Áður óþekkt myndskeið úr gosinu sýnd í Vinaminni í kvöld
Löng hefð er fyrir því að Arnór og Helga minnist gosnæturinnar með einum eða öðrum hætti í fyrirtæki sínu. Í ár ætla þau að flytja tónlist ásamt sonunum Davíð og Orra. Kristín Jóhannsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi, leggur svo til áður óþekktar kvikmyndatökur úr gosinu.
�?ær eru þannig til komnar að Kristín var gestafyrirlesari á ráðstefnu �?ýsk-íslensku vináttusamtakanna í Köln í byrjun desember. Meðal um 180 gesta á rástefnunni var jarðfræðiprófessorinn Dr. Peter Everts. Hann kynnti fyrir Kristínu kvikmyndir sem hann tók í gosinu, auk þess að láta hana hafa fjölda ljósmynda sem hann tók bæði í Heimaeyjargosinu og í Surtseyjargosinu. �??�?g hef fengið leyfi til að sýna þessar myndir. �?ær eru í miklum gæðum, á þeim eru auðvitað mjög áhrifamiklar tökur af gosinu sjálfu, enda voru þarna jarðfræðingar að verki, en einnig eru tökur yfir bæinn frá fyrstu vikum gossins, frá sjónarhorni sem ekki hefur sést áður,�?? sagði Kristín.
Myndefnið er tæpur hálftími að lengd en ekki er hljóð með mynd- inni, svo það verður bætt upp með ljúfum tónum fjölskyldunnar í Vinaminni. Myndin verður látin rúlla nokkrum sinnum á tjaldi um kvöldið. �?á verður einnig lesið upp úr bók Eddu Andrésdóttur, Til Eyja.
Dagskráin hefst kl. 20:30; hægt er að panta borð fyrir matargesti.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.