Upplýsingar vegna hreinsunar á ösku

Vestmannaeyjabær hefur opnað upplýsingasíma vegna hreinsunar á ösku. Fólk er hvatt til að hringja í þennan síma ef upplýsinga eða þjónustubeiðni er óskað. Síminn er 488-2535 og er svarað í síma milli kl. 09-12 og 13-16. Björgunarfélag Vestmannaeyja aðstoðar fólk sem ekki hefur tök á að hreinsa frá sínum eignum og er tekið við skráningum […]
Framboðsfundi frestað vegna aðstæðna í Eyjum

Í ljósi aðstæðna sem Vestmannaeyingar eru í vegna öskufalls er fyrirhuguðum framboðsfundi Suðurland FM sem vera átti þriðjudaginn 18. maí í Höllinni, frestað til mánudagsins 24. maí kl. 16 í Höllinni. Fundaröðin hefst þess í stað í Rangárþingi Eystra 19. maí í Hvolnum kl. 20 á Hvolsvelli og heldur sínu striki þar eftir. (meira…)
Hlustaðu á mig…

Menntun er forsenda framfara og við gerum kröfu um skóla án aðgreiningar, skóla sem mætir þörfum nemenda í samræmi við þarfir og þroska hvers og eins, skóla þar sem börnin okkar fá jöfn tækifæri. Foreldrar eiga ekki að þurfa að berjast fyrir rétti barns síns í grunnskóla. Það á að vera sjálfsagt að þeir sem […]
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á hraða og góða hreinsun

Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að leggja áherslu á hraða og góða hreinsun en aska liggur nú yfir öllu í bænum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri fundaði í morgun með lykilstarfsmönnum Vestmannaeyjabæjarins þar sem línur voru lagðar varðandi hreinsunarstörf. Búið er að panta tæki ofan af landi til hreinsunarstarfa, m.a. öflugan svifryksbíl. „Ákvörðun okkar var sú að leggja höfuð […]
Upplifun á Tríkot og Lúðró

Á laugardaginn voru þriðju og jafnframt síðustu tónleikar Tríkot og Lúðró. Tónleikarnir hafa verið haldnir árlega síðan 2008 og bara orðið betri á milli ára. Alls voru 75 tónlistarmenn sem tóku þátt í tónleikunum, sem voru þeir bestu af þeim þremur. Það sem gerði kvöldið ógleymanlegt var auðvitað frábær flutningur þar sem ekki var slegin […]
Gagnsæi �?? hvað þýðir það?

Til að við getum tekið þátt í að móta samfélagið okkar þurfum við að vita hvað er að gerast. Við þurfum að vita hvað bæjarstjórnin er að brasa svo við höfum tækifæri til að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru. Gagnsæ stjórnsýsla snýst um það. Hún snýst um að miðla upplýsingum og opna […]
Aukin áhrif bæjarbúa

Flest okkar telja lýðræðið eitt það mikilvægasta sem við eigum og jafnan tölum við oftast um það sem eðlilegan og sjálfsagðan þátt í daglegu lífi. En ef betur er að gætt er lýðræðið ekkert sjálfgefið og við þurfum ætíð að vera á verði, ef við eigum ekki að glata þessum dýrmætu réttindum okkar. Þess vegna […]
Blásarajass á hvítasunnu

Það verður lúðrablástur sem einkennir Daga lita og tóna um hvítasunnuna að þessu sinni en þetta er í 20. sinn sem þessi jasshátíð er haldin. Allir helstu stórblásarar íslenska jassheimsins mæta og laugardagskvöldið verður nær alfarið í umsjá blásara. Þar stígur fyrst á svið sveit sem heitir því forvitnilega nafni Pönklúðrasveit íslenska lýðveldisins og flytur […]
Aðstoða íbúa í Vestmannaeyjum við hreinsunarstörf

Í ljósi þess mikla öskufalls sem orðið hefur í Vestmannaeyjum hefur Björgunarfélagið ákveðið að aðstoða bæjarbúa í hreinsun. Viljum við biðja fólk sem ekki hefur getu eða heilsu til að þrífa húsþök sín og smúla stéttir að hafa samband við okkur, við munum sinna því eftir okkar bestu getu. Skráning verka í síma 865-9320. (meira…)
Kallað eftir sjálfboðaliðum til að hreinsa útisvæðið

Nú er hreinsunarstarf að hefjast af krafti í Vestmannaeyjum en ekkert öskufall hefur verið í Eyjum í um það bil sólarhring. Öskufjúk gerði Eyjamönnum lífið leitt í gær en það hafði í för með sér að hluti öskunnar fauk á haf út. Margir eru nú úti við með kústa, skóflur og garðslöngur að hreinsa nánasta […]
Eyjamenn flytja liðið sitt á höfuðborgarsvæðið

