Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur hvatt pysjubjörgunarfólk til að fara varlega við sleppistaðinn á Ofanleitishamri og standa ávallt fyrir aftan hlaðna vegginn þegar pysjum er sleppt.
Halldór B. Halldórsson, myndatökumaður tók upp myndband á svæðinu í dag. Þar sjást aðstæður vel og hversu mikilvægt er að börn og fullorðnir haldi sig öruggum megin við vegginn og fari ekki nærri bjargbrúninni.
Rétt er að minna á að Ofanleitishamar er ekki eini staðurinn þar sem hægt er að sleppa pysjum. Einnig er hægt að fara með þær suður í Stórhöfða eða í Höfðavík.
Góð og örugg leið við sleppingu er að leggja kassann á hliðina á öruggum stað og leyfa pysjunni sjálfri að rölta út. Hún gengur þá gjarnan í átt að brúninni, gerir sig klára og flýgur á haf út þegar hún er tilbúin. Það er ekki síður skemmtilegt að fylgjast með pysjunni á þeirri vegferð.
Mikilvægast er að gefa pysjunni svigrúm og gæta þess um leið að pysjubjörgunarfólkið haldi sig í öruggri fjarlægð frá bjargbrúninni. Umfram allt skulum við fara varlega.