Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms
Á dögunum þyngdi Hæstiréttur dóm Héraðsdóms yfir 23 ára gömlum karlmanni, fyrir nauðgun, sem átti sér stað í heimahúsi í Vestmannaeyjum. Í dómsorði Hæstaréttar kemur fram að ákærði skuli sæta fangelsi í tvö ár en að fresta skuli fullnustu 21 mánaðar af refsingunni og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð. �?á er ákærði dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 800.000 kr. auk vaxta. Ákærði greiðir jafnframt allan sakarkostnað.
Brotið átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins 22. nóvember 2009 en stúlkan drapst áfengisdauða í partíi heima hjá hinum dæmda og var lögð til í eitt af herbergjum hússins. Hún rankaði svo við sér þar sem hinn dæmdi var að nauðga henni en ákærði hætti þegar hún vaknaði. Maðurinn neitaði fyrir dómi að hafa haft samfarir við brotaþola þetta kvöld.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.