Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Ákvörðunin var tekin í dag eftir að endanleg krufningsskýrsla barst lögreglu fyrir helgi og farið hafði verið yfir hana. Þetta staðfestir Rúnar Þór Steingrímsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurlandi, í svari við fyrirspurn Eyjafrétta. „Lögreglan á Suðurlandi hætti í dag rannsókn á andlátsmálinu […]
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp

Baldur tók við siglingum milli lands og Eyja í morgun, mánudaginn 20. júlí, á meðan viðgerður rafmótor er settur aftur í Herjólf IV. Herjólfur hélt til Þorlákshafnar eftir síðustu ferð sína í gærkvöldi þar sem mótorinn verður settur í ferjuna. Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi ohf. er áætlað að verkið taki allt að fjóra sólarhringa. Á […]
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar

Laxey boðar íbúa Vestmannaeyja og aðra áhugasama til samráðs- og upplýsingafundar næstkomandi þriðjudag. Þar verður meðal annars farið yfir stöðu uppbyggingar fyrirtækisins, umhverfis- og sjálfbærnimál, fiskheilbrigði og áhrif starfseminnar á samfélagið. Fundurinn verður haldinn í seiðastöð Laxey að Strandvegi 104 þriðjudaginn 21. júlí klukkan 17.00. Í tilkynningu á vef Laxey kemur fram að íbúum Vestmannaeyja, […]
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV

Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í Bestu deildunum í dag. Karlaliðið tekur á móti KA á Hásteinsvelli klukkan 14.00 en tveimur tímum síðar hefja Eyjakonur leik gegn Þór/KA á VÍS-vellinum á Akureyri. Mikilvæg stig í boði á Hásteinsvelli Það er mikið undir þegar ÍBV og KA mætast á Hásteinsvelli. Eyjamenn eru í áttunda sæti […]
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming

Þjónustuþegum í lengdri viðveru fyrir fötluð börn á aldrinum 10 til 16/18 ára í Vestmannaeyjum mun fjölga um helming í haust. Því er þörf á auknu fjármagni til að mæta aukinni þjónustuþörf. Þetta kom fram á síðasta fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja þar sem sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Ráðið samþykkti að þörf væri á […]
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina

Halldór B. Halldórsson var á ferðinni á vestanverðri Heimaey í dag og tók upp meðfylgjandi myndband. Ferðin hefst í gamla hrauninu og þaðan liggur leiðin út á Hamar og um golfvöllinn, þar sem meðal annars glittir í Herjólfsdal. Að lokum er komið við á byggingarsvæðinu við Íþróttamiðstöðina, þar sem unnið er að nýrri viðbyggingu. (meira…)
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund

Stuðningsmaður KFS úr Vestmannaeyjum vann rúmar 700 þúsund krónur á Miðvikudagsseðilinn hjá Íslenskum getraunum. Stuðningsmaðurinn keypti sparnaðarkerfi með fjórum tvítryggðum og fjórum þrítryggðum leikjum sem kostaði 1.872 krónur. KFS, sem leikur núna í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu er samt sem áður næst stærsta félag landsins í sölu getraunaseðla. Sala getrauna er ein stærsta fjáröflun […]
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögu að breyttu hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa sveitarfélagsins. Samkvæmt breytingunum verður starfið skilgreint sem starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa og því fylgir ný starfslýsing. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi ráðsins þar sem sviðsstjóri kynnti hugmyndir að breyttu hlutverki. Markmið starfsins verður að bera faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega […]
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu

Björgunarfélag Vestmannaeyja og Landhelgisgæsla Íslands stóðu fyrir sameiginlegri björgunaræfingu við Vestmannaeyjar í gærkvöldi. Að æfingunni komu þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarbáturinn Þór. Fram kemur á samfélagsmiðlum Björgunarfélags Vestmannaeyja að markmið æfingarinnar hafi verið að þjálfa samhæfingu áhafna við björgunaraðgerðir á sjó. Meðal þess sem æft var voru hífingar milli björgunarbátsins og þyrlunnar. Æfingar af þessu tagi […]
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627

Laugardaginn 18. júlí nk. kl. 13 stendur Sögusetrið 1627 fyrir Tyrkjaránsgöngu. Í ár eru liðin 399 ár frá Tyrkjaráninu illræmda þegar ránsmenn frá Alsír í Norður- Afríku gengu á land í Vestmannaeyjum, drápu, særðu, rupluðu og tóku til fanga liðlega helming íbúa Vestmannaeyja. Ræningjarnir fluttu hátt á þriðja hundruð Eyjamenn til Alsír og seldu þá […]
Einn túr eftir fyrir sumarstopp

