Ber vitni um mikla nýsköpun og öflugt markaðsstarf
bjarkey_barca_stjr
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra á sýningunni Seafood Expo Global í Barcelona. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra heimsótti nýverið Seafood Expo Global í Barcelona. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og setti nýtt aðsóknarmet í ár, rúmlega 35.000 gestir mættu ásamt sýnendum frá 87 löndum, þar af voru um 1.000 þátttakendur frá íslenskum fyrirtækjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu.

Á sýningunni hitti ráðherra hitti m.a. fulltrúa íslenskra fyrirtækja sem tóku þátt í sýningunni sem í heildina voru um 30 talsins. Fyrirtækin voru ýmist með sína eigin bása eða með fulltrúa á þjóðarbás Íslandsstofu.

Höfuðstöðvar og fiskvinnsla Iceland Seafood Spain í Barcelona voru einnig heimsótt af ráðherra ásamt starfsfólki Íslandsstofu og ræðismanni Íslands í Barcelona. Hinn sögufrægi matarmarkaður, Mercat del Ninot í Eixamble hverfinu í Barcelona, var jafnframt skoðaður. Á markaðnum má finna þrjár verslanir sem selja eingöngu íslenskan saltfisk og mátti þar sjá hvernig íslensk vara birtist spænskum neytendum. Tíu veitingastaðir sem selja íslenskan saltfisk í Barcelona og nágrenni tóku einnig þátt í kynningarsamstarfi með Íslandsstofu í kringum sýninguna og var einn þeirra heimsóttur af ráðherra, ræðismanni Íslands og fylgdarliði.

„Sýning á borð við þessa leiðir vel í ljós hversu gróskumikill og fjölbreyttur íslenskur sjávarútvegur er, sagði matvælaráðherra. Íslensk fyrirtæki og þeirra afurðir skipa stóran sess á sýningunni, það ber vitni um þá miklu nýsköpun og það öfluga markaðsstarf sem á sér stað innan greinarinnar.“

https://eyjar.net/radherra-heilsadi-upp-a-vsv-folk-i-barcelona/

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.