Kvikmyndafyrirtækið True North óskar eftir aðstoð Eyjamanna

Fulltrúi True North hafði samband við ritstjórn Eyjafrétta og óskaði eftir liðssinni. Áætlað er að taka upp auglýsingu á næstu dögum fyrir UNICEF á Íslandi og vantar eitt og annað fyrir auglýsingagerðina, m.a. tjöld. �?egar málið var skoðað þóttu þjóðhátíðartjöld heppilegust fyrir verkefnið og þá er komið að þætti Eyjamanna. Ef þú átt þjóðhátíðartjald og […]
Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms

Á dögunum þyngdi Hæstiréttur dóm Héraðsdóms yfir 23 ára gömlum karlmanni, fyrir nauðgun, sem átti sér stað í heimahúsi í Vestmannaeyjum. Í dómsorði Hæstaréttar kemur fram að ákærði skuli sæta fangelsi í tvö ár en að fresta skuli fullnustu 21 mánaðar af refsingunni og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins, […]
Friðrik Stefánsson leggur skóna á hilluna

Eyjamaðurinn Friðrik Erlendur Stefánsson hefur ákveðið að hætta í körfubolta en þetta kemur fram á vefnum Karfan.is. Friðrik sleit barnskónum í körfunni með Tý í Vestmannaeyjum, áður en hann gekk í raðir KR. �?aðan lá leiðin norður til Akureyrar áður en hann fór vestur til Ísafjarðar og lék tvö tímabil með KFÍ. Eftir það, 1998 […]
Kristín Erna gerir tveggja ára samning við ÍBV

Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur gert nýjan tveggja ára samning við ÍBV en frá þessu var gengið í gær. Frá þessu er greint á Fótbolti.net. Kristín Erna er framherji sem hefur allan sinn feril spilað með ÍBV en missti af allri síðustu leiktíð vegna meiðsla á hné. Hún verður klár í slaginn að nýju þegar Pepsi-deildin […]
Ísfélag Vestmannaeyja kaupir útgerð Dala-Rafns

Ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur gert samning um kaup á öllum hlutabréfum í útgerðarfélaginu Dala-Rafni ehf. sem gerir út togbátinn Dala-Rafn VE 508. Báturinn var smíðaður í Póllandi árið 2007. Aflaheimildir félagsins á yfirstandandi fiskveiðiári eru tæp 1.600 þorskígildistonn. Í fréttatilkynningu frá Ísfélaginu segir að kaupin séu liður í hagræðingaraðgerðum Ísfélags Vestmannaeyja hf., ekki síst í […]
Skák í Sundlaug Vestmannaeyja

Á morgun sunnudag er hinn árlegi skákdagur. Í tilefni af því verður nýtt fljótandi taflsett vígt í heita pottinum í Sundlaug Vestmannaeyja kl. 13.00. Nokkrir aðilar úr Taflfélagi Vestmannaeyja munu mæta á svæðið og ætlar �?órarinn Ingi fyrrum starfsmaður Íþróttamiðstöðvar að taka fyrstu skákina við einhvern vel valinn skákmann úr röðum félagsins. Heyrst hefur að […]
Selfyssingar veittu harða mótspyrnu

Selfoss veitti ÍBV harða mótspyrnu í dag í leik liðanna í Olísdeild kvenna en leikurinn fór fram í Eyjum. Selfoss hafði undortökin lengst af í leiknum, voru 14:15 yfir í hálfleik og náðu strax þriggja marka forystu 14:17 í upphafi seinni hálfleiks. Ef miðað er við framistöðu Eyjaliðsins í síðasta heimaleik gegn Val, þá var […]
Stelpurnar taka á móti Selfossi

Kvennalið ÍBV tekur á móti Selfossi í dag í Olísdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 13:30 en ÍBV er í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig á meðan Selfoss er ellefta og næst neðsta sæti með 7 stig. Eyjakonur voru reyndar í talsverðum vandræðum með Selfossliðið þegar þau áttust við á Selfossi fyrr í vetur. Selfyssingar voru […]
Frestað á ný hjá strákunum

�?að ætlar að ganga erfiðlega að koma leik ÍBV og Akureyri á en leiknum var frestað fyrir áramót. Fyrirhugað var að liðin myndu mætast á morgun, laugardag en nú er búið að fresta leiknum á ný. Leikurinn hefur verið settur á, á ný sunnudaginn 16. febrúar. Fyrsti leikur ÍBV eftir vetrarfrí verður því gegn HK […]
Laugardagsfundur með Ásmundi og Vilhjálmi

