Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Baldur á leið til Eyja. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Breiðafjarðarferjan Baldur flutti 28.440 farþega og 7.300 bíla milli lands og Vestmannaeyja á 45 dögum í sumar. Farþegafjöldinn jafngildir tæplega 95% af öllum farþegum sem Baldur flutti um Breiðafjörð árið 2025 og um 77% af ársfjöldanum árið 2024.

Baldur hóf siglingar milli lands og Eyja 8. júní og sinnti þeim til 22. júlí. Ferjan sigldi lengst af samhliða Herjólfi, sem var með skerta afkastagetu vegna bilunar í öðrum rafmótor skipsins.

Síðustu daga tímabilsins sá Baldur einn um átta ferða áætlun meðan Herjólfur var í Þorlákshöfn, þar sem viðgerður rafmótor var settur aftur í skipið.

Herjólfur hóf á ný siglingar samkvæmt átta ferða áætlun í morgun og Baldur heldur nú aftur á Breiðafjörð.

Nærri 30 þúsund farþegar á árinu

Baldur hafði einnig leyst Herjólf af dagana 1.–3. maí. Þá flutti ferjan 1.129 farþega og 233 bíla milli lands og Eyja.

Samtals hefur Baldur því flutt 29.569 farþega og 7.533 bíla á Eyjaleiðinni árið 2026.

Til samanburðar flutti ferjan 19.491 farþega og 5.806 bíla þegar hún leysti Herjólf af frá 8. til 28. september 2025, meðan Herjólfur var í reglubundinni slipptöku.

37 þúsund um Breiðafjörð árið 2024

Samkvæmt tölum Vegagerðarinnar flutti Baldur 37.000 farþega um Breiðafjörð árið 2024. Farþegarnir voru 30.037 árið 2025.

Árið 2025 var þó óvenjulegt í rekstri ferjunnar. Baldur fór í slipp 17. mars og hóf ekki áætlunarsiglingar að nýju fyrr en 15. maí. Þá var ferjan frá hefðbundinni leið sinni um Breiðafjörð í þrjár vikur í september vegna afleysingar fyrir Herjólf.

Farþegafjöldi Baldurs á Eyjaleiðinni frá 8. júní til 22. júlí í ár jafngildir um 77% af ársflutningum ferjunnar um Breiðafjörð árið 2024 og tæplega 95% af ársflutningunum árið 2025.

Rúmur helmingur af ársflutningum Hríseyjarferjunnar

Til frekari samanburðar flutti Hríseyjarferjan 53.557 farþega allt árið 2025. Þeir 28.440 farþegar sem Baldur flutti milli lands og Eyja á 45 dögum jafngilda því rúmlega 53% af ársflutningum Hríseyjarferjunnar.

Tölurnar sýna glögglega umfang farþega- og bílaflutninga milli lands og Vestmannaeyja og hve miklu munaði um Baldur á meðan flutningsgeta Herjólfs var skert.

Mikil nýting Baldurs síðustu vikurnar sýnir jafnframt hversu hratt aukin flutningsgeta fyllist á Eyjaleiðinni. Tölurnar benda til þess að aukið framboð mæti bæði uppsafnaðri og vaxandi eftirspurn og að núverandi samgöngur séu tæplega að anna flutningsþörfinni yfir háannatímann.

Nýjustu fréttir

Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.