Yfirráð Íslands yfir eigin sjávarauðlind

Í aðdraganda atkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við ESB hafa SFS gefið út nýja greiningu um áhrif aðildar á forræði Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni. Þar kemur fram að velgengni íslensks sjávarútvegs byggist á yfirráðum yfir sjávarauðlindinni og markvissri fiskveiðistjórnun sem grundvallast á vísindum. Á þeim grunni hefur orðið til öflug atvinnugrein sem skapar verðmæti og fjölbreytt […]
Eyjakonur sækja Grindavík/Njarðvík heim

Eyjakonur mæta Grindavík/Njarðvík á JBÓ-vellinum í kvöld þegar 14. umferð Bestu deildar kvenna hefst. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og mikið er undir í baráttunni um efri hluta deildarinnar. ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 13 leiki, en Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 16 stig. Með sigri geta Eyjakonur […]
Aflaheimildir til strandveiða auknar um 964 tonn

Innviðaráðherra hefur á ný aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla. Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026. Þetta […]
Andlát: Kristinn Viðar Pálsson

(meira…)
147 komu á heilsugæsluna og í sjúkraskýlið

Um 95 einstaklingar leituðu á heilsugæsluna í Vestmannaeyjum um Þjóðhátíðarhelgina og 52 í sjúkraskýlið í Herjólfsdal. Heilbrigðisstofnun Suðurlands var með aukinn viðbúnað og heilsugæslan opin allan sólarhringinn. Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum stóð vaktina yfir Þjóðhátíð og tryggði öryggi gesta og íbúa með öflugri mönnun og góðu samstarfi við aðra viðbragðsaðila. Ólíkt venjulegum helgum, þegar […]
HSU vinnur að úrbótaáætlun en svarar ekki spurningum um mönnun

Heilbrigðisstofnun Suðurlands segist taka niðurstöðum úttektar embættis landlæknis á Hraunbúðum alvarlega og að umbætur séu þegar hafnar. Stofnunin svarar hins vegar ekki einstökum spurningum Eyjafrétta um meðal annars mönnun, úrvinnslu atvika, lyfjaferlið og starfsmannaveltu. HSU vinnur nú að úrbótaáætlun vegna þeirra athugasemda sem fram koma í nýlegri úttekt embættis landlæknis á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Díana […]
Glæsileg skipakoma til Eyja

Það er alltaf tignarleg sjón þegar skip siglir inn til Vestmannaeyja með Heimaklett og hafnarmynnið í bakgrunni. Halldór B. Halldórsson var á ferðinni með myndavélina í gær, mánudaginn 3. ágúst, og fangaði þessa glæsilegu skipakomu til Eyja. Myndbandið má sjá hér að neðan. (meira…)
Sunnudagurinn á Þjóðhátíð í máli og myndum

Sunnudagurinn á Þjóðhátíð var sannkallaður hátíðardagur í Herjólfsdal. Blíðskaparveður lék við gesti sem nutu fjölbreyttrar dagskrár og einstakrar stemningar frá degi og fram á nótt. Hápunktur kvöldsins var hinn árlegi brekkusöngur, sem að þessu sinni var í fyrsta sinn undir stjórn Ágústs Brynjarssonar. Gestir tóku vel undir sönginn áður en hin hefðbundnu blys voru tendruð […]
Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn

Síðasti dagur Þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri. Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði þó í ýmis horn að líta þegar leið á nóttina og gistu fimm einstaklingar fangageymslur. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar og fimm fíkniefnamál komu upp. Þá var sparkað í lögreglumann við skyldustörf og sjúkraflutningamaður sleginn. Hátíðargestir eru nú farnir að halda frá Vestmannaeyjum. Lögreglan þakkar […]
Þjóðhátíð meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk undir morgun eftir afar vel heppnaða hátíð. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnendum gæslumála bendir allt til þess að hún hafi verið meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum. Hátíðin fór afar vel fram og einkenndist af virðingu, tillitssemi og vinsemd meðal gesta, að því er fram kemur í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd. Um […]
Laugardagurinn á Þjóðhátíð í máli og myndum

Laugardagurinn á Þjóðhátíð var sannkallaður hátíðardagur í Herjólfsdal. Blíðskaparveður lék við gesti sem fjölmenntu í Dalinn og nutu fjölbreyttrar dagskrár frá degi og fram á nótt. Fjölskyldufólkið tók daginn snemma og þegar leið á kvöldið færðist aukinn kraftur í hátíðarhöldin. Fjöldi listamanna steig á stóra sviðið, stemningin magnaðist jafnt og þétt og flugeldasýningin setti svo […]
Sex gistu fangageymslur eftir annasama nótt

