Sighvatur Bjarnason í vel heppnaðri Grænlandsför
Sighvatur Bjarnason er kominn heim eftir óvenjulegt flutningsverkefni til Austur-Grænlands. Mynd: Vinnslustöðin/vsv.is

Sighvatur Bjarnason VE kom aftur til Vestmannaeyja á þriðjudagskvöld eftir vel heppnað flutningsverkefni til Austur-Grænlands. Skipið flutti vistir, varahluti og farþega vegna rannsóknarverkefnis Greenland Mines Ltd á Skaergaard-svæðinu. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar.

Ice-Tugs hafði samband við Vinnslustöðina um miðjan ágúst og kannaði hvort hægt væri að leigja Sighvat tímabundið í verkefnið. Fyrirtækið hefur undanfarin ár þjónustað námuverkefnið, en þegar breyting varð á fyrirliggjandi áætlunum vantaði skip með skömmum fyrirvara til að flytja menn og aðföng.

Undirbúningur hófst þegar í stað. Að sögn Óskars Stefánssonar, skipstjóra gekk hann mjög vel, þótt að mörgu væri að hyggja á skömmum tíma.

„Við þurftum meðal annars að uppfæra siglingatölvuna og það var mikið að gera í vélinni. Síðan fóru fram mikil þrif og ýmislegt annað var lagað áður en lagt var af stað,“ segir Óskar.

Sighvatur var ferðbúinn að kvöldi 25. ágúst og hélt fyrst til Reykjavíkur. Þar voru teknar um borð vistir, varahlutir og fjórir farþegar áður en siglt var til Grænlands.

Ísjakarnir eftirminnilegir

Sighvatur kom á áfangastað á föstudagsmorgni. Siglt var inn Kangerdlugssuaq-fjörð og þaðan um Uttental Sund, í átt að Forbindelsesgletscher-jökli. Þar stóð yfir leit að góðmálmum og var meðal annars unnið að borunum og sprengingum.

Óskar segir ferðina hafa gengið afar vel og nefnir sérstaklega ísjakana og siglinguna um sundið sem eftirminnilega.

„Það var mjög sérstakt að sigla innan um ísjakana og inn um sundið. Þar var bæði þröngt og grunnt og því þurfti að fara varlega,“ segir hann.

Sighvatur lagðist að Argusi, sem þjónar sem bækistöð og fljótandi hótel fyrir þá sem vinna að verkefninu. Hluti farmsins var hífður frá borði með þyrlu.

Sex farþegar voru með Sighvati á heimleiðinni, en þeir voru á leið heim í frí. Skipið kom til Vestmannaeyja á þriðjudagskvöld og lauk þar með tímabundinni leigu þess vegna verkefnisins. Ferðin gekk vel í alla staði og veðrið lék við áhöfn og farþega.

Hér má sjá fleiri myndir frá ferðalaginu.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.