Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum

Alls eru nú 3.540 kjósendur á kjörskrá í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara á morgun, laugardaginn 16. maí. Kjósendum hefur fjölgað talsvert frá síðustu sveitarstjórnarkosningum en árið 2022 voru 3.284 á kjörskrá og 3.162 árið 2018. Samkvæmt upplýsingum frá Sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum höfðu 591 einstaklingar greitt atkvæði utan kjörfundar síðdegis í dag. Kjörsókn í […]
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir

Segja má að hápunktur kosningabaráttunnar í Vestmannaeyjum hafi verið opinn kosningafundur Eyjafrétta í Eldheimum í gær, sem Tryggvi Már Sæmundsson ritstjóri stýrði af öryggi með góðri aðstoð Anniku Vignisdóttur, aðstoðarritstjóra. Á annað hundrað manns mætti á fundinn þar sem fulltrúar framboðanna þriggja sátu í pallborði. Frá D-lista Sjálfstæðisflokksins mættu Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, frá […]
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar

Við fjölskyldan fluttum til Vestmannaeyja árið 2021 af ástæðu. Hér var betra að búa, betra að ala upp börn og hér var samfélag sem byggir á dugnaði, nánd og því að hlutirnir eru látnir gerast. Eitt er ljóst að þetta samfélag varð ekki til af sjálfu sér. Fólkið sem ryður brautina Vestmannaeyjar eru einstakur staður […]
Teistan siglir til Landeyjahafnar

Bilun í rafmótor Herjólfs heldur áfram að hafa áhrif á siglingar skipsins og var ákveðið að fella niður ferðir dagsins til Landeyjahafnar vegna aðstæðna. Herjólfur siglir þess í stað eina ferð til Þorlákshafnar klukkan 16 í dag. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. kemur fram að skipið sigli nú aðeins á annarri skrúfunni sem hafi í […]
Fyrsta framhaldsprófið í trommuleik við Tónlistarskóla Vestmannaeyja

Nú líður að lokum vorannar Tónlistarskólans og þar með skólaárinu 2025-2026. Árið hefur verið að mestu með hefðbundnum hætti hvað kennslu varðar, en framkvæmdir á húsnæðinu hafa sett svip sinn á skólastarfið. Tökum við slíku fagnandi, enda löngu kominn tími á lagfæringar á húsnæðinu. Má meðal annars nefna að nú er komið aðgengi fyrir fatlaða […]
Hvað gerist næst

Maður heyrir af því að bókunarkerfið er komið í lag sem er mjög gott og það hefur verið erfitt fyrir starfsfólk Herjólfs að vinna við þessar aðstæður. En þá skaut upp þeirri hugsun. Hvað bilar næst, kannski mótorinn á hinni skrúfunni eða ?????. Á meðan er Herjólfur 3 ekki með haffærnisskírteini enda úr sér genginn […]
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka

Á annað hundrað manns mætti á opinn framboðsfund Eyjafrétta í Eldheimum í gær þar sem fulltrúar framboðanna þriggja í Vestmannaeyjum tókust á um málefni bæjarins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Frá D-lista Sjálfstæðisflokksins mættu Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, frá E-lista Eyjalistans þau Arndís María Kjartansdóttir og Anton Björnsson og frá M-lista Miðflokksins Jón Þór Guðjónsson og […]
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar

Herjólfur ohf. hefur birt nýja tilkynningu um breytta siglingaáætlun vegna siglinga seinnipart föstudags og á laugardag. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag, föstudaginn 15. maí. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00 í stað 17:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:00 í stað 20:45. Aðrar ferðir falla niður. Á morgun, laugardaginn 16. maí, verður siglt tvær […]
Sterk hagsmunagæsla

Sterk hagsmunagæsla er ekki aukaatriði. Hún er forsenda þess að Vestmannaeyjar haldi áfram að vera öflugt og eftirsótt samfélag til framtíðar. Margt má bæta og gera betur í þeim málum sem eru á forræði ríkisins og snúa að hagsmunum okkar hér í Eyjum. Það er verkefni bæjarstjórnar að þrýsta á ríkisvaldið um úrbætur og ná […]
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY

Gústav Axel Gunnlaugsson verður gestakokkur á Einsa Kalda á MATEY sjávarréttahátíðinni og kynnir þar spennandi og nútímalegan matseðil þar sem íslenskt sjávarfang er túlkað með ferskum og skapandi hætti. Seðillinn endurspeglar sterka sýn Gústavs á jafnvægi bragða og áferðar. Hann hefst á skarkola og leturhumri, borinn fram með jarðskokkum, kryddjurta-majónesi, sýrðum lauk og hollandaise-sósu. Þá […]
Öflug menning mótar lífið

