Byggðasafnið óskar eftir jólamyndum á sýningu fyrir jólin

Það verður nóg um að vera í Safnahúsi í desember. Byggðasafnið óskar eftir jólamyndum frá fólki og aðventusýning verður sett upp í anddyri hússins. Samhliða sýnir Skjalasafnið gömul jólakort og Bókasafnið setur upp jólabækur. Jóhanna Ýr Jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins, ætlar að setja upp stofu með gömlu jólaskrauti í anddyrinu og safnið stendur fyrir því að […]
Leikmenn ÍBV beint í löndun eftir sætan heimasigur

Peyjarnir í handboltaliði ÍBV kalla ekki allt ömmu sína en þeir unnu sætan sigur á Aftureldingu í dag í 1. deild karla. Sigurinn var mikilvægur en Aftureldinga hafði ekki tapað leik það sem af er vetrar á meðan Eyjamenn höfðu misstigið sig. En þrátt fyrir sigurinn sæta, voru leikmenn ÍBV ekkert að fagna sigrinum of […]
Eyjamenn að finna fjölina

Svo virðist sem lið ÍBV í karlahandboltanum sé smátt og smátt að finna fjölina eftir erfiða byrjun í 1. deildinni. Eyjamenn voru óheppnir að tapa gegn Fram í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar um síðustu helgi en bættu upp fyrir það í dag með góðum sigri á Aftureldingu. Lokatölur urðu 29:26 en staðan í hálfleik var […]
Skref í rétta átt fyrir mig sem leikmann og persónu

Finnur Ólafsson, nýr leikmaður ÍBV segist hlakka til næsta sumars en hann stefnir á að vera í toppbaráttu með sínu nýja liði. Finnur segir metnað Eyjamanna og umgjörð hafi gert það að verkum að hann valdi að ganga í raðir ÍBV og að hann telji þetta vera skref í rétta átt fyrir sig sem leikmann […]
Finnur �?lafsson í raðir ÍBV

Finnur Ólafsson, 25 ára gamall miðjumaður úr HK skrifaði í dag undir samning hjá ÍBV og mun hann leika með félagin næsta sumar. Finnur hefur leikinn allan sinn feril með HK en langaði að breyta til og valdi ÍBV. Gerður var þriggja ára samningur við Finn. (meira…)
Stefnir í verkfall sjómanna

Eyjafréttir heyrðu hljóðið í Bergi Páli Kristinssyni, formanns Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum og situr á ársþingi Farmanna- og fiskimannasambandsins þessa stundina. Ársþingið afþakkaði boð landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í dag og Bergur Páll segir hljóðið afar þungt í gestum þingsins. „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar um afnám sjómannaafsláttinn gera ekkert annað en að setja kjarasamninga sjómanna í […]
Afþökkuðu boð landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra

Þessa stundina stendur yfir ársþing Farmanna- og fiskimannasambands Íslands á Grand Hótel í Reykjavík. Hið opinbera er í niðurskurðaraðgerðum og sjávarútvegurinn hefur ekki farið varhluta af því og nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er afnám sjómannaafsláttar. Þetta kunna sjómenn eðlilega afar illa við og hafa látið það í ljós á ársþinginu. (meira…)
Eða sambærilegt horf og skattfrjálsar dagpeningagreiðslur til ríkisstarfsmanna

„Annað hvort á að hækka sjómannaafsláttinn umtalsvert eða breyta honum þannig að hann fari í sambærilegt horf og skattfrjálsar dagpeningagreiðslur til ríkisstarfsmanna og annarra launþega,“ sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. (meira…)
Brosti í gegnum tárin og ákvað að styrkja starfið

Íslendingar hafa eðlilega komið illa út úr bankahruninu og greiðslubyrði lána og vöruverð hefur hækkað Gengistryggð lán hafa hækkað upp úr öllu valdi en staða krónunnar kemur sér einnig afar illa fyrir hjálparstarf sem Íslendingar standa fyrir erlendis. Bjarni Jónasson, útvarpsmaður og lífskúnstner, heyrði í Sirrý á Rás 2 þar sem fjallað var um ABC […]
Sjómannaaflsátturinn afnuminn í þrepum
Steingrímur J. Sigfússon lagði í gærkvöldi á Alþingi fram tvo svokallaða bandorma um tekjuöflun ríkisins. Í þeim er meðal annars gert ráð fyrir hinum áður boðaða þriggja þrepa tekjuskatti auk þess sem sjómannaafslátturinn svokallaði verður afnuminn í skrefum á fjórum árum frái og með 2011. (meira…)
Fílabeinsturn fáránleikans

