Ási Friðriks í Sögu og súpu í Sagnheimum

Dagskrá Leyndardóma Suðurlands heldur áfram í dag, fimmtudag en í hádeginu verður boðið upp á Sögu og súpu í Sagnheimum. �?ingmaðurinn Ásmundur Friðriksson mun þar ræða um ferðamennsku og hvernig oft megi á einfaldan og skemmtilegan hátt nýta þau tækifæri og möguleika sem felast í sögu og menningu Eyjanna. Saga og súpa í Sagnheimum hefst […]

Áfram veik

Undirmenn á Herjólfi tilkynntu sig veika í gærkvöldi og fóru því ekki með skipinu í morgun, annan daginn í röð. Herjólfur sigldi í dag til �?orlákshafnar samkvæmt áætlun en haft er eftir �?lafi William Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips á mbl.is að aðrir starfsmenn félagsins, bæði úr Eyjum og Reykjavík, hafi hlaupið í skarðið. (meira…)

Staldra við varðandi veitingarekstur í Eldheimum

Fyrir nokkru var auglýst eftir rekstraraðila til að sjá um veitingasölu í Eldheimum. Ýmsir veitingamenn bæjarins voru ekki sáttir við þá samkeppni sem þarna yrði með tilstuðlan Vestmannaeyjabæjar. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær. Eftirfarandi bókun varð gerð: �??Bæjarráð fjallaði um mögulegan rekstur veitingaþjónustu í Eldheimum og ábendingar frá veitingamönnum í Eyjum […]

Í andlegu áfalli

Af viðtölum Eyjafrétta við fólk úr áhöfn Herjólfs er þeim ekki hlátur í hug og finnst að Eimskip hafi valtað yfir það á skítugum skónum. Lögin um frestun verkfalls hafi komið eins og blaut tuska í andlit þess. Ekki vilja þau tjá sig um forföll vegna veikinda í morgun en segja viðbrögð samfélagsins við sjálfsögðum […]

�?hentugleiki réttinda

Mér finnst ógeðslegt hversu margir virðast til í að segja að stjórnarskrárvarin réttindi fólks megi bara fjúka um veður og vind því það stafa af þeim réttindum einhver óþægindi um hríð. �?að er einmitt ekki þegar allt leikur í lyndi sem það þarf að standa vörð um réttindi fólks, heldur þegar komið er í hart. […]

Undirmenn á Herjólfi mættu ekki til vinnu

Undirmenn á Herjólfi um borð í Herjólfi hafa ekki mætt til vinnu í morgun. Engu að síður siglir skipið á milli lands og Eyja. �?etta kemur fram á R�?V.is en frumvarp um frestun á verkfalli undirmanna á Herjólfi var samþykkt eftir miðnætti á Alþingi. Skipið lagði af stað í morgun til Landeyjahafnar en töluverðar tafir […]

Enginn hvalur í Höfðavík

Eins og marga grunaði, þá var enginn hvalur í Höfðavík í gær eins og greint var frá hér á Eyjafréttum. Um var að ræða aprílgabb Eyjafrétta en blaðamenn gáfu sér ekki tíma til að fylgjast með hvort einhverjir hafi rokið til. Fréttir hafa þó borist af einhverjum sem hlupu út í bíl en áttuðu sig […]

Verkfalli undirmanna á Herjólfi frestað

Nú rétt í þessu var að ljúka 3. umræðu um lagafrumvarp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra um lög á verkfall undirmanna Herjólfs. Frumvarpið var samþykkt og er verkfallsaðgerðum undirmanna því frestað til 15. september. �??Með verkfallsaðgerðum er átt við vinnustöðvanir, verkbönn, verkföll og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög […]

Jórunn leiðir Eyjalistann

Jórunn Einarsdóttir, grunnskólakennari leiðir lista Eyjalistans sem býður fram í bæjarstjórnarkosningunum 31. maí næstkomandi. Listinn býður fram undir listabókstafnum E en reynsluboltinn Stefán �?skar Jónasson, verkstjóri, skipar annað sætið. Að Eyjalistanum standa Björt framtíð, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og óflokksbundnir og óháðir. �??Allir sem að Eyjalistanum standa eiga það sameiginlegt að vilja […]

Verið að skikka fólk til að vinna næturvinnu

�??Sjómenn á Herjólfi eru í yfirvinnubanni þannig að það á að skikka fólk til að vinna næturvinnu um borð í Herjólfi. Við höfum reynt að ná í stjórnarþingmenn en þeir eru allir í felum. Við höfum óskað eftir fundi í samgöngunefnd en þeir sjá ekki ástæðu til að tala við okkur. �?annig að það er […]

