Belgarnir með hentugra dýpkunarskip í smíðum
Bæjarráð fjallaði um á fundi sínum í gær forsendur sem lágu til grundvallar þess að Vestmannaeyjabær leigði dýpkunaskipið Galilei af belgíska fyrirtækinu JDN til að hefja dýpkun í Landeyjahöfn og freista þess að opna hana fyrr en annars hefði orðið.
Í umræðunni kom fram að slík ákvörðun hafi verið tekin í kjölfar fundar bæjarráðs með verkefnisstjóra JDN sem kynnti leið sem ekki rúmast innan verksamnings við Vegagerðina sem annars ber ábyrgð á dýpkun Landeyjahafnar. Jafnframt kom fram það mat JDN að allt bendi til þess að þær aðferðir sem notaðar voru hafi skilað góðum árangri og orðið til þess að höfnin opnaðist fyrr en annars hefði orðið.
Í umræðum á fundinum gerði bæjarstjóri ennfremur grein fyrir áframhaldandi samtali hans við JDN. Í því samtali hefur meðal annars komið fram að fyrirtækið hefur nú í smíðum skip sem þeir telja til þess bært að auðvelda allt sem snýr að því að halda fullu dýpi fyrir nýja Vestmannaeyjaferju strax á næsta ári.
Bæjarráð þakkar JDN fyrir samsstarfið og fól bæjarstjóra að færa kostnað vegna þess til bókar. og að óska eftir fundi með yfirstjórnendum JDN í þeim tilgangi að ræða dýpkun og afla frekari upplýsinga um það með hvaða hætti verði hægt að tryggja dýpi þannig að höfnin haldist opin allt árið.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.