„Eins og eitthvað væri að pikka í mig...“
Tvær ólíkar leiðir að stóru Lottóvinningunum um síðustu helgi
Ljósmynd/úr safni

Það voru tveir vinningshafar sem skiptu með sér einföldum 1. vinningi í Lottó síðastliðinn laugardag og fær hvor um sig rúmar 5,9 skattfrjálsar milljónir króna í vinning. Þau heppnu eru bæði rétt rúmlega fimmtug og búsett á höfuðborgar-svæðinu. Og þótt þau hafi haft sömu tölurnar réttar var leiðin að vinningnum ólík, segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.

Annar vinningshafinn, kona sem keypti miðann sinn í Lottóappinu, sat ásamt manni sínum í mestu makindum fyrir framan sjónvarpið á laugardagskvöldinu þegar hana grunaði allt í einu að hún ætti að athuga Lottómiðann sinn. „Það var eiginlega eins og eitthvað væri að pikka í mig að fara inn í appið og skoða miðann,“ sagði hún þegar haft var samband við hana. Þegar hún opnaði appið blasti við henni sú ótrúlega staðreynd að hún var með allar tölurnar réttar. Það tók þó svolítið langan tíma að meðtaka tíðindin. „Ég held að ég hafi farið inn í appið aftur og aftur alla helgina til að ganga úr skugga um að þetta væri ennþá þarna og að þetta hefði ekki bara verið draumur,“ sagði hún og hló.

Hinn vinningshafinn var með miðann sinn í öruggri áskrift og hafði enga hugmynd um að hann væri allt í einu orðinn rúmum 5,9 milljónum króna ríkari. Starfsfólki Íslenskrar getspár gekk heldur brösulega að ná í hann á mánudagsmorguninn þar sem alltaf var slökkt á símanum hans. Eftir nokkrar tilraunir náðist loks samband síðar um daginn og þá kom skýringin í ljós. Vinningshafinn hafði einfaldlega verið sofandi eftir næturvakt nóttina áður án minnstu hugmyndar um símtöl og nýfenginn milljónavinning. Báðir vinningshafarnir voru að vonum afar ánægðir með vinninginn og sögðu hann koma á sérstaklega góðum tíma.

Í tilkynningunni er vinningshöfunum óskað hjartanlega til hamingju með vinninginn og um leið er öllum spilurum þakkað fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Andri og Arnór í eldlínunni í Svíþjóð
Herjólfur hefur siglt 200 ferðir til Þorlákshafnar á árinu
Milena í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Ellefu tonna hol af blálöngu hjá Breka
Síðasta helgi bændamarkaðarins í Krónunni
Áform um fjórar nýjar íbúðir við Sólhlíð
Suðureyingar taka við keflinu á Lundaballinu
Óbætanlegt efnahagstjón verði þróuninni ekki snúið við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.