Hvort það eigi að klára Tónlistarhúsið, láta það bíða, jafna það við jörðu eða nota það t.d. sem safn (gæti líka verið fangelsi). Vil minna á að þetta hús átti að kosta 6 milljarða árið 2002, en er skv. nýjustu útreikningum komið vel yfir 26,5 milljarða (25 milljarða í vor) ! Og enn vilja menn […]
Lengi dreymt um England

„Ég var farinn að halda að það væri allt búið hjá mér í fótboltanum, en þá opnast skyndilega þessi möguleiki. Mig hefur lengi dreymt um að spila í Englandi og það er vissulega möguleiki á að sá draumur verði að veruleika,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaður frá Vestmannaeyjum, við Morgunblaðið í gær. (meira…)
Eyjamenn leggja meira til þjóðarbúsins, ríkisvaldið verðlaunar þá með auknum niðurskurði

Ánægjulegt er að sjá í Eyjafjölmiðlunum, fréttir þess efnis að Vestmannaeyjar eru að auka hlut sinn í verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið. Það sannast nú betur en nokkru sinni áður hversu miklu það skiptir fyrir þjóðarbúið að atvinnulífið sé öflugt í sjávarútvegsplássum eins og Vestmannaeyjum. (meira…)
Engin kreppa í Vestmannaeyjum

Meðan að kreppan á Íslandi kemur einna harðast niður á börnum sem Íslendingar hafa verið að hjálpa úti í heimi þá segir Vestmannaeyingurinn Bjarni Jónasson enga kreppu í Vestmannaeyjum og gefur 250.000 kr. í neyðarsjóð ABC barnahjálpar til að liðsinna skjólstæðingum ABC barnahjálpar. Með þessu framtaki vill hann hvetja aðra Vestmannaeyinga til að rétta hjálparhönd […]
Vilja að tryggt verði að uppbygging og starfsemi skipalyftunnar verði ekki niðurgreidd

Samtök iðnaðarins og MÁLMUR – samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði hafa sent erindi til Samkeppniseftirlitsins þar sem óskað er að tryggt verði að uppbygging og rekstur skipalyftunnar í Vestmannaeyjum verði ekki niðurgreiddur úr hafnarsjóði eða bæjarsjóði eins og stefnt er að. (meira…)
Nóg að gera hjá Sjálfstæðismönnum um helgina

Nóg er um að vera hjá Sjálfstæðisfélögunum í Eyjum laugardaginn 28 nóvember næstkomandi. Klukkan 11:00 er hefðbundinn laugardagsfundur í Ásgarði og er gestur fundarins Arnar Sigurmundsson og fundarefnið er málefni lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðsmál eru hitamál hjá þjóðinni og er hver og einn orðinn sérfræðingur í þessum málum. Það verður því eflaust spennandi fundur á laugardaginn þegar […]
Staðan óvíða betri

Vilborg Þorsteinsdóttir, móttökufulltrúi hjá Vinnumálastofnun á Suðurlandi, sagði að um fimmtíu manns væru á atvinnuleysisskrá í Eyjum og tveir þriðju af þeim væru í einhverri vinnu. „Það eru 754 án atvinnu á Suðurlandi sem þýðir þriggja prósenta atvinnuleysi og þar af eru 50 hér eða um tvö prósent. Þetta þýðir fækkun hér í Eyjum en […]
Jólastjörnur Hallarinnar þann 10. des. í Höllinni

Páll Óskar, Monika, Diddú, Litlu lærisveinarnir, Húsband Hallarinnar, Sæþór Vídó, Þórir, Viktor, Biggi Nielsen, Dívurnar, Jórunn, Arndís og Helga Möller. Miðasala hefst kl 14:00 á morgun á Volcano Café 2900 í forsölu. (meira…)
Gunnar Heiðar skoraði tvö fyrir Reading í æfingaleik

Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði bæði mörk Reading þegar varalið félagsins sigraði Bristol Rovers 2-1 í æfingaleik í dag. Gunnar Heiðar, sem er samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg, hefur verið á reynslu hjá Reading síðan á mánudag í síðustu viku og mun það væntanlega ráðast í kjölfar leiksins í dag hvort hann gangi til liðs við […]
Tvöfalda á laun í fiskvinnslu

Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram frumvarp um vigtun á fiski sem fluttur er út í gámum. Þar eru ákvæði um að aflinn verði vigtaður hér heima í staðinn fyrir erlendis. Útvegsmenn telja að breytingin verði til að hamla útflutningi á fiski í gámum enda fái þeir oft á tíðum hærra verð þar en hér […]