Eldgosið í Eyjafjallajökkli hefur áhrif á keppnistímabil ÍBV eins og annara íbúa í kringum gosstöðvarnar. Vegna öskufallsins undanfarið í Vestmannaeyjabæ, hefur knattspyrnuráð ÍBV farið þess á leit við atvinnurekendur í bænum að leikmenn liðsins fái að fara til Reykjavíkur og æfa þar alla næstu viku, þar sem ekki er útlit fyrir að hægt verði að […]
Tríkot og Lúðró í kvöld

Eftir tæpa klukkustund opnar Höllin en þar munu í kvöld fara fram stórtónleikar stuðbandsins Tríkot og Lúðrasveitar Vestmannaeyja. Húsið opnar semsagt klukkan 20.00 og er enn hægt að nálgast miða en aðeins örfá sæti eru eftir. Forsala miða fór fram úr björtustu vonum aðstandenda tónleikanna en um 500 miðar seldust í forsölu og ætla Eyjamenn […]
Næst stærsta fimleikamót Íslands haldið í skugga öskufalls

Þessa stundina fer fram næst stærsta fimleikamót sem haldið hefur verið hér á landi. Mótið er haldið í skugga mikils öskufalls frá eldgosinu í Eyjafjallajökli en engu að síður hefur mótið gengið eins og í sögu. Tvö lið komust þó ekki til keppni, frá Egilsstöðum og Akureyri en bæði félögin ætluðu að fljúga til Eyja. […]
Ekki líklegt að nýja útisvæðið opni á næstunni

Eins og gefur að skilja hefur öskufallið í Vestmannaeyjum haft margvísleg áhrif á samfélagið. Í síðustu viku var nýtt og glæsilegt útisvæði við Sundlaug Vestmannaeyja opnað en það var ekki opið nema í sex daga áður en því var lokað aftur vegna öskunnar. Svæðið allt er þakið svartri ösku og ljóst að Eyjamenn eða gestir […]
Tilkynning frá Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja

Þar sem spáð er áframhaldandi norð- og norðaustlægum áttum um helgina eru líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Eyjafjallajökli. Umtalsvert öskufall hefur verið í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn og öskufjúk er nú í bænum. Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja bendir fólki á að unnt er að nálgast rykgrímur á lögreglustöðinni. Þá er unnt að nálgast grímur […]
Dreifa rykgrímum í Herjólfi og á fimleikamót

Öskuský liggur nú yfir Vestmannaeyjum og hefur rykgrímum og hlífðargleraugum verið dreift til bæjarbúa. „Eyjan er bara grá,“ sagði lögreglumaður í Eyjum í samtali við mbl.is. Hann segir að það þjóni engum tilgangi að hefja hreinsunarstörf í Eyjum á meðan askan fellur til jarðar. Víða hafi ekki sést á milli húsa. Margir tóku til hendinni […]
Leikur ÍBV og Vals færður í land

Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið ákveðið að ÍBV og Valur víxli heimaleikjum sínum og mætist á Vodafonevellinum að Hlíðarenda á mánudagskvöldið. Þau mætast því ekki í Eyjum í dag eins og til stóð. Ljóst varð í morgun að Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum væri óleikfær vegna öskufalls. Því verða það Eyjamenn sem koma í land og […]
�?ll þök svört og dökkt um að litast

Nú er afar dökkt um að litast í Vestmannaeyjum enda þykkt öskulagið yfir öllu. Egill Egilsson sendi Eyjafréttum nokkrar myndir sem hann tók yfir bæinn en þar sem áður voru litrík húsaþök, eru nú aðeins dökkgrá þök. Ef vel er gáð, má þó sjá eitt rautt þak innan um dökkgráu húsþökin. Öskufall var í alla […]
Eyjamenn fá sóknarmann frá S-Afríku
Eyjamönnum hefur bæst liðsstyrkur fyrir átökin í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í sumar en þeir hafa samið við suður-afríska sóknarmanninn Danian Justin Warley. Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið og kvaðst vonast til að fá Warley til landsins sem fyrst en hann hefur verið á mála hjá 1. deildarliði Ikapa Sporting […]
Enn fellur aska í Eyjum

Enn fellur aska í Eyjum. Laust eftir miðnætti færðist öskuskýið aftur yfir Heimaey úr austri og hefur askan fallið nokkuð stöðugt í alla nótt. Eyjamenn voru fljótir til þegar öskufallinu lauk um sjö í gærkvöldi og hófu hreinsunarstörf og mátt víða sjá eigendur húsa smúla húsin sín. Hreinsunarstarfið hefur hins vegar farið fyrir lítið þar […]