tilkynnt að ferðir Herjólfs klukkan […]

Myndasyrpa frá göngumessu

Göngumessa er fastur liður á Goslokahátíð og var hún vel sótt að þessu sinni enda skörtuðu Eyjarnar sínu fegursta. Gengið var frá Landakirkju upp í gíg Eldfells þar sem séra Guðmundur Örn Jónsson og Guðni Hjálmarsson stýrðu helgistund. Kitty stýrði söng og lék í messunni ásamt félögum úr Lúðrasveit Vestmannaeyja. Að henni lokinni var haldið […]

Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hin 16 ára gamla Edda Björk Guðnadóttir þegar skapað sér nafn í rallýcrossi á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún lagt ómælda vinnu í akstursíþróttina, þar sem metnaður, þrautseigja og fjölskyldusamstaða skipta sköpum. Í nýju myndbandi Eyjafrétta ræðir Halldór B. Halldórsson við Eddu Björk og föður hennar, Guðna Grímsson, um hvernig […]

Vilja herða reglur við Surtsey

Surtsey hefur um áratugaskeið verið eitt mikilvægasta rannsóknarsvæði Íslands þar sem vísindamenn hafa fylgst með því hvernig líf nemur nýtt land með sem minnstum áhrifum manna. Nú liggja fyrir drög að nýrri stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið sem fela í sér hertari reglur um umferð um svæðið, meðal annars gagnvart farþegaskipum, minni bátum og drónum.  Drögin […]

Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi

Herjólfur stefnir nú á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi í dag vegna veðurskilyrða við Suðurland. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 7:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45. Ferðir skipsins klukkan 8:15 og 9:30 falla hins vegar niður. Farþegar sem eiga bókað í þær ferðir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs […]

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland sem gildir frá klukkan 6 til 14 á morgun, þriðjudag. Búast má við austan hvassviðri og mjög snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum sem geta haft áhrif á umferð um svæðið. Veðurstofa Íslands varar við austan hvassviðri, 13–18 m/s, á Suðurlandi frá klukkan 6 til 14 á þriðjudag. […]

Blessuð sé minning starfshópsins

Herj Heimakl

Það hefur lengi verið áhugamál mitt að velta fyrir mér hvernig megi bæta aðgengi fólks að náttúruperlum Heimaeyjar. Á árum mínum í stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja ræddum við ítrekað ýmis verkefni sem gætu bætt aðgengi að náttúru eyjanna og gert upplifun íbúa og gesta betri. Í framhaldi af þeim umræðum sendu samtökin erindi til Vestmannaeyjabæjar þar sem […]

Skipaumferð setti svip á höfnina í dag

Skemmtiferðaskipið Volendam frá Holland America Line lá við akkeri rétt utan við innsiglinguna til Vestmannaeyja í morgun áður en það tók stefnuna inn til hafnar. Skipið er á hringferð um Ísland, Grænland og Kanada og var á áætlun í Vestmannaeyjum í dag. Ljósmyndari Eyjafrétta, Óskar Pétur Friðriksson, var á ferðinni og myndaði skipið þar sem […]

Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu

heradsdomur_sudurlands-2.jpg

Þótt niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands hafi verið sú að sýkna Vinnslustöðina hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. af kröfum Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðarans snerist málið í raun um þrjú meginálitaefni sem dómurinn þurfti að skera úr um áður en niðurstaðan lá fyrir. Í dómnum er skorið úr um hver teljist útgerðarmaður Hugins VE 55. Því næst […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.