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Eyjum á mánudaginn. Rætt er við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra um veiðiferðina á vef Síldarvinnslunnar. „Aflinn var mest ýsa en síðan var þetta einnig ufsi, karfi og þorskur. Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi […]
ÍBV tekur á móti Val í kvöld

ÍBV tekur á móti Val á Hásteinsvelli í kvöld þegar 11. umferð Bestu deildar kvenna heldur áfram. Flautað verður til leiks klukkan 18:00. Eyjakonur eru í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig eftir tíu umferðir og koma til leiks eftir sannfærandi 3:1 útisigur á Víkingi í síðustu umferð. Með sigri geta þær styrkt stöðu sína […]
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa

Viðgerð á rafmótor Herjólfs IV er nú lokið og stefnir ferjan til Þorlákshafnar aðfaranótt mánudags þar sem mótorinn verður settur í skipið. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. er gert ráð fyrir að uppsetning mótorsins taki allt að fjóra sólarhringa. Á meðan verður Herjólfur úr áætlun en ferjan Baldur sinnir átta ferðum á dag milli Vestmannaeyja […]
Óboðnir gestir undir yfirborðinu

Sindri Gíslason, forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands, hefur undanfarin tíu ár stýrt rannsóknum á framandi sjávarlífverum við Ísland. Á þeim tíma hefur þekktum framandi sjávartegundum fjölgað úr 15 í 37 og Vestmannaeyjahöfn orðið einn mikilvægasti vöktunarstaður landsins. Það sem vakti hvað mesta athygli á kynningarfundi um nýja stjórnunar- og verndaráætlun Surtseyjar í Eldheimum var ekki aðeins umræða […]
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyjabæjar segir skort á lóðum við hafnarsvæðið vera áhyggjuefni og vill að hafnarstjóri leggi fram tillögur um hvernig megi skapa meira rými fyrir atvinnustarfsemi. Samhliða verður kannaður kostnaður við að farga Blátindi VE 21. Mikið plássleysi er nú á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum að því er fram kemur í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs. […]
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram

Kjarnaborunin á Landeyjasandi vegna fyrirhugaðra Eyjaganga heldur áfram af fullum krafti. Um helgina hafði borinn náð 108,5 metra dýpi og jafnframt standa yfir hafbotnsmælingar í Eyjasundi sem eiga að varpa frekara ljósi á jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri jarðgangaleið. Samkvæmt upplýsingum á vef Eyjaganga hafði borinn náð 108,5 metra dýpi í gær, laugardaginn 11. júlí. Þá […]
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld

ÍBV sækir KR heim á Meistaravelli í dag í Bestu deild karla. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er mikilvægur fyrir bæði lið. KR situr í öðru sæti deildarinnar með 29 stig en ÍBV er í áttunda sæti með 15 stig. Eyjamenn hafa verið á góðri siglingu að undanförnu. Liðið er ósigrað í síðustu fimm deildarleikjum […]
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja leggur til að minnisvarði um björgunarskipið Þór, sem síðar varð fyrsta skip Landhelgisgæslunnar, verði færður frá núverandi stað í botni Friðarhafnar. Að mati ráðsins hefur minnisvarðinn horfið inn í umhverfið eftir uppbyggingu á svæðinu og njóti sín því ekki sem skyldi. Í fundargerð ráðsins kemur fram að umræður hafi verið um […]
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal

Nákvæmlega þrjár vikur eru í að Þjóðhátíð 2026 verði sett og undirbúningurinn í Herjólfsdal er kominn á fullt skrið. Uppsetning mannvirkja er hafin og svæðið tekur nú dag frá degi á sig þá mynd sem þúsundir gesta þekkja. Halldór B. Halldórsson heimsótti Herjólfsdal í dag og ræddi við Jónas Guðbjörn, formann Þjóðhátíðarnefndar, sem fer yfir […]
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut

Áform eru uppi um að reisa þrjú einbýlishús á reit við Reglubraut, þar sem áður stóð hús við Vesturveg 17b. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Erindið barst frá Sigurjóni Ingvarssyni. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er gert ráð fyrir þremur einbýlishúsum á einni hæð með risi á reitnum. Í […]