Talsverður fjöldi skemmti sér í Herjólfsdal í blíðskaparveðri í nótt og hafði lögreglan í Vestmannaeyjum í ýmis horn að líta. Sex einstaklingar gistu fangageymslur. Lögreglan hélt uppi öflugu fíkniefnaeftirliti og komu níu fíkniefnamál upp. Eitt þeirra er til rannsóknar vegna gruns um sölu fíkniefna. Þá voru tvær minniháttar líkamsárásir tilkynntar til lögreglu auk þess sem […]
Alltaf stuð í Eyjum

Líf og fjör hefur verið í Vestmannaeyjum í dag enda Þjóðhátíð komin á fullt. Bærinn iðar af lífi, gestir njóta góða veðursins og hátíðarstemningin leynir sér ekki. Halldór B. Halldórsson var á ferðinni með myndavélina í dag og fangaði stemninguna í bænum og Herjólfsdal. Afraksturinn má sjá í myndbandinu hér að neðan. (meira…)
Þjóðhátíð fær fljúgandi start

Fyrsta kvöld Þjóðhátíðar fór vel fram og var Herjólfsdalur fullur af lífsglöðum hátíðargestum, að því er fram kemur í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd. Dagskráin á stóra sviðinu náði hámarki þegar Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör buðu upp á kraftmikla syrpu af vinsælustu lögum sínum. Þau enduðu síðan á að frumflytja þjóðhátíðarlagið í ár, Flugelda. Brennan var […]
Sex fíkniefnamál og einn ölvunarakstur

Setning Þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri í Herjólfsdal í gær. Við setningu Þjóðhátíðar blessaði Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hátíðina. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fór hátíðin vel af stað og virðast gestir komnir til þess að skemmta sér og öðrum. Lögreglan heldur sem fyrr úti öflugu fíkniefnaeftirliti á Þjóðhátíð. Sex minniháttar fíkniefnamál komu upp […]
Föstudagskvöldið í Dalnum í máli og myndum

Fjölmenni var í Herjólfsdal í gærkvöldi þegar fyrsta kvöldvaka Þjóðhátíðar fór fram í góðri stemningu. Mucky Muck, Daniil og Hipsumhaps stigu á svið og héldu uppi fjörinu áður en kom að frumflutningi þjóðhátíðarlagsins í ár. Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör fluttu lagið við góðar undirtektir hátíðargesta. Hápunktur kvöldsins var síðan þegar kveikt var í brennunni […]
Frá Dauðagámnum í Hvíta tjaldið

Magnús Bragason flutti hátíðarræðu Þjóðhátíðar við setningu hátíðarinnar í Herjólfsdal. Í ræðu sinni fjallaði hann um samheldni Eyjamanna, ómetanlegt framlag sjálfboðaliða og þann einstaka galdur sem felst í því að Þjóðhátíð fylgir fólki í gegnum lífið. Magnús rifjaði jafnframt upp skemmtilegar minningar frá hátíðum liðinna ára og sagði það ekki eingöngu fæðingarstaðinn sem geri fólk […]
Mikið fjölmenni við setningu Þjóðhátíðar

Mikið fjölmenni kom saman í Herjólfsdal í blíðskaparveðri í dag þegar Þjóðhátíð 2026 var formlega sett. Hörður Orri Grettisson, formaður ÍBV, setti hátíðina og gerði áratugalangar hefðir og þrotlausa vinnu sjálfboðaliða íþróttafélaganna Þórs og Týs að umtalsefni. Sagði hann sjálfboðaliðana hafa lagt grunninn að þeirri Þjóðhátíð ÍBV sem landsmenn þekkja í dag. Færði hann þeim […]
HSU með sólarhringsviðbúnað yfir Þjóðhátíð

Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum verður með öflugan viðbúnað allan sólarhringinn yfir Þjóðhátíðarhelgina. Bráðamóttaka heilsugæslunnar verður opin allan sólarhringinn og verður starfsfólk HSU vel merkt. Þá verða sjúkraflutningar með aukinn viðbúnað vegna hátíðarinnar. Hjúkrunarfræðingar verða jafnframt með viðveru í sjúkraskýlinu í Herjólfsdal frá klukkan 20 á kvöldin til klukkan 8 að morgni. „Njótið Þjóðhátíðarinnar, passið vel […]
Tveir gistu fangageymslur eftir húkkaraballið

Hið árlega húkkaraball fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var nóttin fremur róleg og góður bragur á skemmtanahaldinu. Tveir gistu þó fangageymslur vegna ölvunar. Lögreglan verður sem fyrr með mikinn viðbúnað yfir Þjóðhátíð og mun leggja sérstaka áherslu á að koma í veg fyrir vopnaburð hátíðargesta. Tekið verður hart á […]