Nýtt vefblað Eyjafrétta komið út

Nýjasta vefblað Eyjafrétta er komið út, stútfullt af fjölbreyttu efni úr eyjasamfélaginu. Í blaðinu er meðal annars fjallað um framkvæmdir við innisundlaugina, en heildarkostnaður þeirra fór langt fram úr upphaflegum áætlunum.

Fjallað er ítarlega um úrskurð innviðaráðuneytisins þess efnis að fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ hafi verið ólögmæt. Einnig er rætt við Árna Sigfússon, stjórnarformann Eyjagangna, um stöðu rannsókna og næstu skref verkefnisins.

Hvítasunnukirkjan í Vestmannaeyjum fagnar 100 ára afmæli um helgina og af því tilefni er saga safnaðarins rakin. Þá litu Eyjafréttir inn á glæsilegt heimili Gígju Óskarsdóttur og Leifs Jóhannessonar sem þau tóku nánast allt í gegn.

Á síðum blaðsins má einnig finna viðtal við hOFFMAN-liða vegna nýju plötunnar VIÐ, umfjöllun um fjölbreytta listsköpun í Gallerý Skúrnum og heimsókn í húsasmíðanámið við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.

Ferðamannasumarið og rekstur Herjólfs eru tekin til skoðunar, rætt er við Ölmu Ingólfsdóttur um nýafstaðna Þjóðhátíð og sigurvegarar söngvakeppni barna segja frá upplifun sinni af stóra sviðinu í Herjólfsdal.

Íþróttir skipa að venju stóran sess. Handboltaveturinn er fram undan og rætt er við þjálfara meistaraflokka ÍBV og landsliðskonuna Andreu Jacobsen. Einnig er farið yfir lokasprettinn í Bestu deild karla og kvenna. Sigurmundur Gísli Unnarsson, efnilegur markvörður ÍBV, er íþróttamaður mánaðarins.

Eyjamaður mánaðarins er Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, sem hefur fangað mannlífið og stórviðburði í Vestmannaeyjum með myndavél sinni um áratugaskeið. Þetta og margt fleira má lesa í nýjasta vefblaði Eyjafrétta. Góða skemmtun!

Nýja tölublaðið er aðgengilegt öllum áskrifendum á vef Eyjafrétta. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta skráð sig hér. Þeir áskrifendur sem eiga enn eftir að virkja rafræna áskrift geta haft samband hér.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.