Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski

Framkvæmdir við endurbyggingu innvigtunar- og löndunarkerfis Vinnslustöðvarinnar hafa tafist og ljóst varð að tækjabúnaðurinn yrði ekki tilbúinn fyrir makrílvertíðina. Fyrirtækið ákvað því að skipta 3.000 tonnum af makrílheimildum fyrir liðlega 1.400 tonn af þorski. Skiptin hafa neikvæð áhrif á útgerð, vinnslu og þjónustuaðila í Vestmannaeyjum en auknar þorskheimildir skapa jafnframt möguleika á meiri saltfiskvinnslu. Sigurgeir […]
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax

Samráðs- og upplýsingafundur Laxeyjar var haldinn í seiðastöð fyrirtækisins við Strandveg á þriðjudag. Alls sóttu 36 íbúar fundinn, þar sem farið var yfir starfsemi fyrirtækisins, stöðu uppbyggingar, sjálfbærni, fiskheilbrigði og samfélagsleg áhrif. Óskar Jósúason, upplýsingafulltrúi Laxeyjar, segir umræðurnar hafa verið opnar og málefnalegar. „Fundurinn tókst mjög vel og við erum ánægð með þátttökuna. Alls mættu […]
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns

Úrval lesefnis fyrir unga lesendur hefur aukist á Bókasafni Vestmannaeyja með tilkomu nýrra léttlestrarbóka frá vestmannaeyska fyrirtækinu Út fyrir bókina. Fyrirtækið sérhæfir sig í gerð lesefnis, lesskilningsverkefna og stærðfræðiverkefna fyrir byrjendur. Höfundar námsefnisins eru Unnur Líf Ingadóttir Imsland og Snjólaug Árnadóttir, grunnskólakennarar með áralanga starfsreynslu sem starfa sem umsjónarkennarar á yngsta stigi. Þær hófu árið […]
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða

Sjúkraliðafélag Íslands stendur þétt við bakið á félagsmanni sínum sem var handtekinn og fékk réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Hraunbúðum. Félagið segir reynsluna geta haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð viðkomandi. Sjúkraliðafélag Íslands krefst þess að réttaröryggi heilbrigðisstarfsfólks verði betur tryggt þegar alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu eru rannsökuð. Þetta kemur fram í […]
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum

Vestmannaeyjabær hafði hvorki fengið úttektarskýrslu embættis landlæknis um Hraunbúðir í hendur né vitneskju um úttektina sem skýrslan byggir á. Þá hafði Heilbrigðisstofnun Suðurlands ekki haft samband við bæinn vegna niðurstaðna hennar. Þetta kemur fram í svari Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra við fyrirspurn Eyjafrétta. Sjá fyrri frétt um málið: Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum Bærinn eingöngu […]
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!

Stórvinningshöfum í Lottóappinu fjölgar enn. Sá nýjasti bættist í hópinn á þriðjudagskvöldið þegar 2. vinningur í EuroJackpot, að upphæð 45,4 milljónir króna, gekk út til spilara á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þar segir jafnframt að vinningsmiðann hafi hann keypt í appinu. Vinningshafinn, sem er á fertugsaldri, opnaði appið stuttu […]
Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum

Landlæknir gerir alvarlegar athugasemdir við mönnun, húsnæði og brunavarnir á Hraunbúðum í nýrri úttekt. Hlutfall hjúkrunarfræðinga er aðeins 12% en lágmarksviðmið eru 20% og hlutfall faglærðra í umönnun er 27% á móti 57% lágmarksviðmiði. Þá er ekki hægt að koma rúmum út um herbergisdyr íbúa ef rýma þarf húsið. Embætti landlæknis hóf í febrúar úttekt […]
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum

Breiðafjarðarferjan Baldur flutti 28.440 farþega og 7.300 bíla milli lands og Vestmannaeyja á 45 dögum í sumar. Farþegafjöldinn jafngildir tæplega 95% af öllum farþegum sem Baldur flutti um Breiðafjörð árið 2025 og um 77% af ársfjöldanum árið 2024. Baldur hóf siglingar milli lands og Eyja 8. júní og sinnti þeim til 22. júlí. Ferjan sigldi […]
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð

Nú líður að stærstu helgi ársins í Eyjum, sjálfri Þjóðhátíð. Ég fór á mína fyrstu hátíð árið 2011, algjörlega grunlaus um það hverju ég átti von á. Ég var þá tiltölulega nýbúinn að kynnast eyjamærinni, sem ég síðar giftist, og prjónaði hún á mig lopapeysu við þetta tilefni. Kláraði hana vissulega í Herjólfi á leið […]
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst

