Hvernig koma á ættingjum í fermingarveisluna
Samgönguvandi Eyjamanna kemur fram á flestum sviðum samfélagsins. Verkfall undirmanna hefur nú staðið í tæpar fjórar vikur og vex vandinn með degi hverjum. Fermingar eru handan við hornið en fyrsta fermingarhelgin er um næstu helgi. Eins og gefur að skilja er von á fjölmörgum gestum í fermingarveislur í Vestmannaeyjum og margir Eyjamenn höfðu hug á að leggja land undir fót og fara í fermingarveislur á fastalandinu. �?að er orðið verulega erfitt í dag enda aðeins fjórar ferðir í viku og erfitt að komast með bíla í ferðirnar í kringum helgarnar.
Arnsteinn Ingi Jóhannesson er fæddur og uppalinn á Akureyri. Sonur hans verður tekinn í tölu fullorðinna um næstu helgi en nánustu ættingar drengsins í föðurlegg eru búsettir á fastalandinu. Arnsteinn birti miður skemmtilega samantekt á því hvernig hans fólk geti komist í fermingu sonar síns um næstu helgi. Færslu Arnsteins má lesa hér að neðan:
Sæl elsku systkini
�?ar sem verkfallið stendur enn yfir, samninganefndir tala ekki saman og Alþingi alveg gelt þá eru líkur á að Herjólfur sigli um helgina litlar.
�?ið eigið pantað með Herjólfi frá �?orlákshöfn nk. föstudag kl. 19.15. Heimferð á sunnudag til �?orlákshafnar kl. 15.30. Eigið pantað fyrir bílinn. Kostnaður er um 17.500 kr. Nokkrir möguleikar eru í stöðunni og ætla ég að reyna að útskýra þá hér eftir bestu getu:
1. Ef allt gengur upp tekur um 5-5,5 klst að keyra frá Akureyri í �?orlákshöfn. Mæting kl. 18.45. Fínt að leggja af stað frá Akureyri kl. 12
2. Ef siglt verður frá Landeyjahöfn þá tekur rúmlega 1 klst í viðbót að keyra þangað og því þarf að leggja fyrr af stað. Kostnaður er minni og þið fáið þá væntanlega endurgreiddan mismuninn.
3. Ef siglt er til �?orlákshafnar á sunnudeginum ættuð þið að festa land um 18.30.
4. Ef siglt verður til Landeyjahafnar á sunnudeginum færist ferðin ykkar til 17.30. �?ið eruð ca. 40 mínútur á leiðinni og það tekur um 6-6,5 klst. Að keyra til Akureyrar.
5. Ef ekki verður búið að leysa verkfallið þá er möguleiki á að komast með Víkingi frá Landeyjahöfn kl. 19 á föstudegi eða 10 á laugardeginum. Báturinn tekur ekki bíla og því þarf að skilja bílinn eftir í Landeyjahöfn. Báturinn tekur einungis 60 farþega og því ráð að panta far strax því það eru margir í sömu sporum og þið. Kostnaður er sá sami og í Herjólf en heildarupphæð lækkar þar sem þið eruð ekki með bílinn með ykkur.
6. �?kosturinn við lið 5 er samt sá að bíllinn þinn verður eftir í Landeyjahöfn og ekkert tryggt með siglingar þangað á sunnudeginum. Fari ölduhæð yfir 2,4m eða ýmsir aðrir umhverfisþættir verði óhagstæðir þá verður ekki siglt þangað. �?á áttu möguleika á að fara til �?orlákshafnar ef verkfallið verður leyst en þarft sjálfur að sækja bílinn í Landeyjahöfn (um 80 mín. Keyrsla aðra leið) þar sem Herjólfur ber ekki ábyrgð á siglingum Víkings.
7. Ef Víkingur fer á sunnudeginum eru ferðir tilbaka kl. 8.30 og 17.30.
8. Sami ókostur er við lið 5 ef verkfallið verður ekki leyst á sunnudeginum og þú ferð með Víkingi frá Landeyjahöfn en ófært verður með honum á sunnudeginum. �?á er bíllinn í Landeyjahöfn og hugsanlega kemstu með Víkingi á mánudeginum á sömu tímum. Ef enn verður ófært í Landeyjahöfn getur þú farið með Herjólfi í �?orlákshöfn kl. 8.30 en þarft eins og áður segir að sækja sjálfur bílinn í Landeyjahöfn. �?ú átt hins vegar ekki tryggt sæti í þessar ferðir á mánudeginum ef ferðin sem þú átt pantað í á sunnudegi fellur niður.
9. Einn möguleiki er í viðbót en hann er sá að panta far á fimmtudegi kl. 11.45 frá �?orlákshöfn og tilbaka á mánudeginum kl. 8.00. �?líklegt er að þið getið fengið kojur og upppantað er fyrir bíla á fimmtudeginum. �?ví skapast sú óvissa hvort þið siglið tilbaka á sama stað og þið skiljið bílinn ykkar eftir, sbr. lið 6. Einnig er það svo að ef siglt verður frá Landeyjahöfn þá færist þið í ferðina kl. 10.00 og þurfið því að leggja af stað úr Rvk. Kl. 7.45 í stað 11.00. �?vissuþættirnir eru reyndar fleiri en ég nenni ekki að telja þá upp hérna.
10. �?ið getið líka komið með flugi en Ernir fljúga a.m.k. tvisvar á dag. Verðið er 112.800 kr. fyrir ykkur fram og tilbaka frá Reykjavík eða 28.200 kr á mann. Ef þú ert heppinn þá gætir þú náð afsláttargjaldi ef þeir bæta við ferðum en það kemur líklega ekki í ljós fyrr en í lok vikunnar. �?á ætti fargjaldið að lækka um ca. 25.000 kr. �?ú þarft samt að afbóka Herjólfsferðina með meira en sólarhringsfyrirvara til að fá hana endurgreidda.
�?g skil ykkur mjög vel elskurnar mínar ef þið nennið ekki að standa í þessu en þið látið mig kannski vita sem fyrst svo við vitum hvað við þurfum að baka mikið 😉

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.