Hafnað um stækkun ramps
Rampurinn við Oddfellow-húsið. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur hafnað beiðni um breytingu á byggingarleyfi við Strandveg 47A.

Málinu var vísað til ráðsins frá 79. fundi byggingarfulltrúa, þar sem Björgvin Björgvinsson, fyrir hönd eiganda fasteignarinnar, lagði fram uppfærðan aðaluppdrátt. Helsta breytingin fólst í stækkun á rampi fyrir framan húsið. Samkvæmt nýjum teikningum átti rampurinn að ná 1,4 metra út fyrir byggingarreit, en áður hafði verið samþykkt að hann næði 1,0 metra út fyrir reitinn.

Ráðið féllst ekki á breytinguna. Í niðurstöðu þess kemur fram að stækkunin gangi umfram heimildir, þar sem rampurinn fyrir hreyfihamlaða myndi ná 0,4 metra út fyrir það svæði sem áður hafði verið samþykkt til afnota af bæjarlandi.

Eiganda er því gert að draga úr breidd rampsins svo hann falli innan þeirra marka sem áður hafa verið samþykkt.

Nýjustu fréttir

Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.