
Styrkleikarnir verða haldnir í Herjólfsdal laugardaginn 29. ágúst, frá klukkan 12 til 20. Viðburðurinn er táknræn áminning um mikilvægi stuðnings og samstöðu við fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Rakel Ýr Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu segir alla velkomna og hvetur fyrirtæki, félög, fjölskyldur og vinahópa sérstaklega til að skrá þátttöku sína.
„Styrkleikarnir snúast um að fólk komi saman og gangi fyrirfram ákveðinn hring, hvert á sínum hraða. Með því sýnum við þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning og minnum á að enginn þarf að takast á við krabbamein einn,“ segir Rakel.
Styrkleikarnir voru fyrst haldnir í Vestmannaeyjum í fyrra og segir Rakel viðburðinn hafa gengið vonum framar.
„Það gekk ótrúlega vel og mjög góð stemning myndaðist í dalnum. Yfir daginn var skemmtileg fjölskyldustemning og þegar rökkva tók stóðum við fyrir ljósastund þar sem kertum var fleytt á tjörninni. Þar hugsuðum við til þeirra sem greinst hafa með krabbamein og minntumst þeirra sem við höfum misst. Þetta er stund sem erfitt er að lýsa í orðum, því hún hrærir við svo mörgu innra með manni. Hún er alveg einstök.“
Styrkleikarnir stóðu yfir í heilan sólarhring í fyrra. Reynslan sýndi hins vegar að margir hópar áttu erfitt með að skuldbinda sig til þátttöku svo lengi. Því hefur fyrirkomulagið verið einfaldað í ár.
„Við byrjum á hádegi og göngum til klukkan 20, þegar allir sameinast í ljósastund. Við hvetjum hópa til að velja sér ákveðinn tíma yfir daginn. Fjölskyldur, vinahópar, vinnufélagar, íþróttahópar og aðrir geta þannig tekið sig saman, gengið í klukkustund eða lengur og átt góðan dag með okkur í Herjólfsdal.“
Rakel leggur áherslu á að allir geti tekið þátt og ekki þurfi mikinn undirbúning.
„Í raun er það eina sem þarf að gera að reima á sig skóna og mæta. Fólk getur komið með nesti, notið samverunnar og gengið á sínum hraða. Við viljum að þetta sé aðgengilegur og fjölskylduvænn viðburður fyrir allt samfélagið.“
Þótt einstaklingar geti mætt án fyrirvara eru fyrirtæki, félög og aðrir hópar hvattir til að skrá sig. Skráningin hjálpar skipuleggjendum að sjá hversu margir ætla að taka þátt og hvenær hóparnir hyggjast ganga.
Best er að senda tölvupóst á bog@eyjar.is með nafni hópsins og upplýsingum um áætlaðan göngutíma. Enginn formlegur skráningarfrestur er, en óskað er eftir því að hópar láti vita af sér sem fyrst.
Klukkan 20 sameinast þátttakendur í lokahring Styrkleikanna. Að honum loknum verður ljósastund og kertum fleytt á tjörninni.
„Í lokahringnum komum við sem flest saman og sýnum á táknrænan hátt hversu megnug við getum verið þegar við stöndum saman. Við vonumst til þess að fólk sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur þess, finni að samfélagið stendur með því.“
Rakel segir Styrkleikana jafnframt vera gott tækifæri til að styrkja tengslin innan samfélagsins. „Viðburður sem þessi minnir okkur á kraft samstöðunnar. Hann gefur fjölskyldum, vinum og vinnufélögum tækifæri til að eiga góða stund saman og sýna stuðning sinn í verki. Saman erum við sterkari.“
Fjölskylduskemmtun er fyrirhuguð í Herjólfsdal milli klukkan 15 og 16. Þar koma Una og Sara fram, trúbadorinn Aron Daði tekur lagið og einnig þeir Hákon og Andri Magg. Þá er stefnt að því að bjóða upp á hoppukastala fyrir yngri kynslóðina og eitthvað í gogginn fyrir gesti. Nánari dagskrá verður kynnt á föstudag.
„Nokkrir einstaklingar og hópar hafa þegar boðað komu sína. Við hvetjum þó alla sem hyggjast taka þátt til að hafa samband og skrá sig svo við fáum sem besta yfirsýn yfir þátttökuna,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson, einn skipuleggjenda í samtali við Eyjafréttir.
