Baðlón við Skansinn aftur á dagskrá
Tölvumynd af fyrirhuguðu baðlóni.

Kristján G. Rikharðsson  fyrir hönd Lavaspring Vestmannaeyjar ehf.  lagði fram drög að skipulagsgögnum fyrir baðlón við Skansinn. Umhverfismatsskýrsla er unnin af ráðgjafafyrirtækinu Alta. Einnig hefur verið unnin tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 í samræmi við tillögu þróunaraðila. Gögnin voru sett fram til kynningar fyrir umhverfis- og skipulagsráð.

Ráðið þakkaði kynninguna og fól skipulagsfulltrúa að kynna gögn fyrir bæjarstjórn áður en farið verður í næstu skref skipulagsferlisins.

Hugmyndin er ekki ný. Í desember 2020 er í Morgunblaðinu sagt frá hugmyndum um um að reisa nýtt baðlón sem staðsett verður á of­an­verðum Skans­in­um í Vest­manna­eyj­um. Gert var ráð fyr­ir heitu baðlóni ásamt heit­um pott­um, gufu­böðum og inn­byggðum hraun­helli. Jafn­framt verður aðstaða fyr­ir veit­inga­sölu og aðra þjón­ustu fyr­ir gesti lóns­ins.

Baðlónið verður um 1.400 fer­metr­ar að stærð  og bygg­ing­in sjálf um 1000 fer­metr­ar. Þá eru uppi framtíðar­hug­mynd­ir um að reisa 50 her­bergja hót­el í tveim­ur bygg­ing­um, sem staðsett­ar verða í hlíðum fjalls­ins.

Morgunblaðið vísar í heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, vestmannaeyjar.is þar sem segir að á fundi bæj­ar­ráðs hafi verið til um­fjöll­un­ar drög að vilja­yf­ir­lýs­ingu Vest­manna­eyja­bæj­ar og Lava Spring Vest­manna­eyj­ar ehf. um gerð baðlóns­ins.

Bæj­ar­ráð fagnaði áform­um um upp­bygg­ingu Lava Spring Vest­manna­eyj­ar ehf. um gerð baðlóns í Eyj­um. Kristján og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri skrifuðu undir viljayfirlýsingu í framhaldi af því.

Kristján sem oft er kenndur við fyrirtæki sitt, Skugga lét til sín taka í Eyjum þegar hann byggði einbýlishús við Búhamar og gerði upp Bása og Símstöðina fyrir nokkrum árum.

Útsýni frá veitingastaðnum yrði ekki af verri endanum.

Nýjustu fréttir

Að breyta samfélagi
Valentínusardagurinn er í dag
Mikilvægur heimaleikur hjá ÍBV
Vetrarbúningur í Vestmannaeyjum
Geri aðrir betur
Í snjó og blíðu
Búningaskiptimarkaður á bókasafninu
Morgan Goði skrifar undir nýjan samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.