Vígslukvöld í Herjólfsdal — myndir og myndbönd

Hefð er fyrir því að ýmis mannvirki í Herjólfsdal séu vígð á fimmtudagskvöldinu fyrir Þjóðhátíð og engin breyting varð þar á í gærkvöldi. Góð stemning ríkti í Dalnum þegar gestir komu saman við Mylluna og Vitann hjá félögum í VKB. Við Mylluna fór Jóhann Pétursson að venju með hnitmiðaða vígsluræðu við góðar undirtektir viðstaddra. Vígslan […]

Bærinn leggur út 461 milljón á meðan beðið er svara

Vestmannaeyjabær greiðir 461,4 milljónir króna til NOV vegna kaupa á almannavarnarlögninni NSL-4. Greiðslan verður fjármögnuð með handbæru fé bæjarins, en áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um þrír milljarðar króna. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna kaupanna. Ekki hafði verið gert ráð fyrir greiðslunni í fjárheimildum ársins þar sem bæjarstjórn telur […]

Fjölskyldufjör á sjó í blíðunni

Þegar loksins kemur alvöru sumarveður í Eyjum er um að gera að nýta það. Það gerði Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, á sunnudaginn þegar hann skellti sér í siglingu með fjölskyldunni á sæþotu og hraðbát, í boði Guðmundar Pálssonar múrarameistara.  Með í för voru dóttir hans, Valgerður Erla, og Brynjólfur Ásgeir, maður hennar, ásamt barnabörnunum Kára Kristni, Malín […]

Þvílíkt útsýni yfir hátíðarbúinn Herjólfsdal

Dalurinn, Þjóðhátíð

Hvað er betra en Þjóðhátíð í góðu veðri? Að því spyr Halldór B. Halldórsson kvikmyndagerðarmaður í nýjasta myndbandi sínu, sem hann tók í blíðunni í morgun. Í myndbandinu flýgur Halldór dróna sínum yfir Herjólfsdal, sem nú er kominn í sannkallaðan hátíðarbúning. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg undanfarna daga við að koma Dalnum í […]

Þjóðhátíð skiptir sköpum fyrir fjölskyldur í samfélaginu

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð er á fullu og þessa dagana færist sífellt meira líf yfir Herjólfsdal. Fjöldi fólks leggur hönd á plóg við að gera Dalinn kláran fyrir stærstu helgi ársins í Vestmannaeyjum. Þar fara saman ótal verkefni, stór og smá, sem þarf að leysa áður en fyrstu gestirnir mæta. Ellert Scheving Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV og […]

Þjóðhátíð í aðalhlutverki í nýjum Eyjafréttum

Nýtt 36 síðna tölublað Eyjafrétta kom út í morgun. Blaðið er að stórum hluta helgað Þjóðhátíð, fólkinu sem kemur að undirbúningi hennar, hefðunum og sögunum sem gera hátíðina einstaka. Páll Magnússon er í ítarlegu viðtali þar sem hann ræðir meðal annars stöðu Vestmannaeyja, samgöngurnar, ástina á ÍBV, minningar frá Þjóðhátíð og ævintýrin í Bjarnarey. Hann […]

Hvítu tjöldin farin að setja svip á Dalinn – myndir

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð náði enn einum stórum áfanga í kvöld þegar þjóðhátíðargestir flykktust í Herjólfsdal til að setja niður súlur fyrir hvítu tjöldin. Mikið líf var í Dalnum þegar tjaldsúlunum var komið fyrir á úthlutuðum lóðum. Hvítu tjöldin eru órjúfanlegur hluti af Þjóðhátíð og þegar súlurnar rísa er óhætt að segja að hátíðarstemningin sé farin […]

ON sér um rekstur hleðslustöðva en bærinn á áfram innviðina

Vestmannaeyjabær á áfram hleðslustöðvar og aðra innviði sem komið var upp með styrk úr Orkusjóði árið 2020. ON hefur hins vegar tekið að sér rekstur stöðvanna og notendur greiða nú fyrir raforkuna. Þetta kemur fram í svörum Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, við fyrirspurn Eyjafrétta. Árið 2020 fékk Vestmannaeyjabær styrk til uppbyggingar innviða […]

Einsi Kaldi áfram með skólamatinn – óvissa um kostnað foreldra

Einsi Kaldi veisluþjónusta mun áfram sjá um skólamáltíðir í Vestmannaeyjum. Óvissa ríkir hins vegar um greiðsluþátttöku ríkisins frá næstu áramótum. Vestmannaeyjabær hefur samþykkt tilboð Einsa Kalda veisluþjónustu ehf. í skólamáltíðir. Eins og fram kemur í tilkynningu sveitarfélagsins mun fyrirtækið því áfram annast skólamatinn, líkt og það hefur gert frá árinu 2012. Tilboð Einsa Kalda var […]

