Baldur á leið til Eyja
Baldur OPF 20250911 151359
Baldur við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Breiðafjarðarferjan Baldur fer til Vestmannaeyja og mun sigla milli lands og Eyja meðan ástandið í Landeyjahöfn varir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Samkomulag hefur náðst um þetta og reiknað með að Baldur hefji siglingar á föstudaginn en nokkurn tíma tekur fyrir skipið að sigla til Vestmannaeyja. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður.

Baldur mun leggja af stað á fimmtudagsmorgun. Verið er að setja saman siglingaáætlun fyrir viðbótarsiglingarnar en gert er ráð fyrir að fyrsta ferð geti orðið á föstudagmorgun.

Nánari upplýsingar um siglingaáætlun verður gefin út af Herjólfi ohf. um leið og hún liggur fyrir.

Ekki er útlit fyrir vegna veðurs og sjólags að hægt verði að hefja dýpkun fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar eru ágætar næstu daga á eftir.

Nýjustu fréttir

Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.