Samtök ferðaþjónustunnar skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við fulltrúa greinarinnar um hvernig blómstrandi ferðaþjónusta geti skilað samfélaginu enn meiri ávinningi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu samtakanna sem birt er hér í heild sinni:
Ferðaþjónusta á Íslandi er kraftmikil atvinnugrein sem hefur á undanförnum árum náð eftirtektarverðum árangri. Hún er ein stærsta atvinnugrein landsins, ábyrg fyrir þriðjungi útflutningstekna Íslands og skapar tugþúsundir starfa. Ferðaþjónusta hefur kveikt líf og fjölbreytni um land allt, ekki síst á landsbyggðinni, þar sem greinin hefur skapað ný tækifæri og byggt upp fjölbreytta þjónustu.
Við í ferðaþjónustunni erum stolt af þessum árangri og viljum halda áfram. Aukin gjaldtaka og skortur á fyrirsjáanleika draga hins vegar úr ávinningi samfélagsins af atvinnugreininni, mætti ferðaþjónustunnar, seiglu og samkeppnishæfni. Það skaðar fjárfestingar í gæðum og framtíðaruppbyggingu og hefur neikvæð áhrif á nærsamfélög um allt land.
Jákvæðar leiðir til að afla sömu eða hærri tekna fyrir ríki, sveitarfélög og samfélagið allt eru vel þekktar, raunhæfar og árangursríkar. Þær styðja við markmið ferðamálastefnu og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Ferðaþjónustan skorar því á stjórnvöld að vinna markvisst með atvinnugreininni að því að auka tekjur samfélagsins af henni.
Blómleg ferðaþjónusta, sem stuðlar að fjölbreyttri uppbyggingu í blómstrandi samfélögum um allt land og skilar ríflegum tekjum í ríkissjóð, er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra. Við hlökkum til árangursríks samtals og samstarfs við stjórnvöld um hvernig skapa megi meira virði, auknar tekjur og stöðugleika til langs tíma.
Samtök ferðaþjónustunnar