Stelpurnar steinlágu gegn Fram
Kvennalið ÍBV lék gegn Fram í Framheimilinu í kvöld í Olísdeild kvenna. Liðin voru fyrir leikinn jöfn að stigum, bæði með 18 stig en ÍBV var fyrir ofan í töflunni vegna hagstæðari úrslita úr innbyrgðis viðureign liðanna fyrr í vetur. En það breyttist í kvöld því ÍBV steinlá, 30:22 en staðan í hálfleik var 14:10. Fram er því komið með yfirhöndina í baráttunni um þriðja sætið, hefur tveimur stigum meira en ÍBV og með betri stöðu í innbyrðisviðureignum liðanna. ÍBV féll niður í fimmta sæti deildarinnar með tapinu en Grótta skaust einnig upp fyrir ÍBV með sigri í kvöld.
Staðan í deildinni er nú þannig að Stjarnan er efst með 25 stig, Valur er í öðru sæti með 22, Fram í því þriðja með 20, Grótta í fjórða með 19 og ÍBV í fimmta sæti með 18. HK er svo í sjötta sæti með 11 stig.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 11, Ester �?skarsdóttir 5, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 2, Telma Amado 1.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.