Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar hefur hafið störf. Hópnum er ætlað að greina stöðu ferjusiglinga á Íslandi og móta heildstæða stefnu ásamt aðgerðaáætlun um öruggar og áreiðanlegar ferjusamgöngur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði starfshópinn síðsumars og er gert ráð fyrir að hann ljúki störfum fyrir 1. desember næstkomandi.

Stefnt er að því að í aðgerðaáætluninni verði meðal annars sett fram framkvæmda- og kostnaðaráætlun um endurnýjun íslenska ferjuflotans. Starfshópurinn var skipaður í samræmi við aðgerð í samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040.

„Það er brýn nauðsyn að móta fyrstu heildstæðu stefnu til framtíðar um ferjusamgöngur á Íslandi. Mikilvægt er að greina þarfir fyrir slíkar samgöngur og hvernig best fer á því að skipuleggja þær með tilliti til samgönguþarfa, öryggis og orkuskipta,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í tilkynningunni.

Samráð við ferjusamfélög

Sérstök áhersla verður lögð á gott samráð við hagaðila. Af þeim sökum var óskað eftir tengiliðum frá sveitarfélögum sem reiða sig á ferjusamgöngur.

Starfshópurinn mun eiga samráð við tengiliðina og gefa þeim kost á að veita umsögn um drög að niðurstöðum áður en þær verða afhentar ráðherra.

Í starfshópnum sitja:

  • Sóley Ragnarsdóttir, formaður, án tilnefningar
  • Hilmar Stefánsson, tilnefndur af Vegagerðinni
  • Jón Gunnar Jónsson, tilnefndur af Samgöngustofu
  • Sunna Þórðardóttir, tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu

Ekki verður greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum, segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.