Bærinn með ljósleiðara Eyglóar í lokuðu söluferli
ljosleidaralogn_2021
Ljósleiðari lagður. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Í lok júlí kom fram í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja að Míla hafi óskað eftir viðræðum við Vestmannaeyjabæ um kaup á ljósleiðarakerfi Eyglóar. Þar sagði jafnframt að stjórn Eyglóar hafi fundað með Mílu og rætt kaupin auk þess sem stjórn Eyglóar hefur farið yfir hugmyndir um sölu með bæjarráði á vinnufundi.

Í niðurstöðu bæjarráðs fól ráðið stjórn félagsins að halda áfram með viðræðurnar um söluna og taka tillit til þeirra ábendinga og atriða sem komu fram á fundi ráðsins. Náist samkomulag um sölu verði samningur þar um lagður fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.

Samkvæmt fréttum sem sagðar voru á sínum tíma reyndi bæjarstjórn hér áður að fá Mílu (og Tölvun) til þess að leggja ljósleiðara í Vestmannaeyjum, eitthvað sem á endanum var gert af bæjaryfirvöldum undir félagi sem fékk nafnið “Eygló”. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta/Eyjar.net hafa aðrir rekstraraðilar gagnaveitna ekki tekið þátt í söluferlinu, þrátt fyrir óskir þar um.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.