Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Enn er beðið eftir lokaskýrslu vegna tjónsins á vatnslögninni
Neysluvatnslögnin í fjörunni. Eyjafréttir/Óskar Pétur Friðriksson

Stefnt er að því að þrýstiprófanir á almannavarnarlögninni NSL-4 hefjist í þessari viku, að því gefnu að allar forsendur verði fyrir hendi. Þetta kemur fram í uppfærslu Vestmannaeyjabæjar um stöðu málsins.

Undirbúningur prófananna hefur farið fram í samráði við NOV, framleiðanda lagnarinnar. Fyrirtækið hefur samþykkt framkvæmdalýsingu og verður þrýstingur aukinn í áföngum samkvæmt fyrirfram skilgreindu verklagi.

Markmiðið er að afla skýrari upplýsinga um ástand lagnarinnar og kanna hvernig hún bregst við þegar hún er sett undir álag. Tryggingafélögum hefur verið gerð grein fyrir fyrirhuguðum aðgerðum og þau upplýst um framgang málsins.

Enn er beðið eftir lokaskýrslu SUSEA7 vegna tjónsins og því liggja ekki fyrir nýjar upplýsingar frá útlagnaraðilanum að svo stöddu. Vestmannaeyjabær segist munu birta frekari upplýsingar þegar niðurstöður lokaskýrslunnar og þrýstiprófananna liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.