Hér á Eyjunni okkar fögru er svo margt gott að finna. Hér er mögnuð náttúra, öflugt tómstundastarf, lifandi lista- og menningarstarf en fyrst og fremst er hér fólk að finna sem vill það besta fyrir bæjarfélagið sitt og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að efla það blómlega líf sem hér þrífst. ÍBV […]
Bókunarkerfi Herjólfs komið aftur í gagnið

Herjólfur ohf. hefur tilkynnt að bókunarkerfi félagsins sé komið aftur í fulla virkni eftir bilanir í rétta viku vegna eldsvoða í gagnaveri í Amsterdam þar sem kerfið er hýst.. Fram kemur í tilkynningu að allar bókanir sem borist hafi síðustu daga hafi nú verið færðar inn í kerfið og að farþegar geti aftur bókað ferðir […]
Nýtt blað Eyjafrétta komið út

Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út. Blaðið er með fjölbreyttu efni úr samfélaginu, bæjarmálum, íþróttum og atvinnulífi í Vestmannaeyjum. Á forsíðunni eru stelpurnar í ÍBV sem hafa farið fljúgandi af stað í Bestu deildinni. Sveitarstjórnarkosningarnar eru fyrirferðarmiklar í blaðinu þar sem farið er yfir stöðuna fyrir kosningar, framboðin þrjú og helstu áherslur frambjóðenda. Viðtöl eru […]
Framboðin mætast í Eldheimum í dag

Opinn framboðsfundur Eyjafrétta vegna sveitarstjórnarkosninganna 2026 fer fram í Eldheimum í dag, fimmtudaginn 14. maí, kl. 17:00. Á fundinum munu fulltrúar frá Eyjalistanum, Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum takast á um helstu málefni bæjarins í aðdraganda kosninganna sem fram fara næstkomandi laugardag. Fundargestum gefst kostur á að leggja fram spurningar til frambjóðenda og verður sérstök áhersla lögð […]
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun

Herjólfur ohf. hefur birt nýja tilkynningu um siglingaráætlun næstu daga. Samkvæmt henni verður siglt sex ferðir til Landeyjahafnar á morgun, fimmtudaginn 14. maí. Brottfarir frá Vestmannaeyjum verða klukkan 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00 og 19:30. Frá Landeyjahöfn verður siglt klukkan 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15 og 20:45. Á föstudag hefur áætlun aðeins verið gefin út […]
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn

Innviðaráðuneytið hefur samþykkt beiðni Vestmannaeyjabæjar um að framlengja ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja fram til mánaðarmóta. Frá þessu er greint á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar. Í framhaldinu mun Vegagerðin hafa samband við flugfélagið Norlandair um áframhaldandi flug samkvæmt óbreyttu fyrirkomulagi, en gert er ráð fyrir tveimur ferðum á dag áfram. Ástæða framlengingarinnar er sú að Landeyjahöfn hefur enn […]
Útsýnisskálinn opnaður – myndband

Hluti af nýju listaverki Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum var formlega opnað í gær á nýja hrauninu að viðstöddum meðal annars listamanninum sjálfum og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Listaverkið ber vinnuheitið Sjónarhorn Flakkarans (The Wanderers Perspective) og skiptist í tvo meginhluta. Annars vegar er um að ræða nýjan útsýnisskála sem tekinn var í notkun í gær […]
Stefnuleysi bæjarstjórnar

Eftir örfáa daga ganga íbúar Vestmannaeyja til kosninga. Ljóst er að miklar breytingar verða á bæjarstjórn, enda líklegt að aðeins einn eða tveir af níu núverandi bæjarfulltrúum haldi áfram störfum. Nýtt fólk tekur þá við, fólk sem í mörgum tilfellum hefur nýjar hugmyndir og skýra sýn á það sem þarf að gera. Í því ljósi […]
Hugum að staðsetningu Féló fyrir aukna þátttöku ungmenna í samfélaginu

Upphaf félagsmiðstöðva Félagsmiðstöðvar fyrir unglinga hafa verið starfræktar á Íslandi í fjölda ára, fyrsta félagsmiðstöðin var stofnuð árið 1957 í Reykjavík og markaði hún upphafið að skipulögðu forvarnar- og tómstundastarfi fyrir unglinga hér á landi. Frá þeim tíma hefur starf félagsmiðstöðva tekið miklum breytingum og árið 1985 var SAMFÉS stofnað þar sem tilgangurinn var að […]
Herjólfur stefnir á siglingar í Landeyjahöfn

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar í dag samkvæmt uppfærðri áætlun sem félagið hefur birt. Samkvæmt tilkynningunni verða brottfarir frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00, 12:00, 16:00 og 18:30. Ferðin sem áður var auglýst klukkan 17:00 færist því fram um eina klukkustund. Brottfarir frá Landeyjahöfn verða klukkan 10:45, 13:15, 17:15 og 20:00. Kvöldferðin frá Landeyjahöfn er […]