Alþingismennirnir Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason verða gestir á laugardagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum laugardaginn 25.janúar kl. 11.00. Rædd verða atvinnumál í víðu samhengi, samgöngumál, heilbrigðismál og fleira. Hér er gott tækifæri til þess að hitta þingmenn kjördæmisins og ræða málin á hreinskiptinn hátt. Allir velkomnir! Fréttatilkynning (meira…)
Góður kjúklingur
�?rír synir afar guðhræddrar móður fóru að heiman til að spreyta sig á lífinu. Allir áttu þeir miklu láni að fagna og græddu peninga í stórum fúlgum. Að mörgum árum liðnum hittust þeir og ræddu meðal annars um gjafirnar sem þeir höfðu sent aldraðri móður sinni. �??�?g reisti henni mömmu myndarlegt hús,” sagði sá fyrsti. […]
Theodór Íþróttamaður Vestmannaeyja 2013

Theodór Sigurbjörnsson var í kvöld valinn Íþróttamaður Vestmannaeyja 2013. Theodór hefur verið lykilmaður í handboltaliði ÍBV síðustu tvö ár og auk þess leikið með U-21 árs landsliðinu. Theodór hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með ÍBV í Olísdeildinni í vetur og valdi Morgunblaðið hann í úrvalslið fyrri umferðar Íslandsmótsins og taldi hann jafnframt vera […]
Áður óþekkt myndskeið úr gosinu sýnd í Vinaminni í kvöld

Löng hefð er fyrir því að Arnór og Helga minnist gosnæturinnar með einum eða öðrum hætti í fyrirtæki sínu. Í ár ætla þau að flytja tónlist ásamt sonunum Davíð og Orra. Kristín Jóhannsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi, leggur svo til áður óþekktar kvikmyndatökur úr gosinu. �?ær eru þannig til komnar að Kristín var gestafyrirlesari á ráðstefnu […]
Elliði Vignisson gefur kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Á heimasíðu sinni skrifar Elliði Vignisson, bæjarstjóri, opið bréf til Eyjamanna og vina um allt land. �?ar tilkynnir Elliði að hann gefi kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðismanna við bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Í bréfinu segir Elliði m.a.: �??Hinsvegar er það sú trú mín að það séu umbrotatímar framundan. Hart er sótt að grunngerð […]
Sjáðu og hlustaðu á lagið Hjálp

Lagið Hjálp eftir þá Helga Tórshamar og Sævar Helga Geirsson, var frumflutt í morgun í Höllinni. Lagð er tileinkað Dagbjarti Heiðari Arnarssyni, sem varð fyrir barðinu á einelti sem endaði með því að hann tók eigið líf, aðeins 11 ára gamall. Texti lagsins er eftir Sævar Helga en hann fjallar um þá vá sem einelti […]
Frumflytja lag gegn einelti

Í dag, fimmtudag klukkan níu um morguninn verður frumflutt lag eftir þá Helga Tórshamar og Sævar Helga Geirsson en lagið, sem heitir Hjálp, fjallar um einelti og er flutt af hópnum Regnbogar. Birkir Thór Högnason hefur umsjón með útgáfu lagsins og myndbands sem fylgir í kjölfarið en átta ungir og efnilegir söngvarar úr Eyjum flytja […]
Harður árekstur pallbíls og fólksbíls

Í kvöld varð harður árekstur á gatnamótum Faxastígs og Heiðarvegs. Litlum fólksbíl var ekið yfir gatnamót, í veg fyrir pallbílinn, sem var á leið norður Heiðarveg og lenti pallbíllinn í hlið fólksbílsins. Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað á staðinn en beita þurfti klippum til að ná ökumanni fólksbílsins út og félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja aðstoðuðu einnig […]
Gert ráð fyrir að lögreglumönnum fjölgi um þrjá

�??Alþingi samþykkti, að frumkvæði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, að verja 500 milljónum til eflingar löggæslu á landsbyggðinni. Innanríkisráðherra fól undirrituðum þá ábyrgð að fara fyrir nefndinni ásamt fulltrúum allra flokka á Alþingi. Nefndin skilaði til ráðherra tillögum sínum í síðustu viku,�?? segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, í grein sem hann skrifar í Eyjafréttir […]
96% felldu kjarasamninginn

Eins og Eyjafréttir greindu frá í gærkvöldi, var aðalkjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins frá 21. desember felldur í kosningu hjá Drífandi Stéttarfélagi. 96% félagsmanna sem tóku þátt í kosningunni, greiddu atkvæði gegn samningnum en aðeins 4% með honum. Á kjörskrá voru 566 en 249 greiddu atkvæði eða 44% félagsmanna og telst kosningin því gild. […]
Stelpurnar steinlágu gegn Fram

Kvennalið ÍBV lék gegn Fram í Framheimilinu í kvöld í Olísdeild kvenna. Liðin voru fyrir leikinn jöfn að stigum, bæði með 18 stig en ÍBV var fyrir ofan í töflunni vegna hagstæðari úrslita úr innbyrgðis viðureign liðanna fyrr í vetur. En það breyttist í kvöld því ÍBV steinlá, 30:22 en staðan í hálfleik var 14:10. […]