Hvalreki í Höfðavík

Hval hefur rekið að landi í Höfðavík við Stórhöfða. Um er að ræða langreyði, um 20 metra langur en hvalurinn er á lífi og vinna starfsmenn Náttúrustofu Suðurlands, ásamt aðstoðarfólki að því að ausa sjó á skepnuna til að halda henni á lífi. �??Langreyðurinn er á lífi en mikilvægt að ná honum út á sjó […]

Bátur í vandræðum við Landeyjahöfn – UPPF�?RT

Rétt í þessu var að berast neyðarboð til Björgunarfélags Vestmannaeyja. �?ar segir að mælingarbátur hafi misst stýrið við Landeyjahöfn og reki í átt að garðinum, vestan megin við hann. Björgunarbáturinn �?ór er kominn á svæðið en nánari fréttir verða birtar um leið og þær berast. Uppfært: Búið er að koma taug í bátinn og �?ór […]

Ríkisstjórn leggur til frestun verkfalls undirmanna á Herjólfi

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að leggja fyrir Alþingi lagafrumvarp um að fresta til 15. september verkfallsaðgerðum sem Sjómannasambands Íslands hóf á Herjólfi 5. mars. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem var að berast ritstjórn Eyjafrétta. �??Með verkfallsaðgerðum er átt við vinnustöðvanir, verkbönn, verkföll og aðrar aðgerðir sem ætlað er að […]

Viltu reyna sigla og reka Herjólf?

Á vef Elko er kynntur til leiks nýr tölvuleikur, Herjólfur Simulator. Í leiknum sest spilari í skipstjórnarsætið um borð í Herjólfi en einnig í stól framkvæmdastjóra því bæði þarf að sigla skipinu og að reka það. �??Sigldu með farþega og bifreiðar í glænýjum íslenskum hermir. Spilari þarf bæði að sjá um siglingar skipsins og reka […]

Arnar hættir eftir tímabilið

Arnar Pétursson hættir sem þjálfari karlaliðs ÍBV í handbolta. �?etta kemur fram á Handbolti.org en Arnar tók við ÍBV liðinu fyrir tímabilið 2010-2011 og stýrði svo liðinu upp í úrvalsdeild þremur árum síðar með Erlingi Richardssyni. Í vetur hefur hann svo starfað með Gunnari Magnússyni en í fréttinni segir jafnframt að Arnar taki svo við […]

Gjaldtaka á Heimaklett

Samkvæmt heimasíðu Vestmannaeyjabæjar hefur nú verið ákveðið að hefja gjaldtöku á Heimaklett. Mun gjaldið vera ætlað til kynningar og uppgræðslu á Heimakletti. “Í ljósi mikils ágangs hefur Umhverfis- og framkvæmdasvið ákveðið að hefja gjaldtöku á Heimaklett. Gjaldinu verður stillt í hóf eða 600 kr. á ferð.” segir í tilkynningu á Vestmannaeyjar.is “Mun gjaldinu verða ætlað […]

Elliði oddviti Sjálfstæðismanna

Elliði Vignisson, bæjarstjóri leiðir lista Sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum. �?rír efstu menn á lista Sjálfstæðismanna, eru allir sitjandi bæjarfulltrúar en auk Elliða eru Páley Borgþórsdóttir í öðru sæti og Páll Marvin Jónsson í þriðja sæti. Trausti Hjaltason er í fjórða sæti en Gunnlaugur Grettisson, sem setið hefur í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn, gaf ekki kost á […]

Stefnt á að Herjólfir sigli í Landeyjahöfn á morgun, þriðjudag

Stefnt hefur verið á að Herjólfir sigli í Landeyjahöfn á morgun, þriðjudaginn 1. apríl. Nei, þetta er ekki fyrirfram unnið aprílgabb svona í ljósi samgöngumála þessa dagana. Í tilkynningu frá Eimskip segir að fyrirliggjandi ölduspá sé góð en siglt er frá Eyjum 8:30 og frá Landeyjahöfn 10:00. �??Endanleg ákvörðun um siglingar Herjólfs verður gefin út […]

Hvernig koma á ættingjum í fermingarveisluna

Samgönguvandi Eyjamanna kemur fram á flestum sviðum samfélagsins. Verkfall undirmanna hefur nú staðið í tæpar fjórar vikur og vex vandinn með degi hverjum. Fermingar eru handan við hornið en fyrsta fermingarhelgin er um næstu helgi. Eins og gefur að skilja er von á fjölmörgum gestum í fermingarveislur í Vestmannaeyjum og margir Eyjamenn höfðu hug á […]

Eyjapeyi safnar fyrir systur sína með töfrasýningu

Töframaðurinn ungi Hermann Töframaður hefur slegið í gegn í þáttunum Ísland got talent. Hermann, sem er aðeins 13 ára, er í raun Eyjapeyi enda er afi hans Hermann Ingi úr Logunum. Hermann hefur sýnt töfrabrögð víðs vegar en allur ágóði sýninganna rennur í styrktarsjóð systur hans, Karenar sem þarf að komast erlendis í aðgerð til […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.