Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Aðgengi talið ásættanlegt :: Ráðið gagnrýnir verklag við framkvæmdirnar
Rampurinn við Oddfellow-húsið. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að falla frá kröfu um breytingar á aðkomu að Strandvegi 47A. Ákvörðunin byggist á áliti samráðshóps um málefni fatlaðs fólks, sem telur að nýr rampur myndi ekki bæta aðstöðuna og að núverandi aðgengi sé ásættanlegt fyrir fólk í hjólastól.

Fyrir ráðinu lá tillaga frá Oddfellow um að breyta stiga framan við húsið, austan megin, í ramp til að koma til móts við fyrri afgreiðslur ráðsins. Formaður ráðsins óskaði eftir aðkomu samráðshópsins, sem fór yfir málavexti og kannaði aðstæður í vettvangsferð.

Ráðið tók undir niðurstöðu samráðshópsins og samþykkti að falla frá fyrri kröfu um breytingu á aðkomunni. Jafnframt var tekið undir að við framtíðarbreytingar yrði horft til aðgengis að húsnæðinu í heild og haft samráð við hópinn eftir því sem við ætti.

Sjá einnig: Hafnað um stækkun ramps

Gagnrýnir frávik frá samþykktum uppdráttum

Í afgreiðslu ráðsins kemur fram að umfjöllun málsins hafi verið umfangsmikil og kallað á töluverða vinnu, bæði hjá sveitarfélaginu og lóðarhafa. Ráðið ítrekar mikilvægi þess að framkvæmdir séu ávallt í samræmi við samþykkt hönnunargögn og útgefin leyfi.

Frávik frá samþykktum uppdráttum geti kallað á nýja málsmeðferð, breytingar og eftir atvikum kostnaðarsamar úrbætur.

Ráðið leggur jafnframt ríka áherslu á að það sé óásættanlegt verklag að fá samþykki fyrir tiltekinni framkvæmd, framkvæma hana síðan með öðrum hætti og óska að því loknu eftir samþykki fyrir breyttu fyrirkomulagi. Slík málsmeðferð geti ekki orðið viðtekin venja.

Tekið er fram að þótt fallið hafi verið frá kröfu um úrbætur í þessu tiltekna máli feli niðurstaðan hvorki í sér almenna heimild til að víkja frá samþykktum uppdráttum né fordæmi fyrir afgreiðslu annarra mála.

Nýjustu fréttir

Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Stór og spennandi tímamót hjá yngstu nemendunum 
Lítil kraftur í veiðunum en skipin lönduðu fullfermi
Landsmót lúðrasveita haldið í Vestmannaeyjum
Hauststarfið að hefjast hjá Pílufélagi Vestmannaeyja
Fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ ólögmæt
Sighvatur Bjarnason í vel heppnaðri Grænlandsför
Nýtt vefblað Eyjafrétta komið út
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.