Stefnt er að því að Herjólfur III verði tilbúinn til haffærisskoðunar í lok næstu viku, eða um mánaðamótin. Prófun og yfirferð á MES-björgunarkerfi skipsins er lokið en í kjölfarið kom í ljós bilun í MOB-krana sem nú er unnið að lagfæringum á. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta […]
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn

„Fyrsta sem ég hugsa um þegar ég vakna er Brekkusöngurinn og það síðasta sem ég hugsa um áður en ég fer að sofa er Brekkusöngurinn,” segir Ágúst Þór Brynjarsson, brekkusöngvari, um undirbúninginn fyrir Brekkusöng Þjóðhátíðar, sem hann stýrir í fyrsta sinn um verslunarmannahelgina. Í hlaðvarpinu Popparasögur segir hann að hann hafi tekið meðvitaða ákvörðun um […]
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar

Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Suðurlands í skaðabótamáli bæjarins gegn útgerðarfélaginu Huginn ehf., Vinnslustöðinni hf. og Vátryggingafélagi Íslands hf. Málið snýst um skemmdir sem urðu á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjahöfn í nóvember 2023. Ákvörðunin var tekin samhljóða á fundi bæjarráðs í dag. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri staðfesti áform bæjarins í samtali við fréttastofu RÚV. Í […]
Frá Portúgal til Vestmannaeyja

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við bandaríska varnarmanninn Jessicu Hinton. Hún er 24 ára og kemur til Eyja frá SF Damaiense, sem leikur í efstu deild Portúgals. Hinton segist lengi hafa stefnt að því að leika fyrir félag á borð við ÍBV og vera þakklát fyrir tækifærið. „Að spila fyrir félag eins og ÍBV hefur lengi […]
„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær parið því rúmlega 96,5 […]
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal

VSV Portugal, dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, hefur keypt portúgalska sjávarútvegsfyrirtækið Esbal. Kaupin eru liður í áframhaldandi uppbyggingu Vinnslustöðvarinnar á Portúgalsmarkaði og eiga að styrkja stöðu félagsins þar í landi. Esbal er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á útvötnuðum saltfiski. Vörur fyrirtækisins eru meðal annars seldar til veitingahúsa og í neytendaumbúðum. Vinnslustöðin […]
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun

Viðgerð á rafmótor Herjólfs IV hefur gengið vel og stefnt er að því að ferjan sigli heim til Vestmannaeyja í kvöld og fari í fulla átta ferða áætlun á morgun, fimmtudag. Prufusigling fór fram í gærkvöldi og gekk hún mjög vel. Þetta kemur fram í svari Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs ohf., við fyrirspurn Eyjafrétta […]
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð 2026 hefur gengið einstaklega vel og langtímaspár benda til þess að veðrið verði með besta móti. Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir þó að það sé fyrst og fremst fólkið, samheldnin og gestrisnin sem geri hátíðina að því sem hún er. „Hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna og samstarfsaðila hafa lagt hönd á plóg síðustu […]
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi

Kjarnaborunin á Landeyjasandi vegna rannsókna fyrir fyrirhuguð Eyjagöng er komin niður á 136 metra dýpi. Markmiðið er að bora niður á 300 metra en gert er ráð fyrir að boruninni ljúki í ágúst. Þá er hljóðendurvarpsmælingum í Eyjasundi lokið eftir að alls voru mældir 282 kílómetrar á sjö mælingadögum. Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf., segir […]
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum

Tveir flugmenn hafa verið sviptir flugleyfi tímabundið vegna lágflugs farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjum þann 11. apríl síðastliðinn. Annar flugmannanna var sviptur leyfi í tvö ár en hinn í eitt ár. Þetta kemur fram í frétt RÚV og er haft eftir Þórhildi Elínu Elínardóttur, samskiptastjóra Samgöngustofu. Ákvörðunin hefur verið send þeim flugmönnum sem málið varðar. Flugstjóri […]
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní

Landaður afli íslenskra skipa nam rúmlega 32 þúsund tonnum í júní síðastliðnum. Það er 29 prósent minni afli en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands sem birtar voru í síðustu viku. Samdrátturinn skýrist einkum af minni uppsjávarafla. Engum kolmunna eða makríl var landað í júní í ár, en í júní 2025 nam […]