Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Gefur foreldrum ráð til að auðvelda börnunum skólalífið
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Einhugur, félag einhverfra barna og aðstandenda, stendur fyrir viðburði og fræðslu í Vestmannaeyjum þar sem Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir, menntatæknisérfræðingur og stofnandi fyrirtækisins HARTS, fer yfir tæknilausnir sem geta einfaldað skólalífið.

„Málfríður, Memrise, Rasmus, Notion, Brainrot. Þekkiði þessar lausnir og öpp?“ spyr Jóhanna Birna.

Í tengslum við heimsóknina verður Jóhanna einnig með fræðslu fyrir nemendur og kennara grunnskólans í Vestmannaeyjum, auk þess að funda með kennurum. Um kvöldið verður hún svo með fyrirlestur fyrir foreldra um öll tækifærin sem börnin þeirra – og þau sjálf – geta gripið til að einfalda námið og fá sem mest út úr því. Fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 2. september í Höllinni kl. 19:30.

Jóhanna hefur áður haldið fyrirlestur fyrir krakka um tæknilausnir sem þau geta nýtt til að einfalda sér námið og hefur mælt með frábærum öppum og vefsíðum sem mörg þeirra vissu ekki af – til að mynda að lesa texta inn á Google Docs í stað þess að pikka, eða taka mynd af reikningsdæmi, hlaða henni inn á gervigreindarsíður og fá útskýringu á því hvernig leysa á dæmið.

Brillerar í bandarísku skólakerfi

Jóhanna Birna er hafnfirsk. Hún fótaði sig illa í íslenska skólakerfinu en afar vel í því bandaríska. Þar stundaði hún nám við Flórídaháskóla og útskrifaðist með toppeinkunn, var valin á Dean’s-listann – sem jafna má við forsetalista hér heima – og leiðir alþjóðleg rannsóknarverkefni. Hún hefur einnig verið valin í frægðarhöll skólans. Þetta tókst henni þrátt fyrir ADHD, lesblindu og einhverfu.

Jóhanna stofnaði menntatæknifyrirtækið HARTS árið 2023, þá 21 árs að aldri, og hefur innleitt verkefnið „Skóli fyrir öll“ í Hafnarfirði, fyrst allra sveitarfélaga.

Jóhanna lýsir óbeinum hindrunum sem börn verða fyrir á einfaldan máta. Hún ræðir skólakerfið og hvernig hún hrökklaðist út úr því íslenska og inn í það bandaríska með frábærum árangri, og leggur áherslu á mikilvægi þess að líta á skólann sem vandann en ekki nemandann þegar kemur að námsörðugleikum – að aðlaga þurfi kennsluna að getu hvers og eins.

„Ég fór úr kennslustundinni og skildi ekki hvað var í gangi, ólíkt hinum nemendunum sem virtust gera það,“ lýsir hún grunnskólagöngu sinni.

„Það hafa allir verið í þessari stöðu einhvern tímann en ef þú upplifir þetta oft er það ekki gott. Þá þurfum við að biðja um aðgengilega uppsetningu, fá að nota hjálpartæki,“ segir hún og nefnir meðal annars forritið Helperbird, sem hjálpar nemendum með dyslexíu.

Foreldrar hvattir til að mæta í Höllina

Foreldrar þurfa oft að aðstoða börnin sín með heimanámið og því er gagnlegt að vita hvaða lausnir, öpp eða önnur úrræði eru í boði til að auðvelda bæði börnum og foreldrum námið.

Viðburðurinn fer fram miðvikudaginn 2. september kl. 19:30 í Höllinni í Vestmannaeyjum.

Nánari upplýsingar veitir Einhugur, félag einhverfra barna og aðstandenda.

Nýjustu fréttir

Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Fleiri utankjörfundaratkvæði en í vor
Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Á bak við tjöldin hjá Laxey í Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.