Toppliðið mætir ÍBV á Hásteinsvelli

ÍBV tekur á móti toppliði FH í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á Hásteinsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 18.00. FH hefur farið vel af stað í sumar og trónir á toppi deildarinnar með 29 stig eftir 12 leiki. Hafnarfjarðarliðið hefur unnið níu leiki, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum. Þá hefur […]

Matarþjónusta eldri borgara færist í Vöruhúsið

Vestmannaeyjabær hefur lokið lögbundnu útboði á matarþjónustu fyrir eldri borgara. Samkvæmt reglum um opinber innkaup var sveitarfélaginu skylt að bjóða þjónustuna út þegar gildandi samningur rann sitt skeið. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Við útboðið barst eitt tilboð, frá Vöruhúsinu, sem uppfyllti skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt. Vöruhúsið mun því annast […]

Nýja vatnsleiðslan tilbúin til flutnings til Eyja

Framleiðslu nýju almannavarnavatnsleiðslunnar NSL-4 er lokið og undirbúningur hafinn að flutningi hennar til Vestmannaeyja. Frá þessu greina bæjaryfirvöld á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar. Þar segir að framleiðandinn, NOV hafi afhent leiðsluna og tók fyrirtækið Subsea 7, sem annast flutning og útlagningu hennar, við endastykki leiðslunnar á mánudag. Vel hefur gengið að spóla leiðslunni inn á tromlu og […]

Óska eftir að friðun Blátinds verði aflétt

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að óska formlega eftir því við Minjastofnun Íslands að friðun Blátinds VE 21 verði aflétt. Markmiðið er að heimilt verði að farga bátnum í samræmi við gildandi lög og reglur. Blátindur var eina málið á dagskrá ráðsins á fundi þess í gær. Á fyrri fundi hafði hafnarstjóra verið falið […]

Miðasala á Þjóðhátíð fór á fullt skrið í gær

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð hefur fyrir nokkru náð hámarki í Vestmannaeyjum og síðustu dagarnir fram að hátíðinni fara í lokahnykkinn við að gera Herjólfsdal tilbúinn fyrir þá þúsundir gesta sem leggja leið sína til Eyja, Þetta segir í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd. Haft er eftir Jónasi Guðbirni Jónssyni, formanni þjóðhátíðarnefndar að undirbúningurinn hafi gengið mjög vel og […]

Af miðunum í þjóðhátíðarstuð

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE hélt til veiða sunnudaginn 19. júlí sl. að afloknu tæplega þriggja vikna stoppi. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Egils Guðna Guðnasonar skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið. „Við byrjuðum í ýsu á Broadway og lönduðum rúmlega fimmtíu tonnum í Eyjum á miðvikudag. Síðan var farið í Skerjadýpið í þeim tilgangi að […]

Er betra að vita en halda?

Ákvörðun sem tekin er í myrkri eða óvissu er sjaldnast gæfurík. Þegar við erum stödd á krossgötum í lífinu, hvort sem það varðar fjármál heimilisins, menntun barna okkar eða rekstur fyrirtækja, reynum við ævinlega að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er. Enginn skrifar undir kaupsamning á fasteign án þess að skoða ástand hennar, […]

ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld

ÍBV mætir Breiðabliki á Eikarvellinum í Kópavogi í Bestu deild karla í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18:00. Eyjamenn eru í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig eftir 15 leiki. Breiðablik situr í fjórða sæti með 26 stig og hefur því tíu stiga forskot á ÍBV. Liðin hafa bæði leikið einum leik færra en […]

Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta

Vegna mikillar eftirspurnar ætlar handknattleiksdeild ÍBV að bjóða aftur til sölu reyktan lax frá Laxey. „Samloka eða brauðterta með reyktum laxi í hvíta tjaldinu – þurfum við að segja eitthvað meira?“ segir í tilkynningu deildarinnar. Laxinn kostar 6.000 krónur kílóið og fer salan fram í krónni hjá Sigurjóni Ingvars og félögum á Skipasandi á morgun, […]

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ

Það var óvenju mikið líf í Vestmannaeyjabæ snemma í morgun þegar farþegar tveggja skemmtiferðaskipa tóku að streyma í land. Á níunda tímanum var þegar hafin ferjun farþega frá skipunum, sem lágu í Klettsvík annars vegar og hitt var rétt fyrir utan klettsnefið. Þaðan héldu ferðamenn ýmist fótgangandi af stað til að kynna sér bæinn eða […]

Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð

Fyrstu marktæku vísbendingarnar um veðrið yfir Þjóðhátíðarhelgina eru jákvæðar. Flestar langtímaspár gera nú ráð fyrir fremur hægum vindi, 10–13 stiga hita og að mestu þurru veðri í Vestmannaeyjum. Enn er þó nokkur óvissa, einkum um úrkomu þegar líður á helgina. Sex dagar eru í Þjóðhátíð og má segja að megindrættirnir séu farnir að skýrast. Helstu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.