Lítil kraftur í veiðunum en skipin lönduðu fullfermi
Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Grindavík á mánudag og er að landa í Vestmannaeyjum í dag. Systurskipið Vestmannaey VE landaði fullfermi í Eyjum í gær. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við skipstjórana og fékk fréttir af veiðunum. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir lítinn kraft vera í veiðunum um þessar mundir.

„Þetta er óttalegt rag. Við lönduðum fullfermi í Grindavík á mánudag og aflinn var mest þorskur og ýsa. Við hófum túrinn í Reynisdýpinu, síðan var haldið á Pétursey og Vík, þaðan var brunað á Ingólfshöfðann og endað í ýsu í Meðallandsbugtinni.“

Seinni túr Bergeyjar var stuttur og er skipið að landa 35 tonnum í Eyjum í dag. „Sá afli fékkst á Pétursey og Vík,“ segir Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að veitt hafi verið í einmunablíðu. „Við lönduðum fullfermi í gær og aflinn var jöfn blanda af þorski, ýsu og ufsa. Aflinn fékkst á Síðugrunni og Ingólfshöfða. Veiðin var alveg þokkaleg en engu að síður svolítið blettótt,“ segir Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.