Eyjapeyi safnar fyrir systur sína með töfrasýningu
Töframaðurinn ungi Hermann Töframaður hefur slegið í gegn í þáttunum Ísland got talent. Hermann, sem er aðeins 13 ára, er í raun Eyjapeyi enda er afi hans Hermann Ingi úr Logunum. Hermann hefur sýnt töfrabrögð víðs vegar en allur ágóði sýninganna rennur í styrktarsjóð systur hans, Karenar sem þarf að komast erlendis í aðgerð til að laga hryggjskekkju. Hermann ætlar að standa að frábærri fjölskyldusýningu ásamt Töfrahetjunum í Salnum í Kópavogi föstudaginn 16. maí. Töframaðurinn Einar Mikael, sem er Eyjamönnum að góðu kunnur, kemur fram í sýningunni og Eyjakonan Sigga Lund hefur einnig aðstoðað töframanninn unga.
Um sýninguna
Töfrahetjurnar er frábær fjölskyldusýning sem inniheldur heimsfrægar sjónhverfingar og ótrúleg töfrabrögð. Áhorfendur fá að taka virkan þátt í sýningunni og fá nokkrir heppnir að aðstoða Töfrahetjurnar. Í sýningunni fá áhorfendur að sjá alvöru töfradýr og fá myndir af sér með hetjunum eftir sýninguna. Töfrahetjurnar eru samblanda af nokkrum framúrskarandi einstaklingum sem geta gert ótrúlega hluti. Í töfrahetjunum eru meðal annars Einar Mikael töframaður og Viktoría töfrakona ásamt fleiri hetjum.
Sýningin er til styrktar Karenar systur Hermanns töframanns sem er að keppa í Íslands Got Talent. Verið er að safna fyrir aðgerð til að laga hryggskekkju sem Karen er með og vekja athygli á málstaðnum. Töfrahetjurnar bjóða alla velkomna til að upplifa ótrúlega hluti og sjá töfrandi sýningu í Salnum.
Ágóði:
Allur ágóði af miðasölu rennur óskertur til að safna fyrir aðgerð Karenar. Hérna eru upplýsingar til að leggja inná styrktarreikninginn frjáls framlög.
Reikningsnúmer: 322-13-110342 / Kt: 031296-2349
Miðasala hefst miðvikudaginn 2. apríl n.k. Miðar fást inná salurinn.is og midi.is. Miðaverð: 2.490 kr. Dagsetning: föstudagurinn 16. maí, sýningin hefst kl: 19:30.
Facebook-síða Hermans
Atriði Hermanns í Íslands Got Talent
Viðtal við Hermann.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.