Boðar til ráðstefnu um skipulagsmál fyrir Lakasvæðið

Ráðgjafarnefndin, sem skipuð er fulltrúum Skaftafellsþjóðgarðs, Skaftárhrepps og Kirkjubæjarstofu hefur starfað að undirbúningi skipulagstillögu frá því sl. haust. Til verksins var ráðin Ulla R. Pedersen, landslagsarkitekt.

Ráðstefnan hefst með ávarpi Umhverfisráðherra Jónínu Bjartmarz. Á ráðstefnunni verða kynnt drög að tillögu um breytingar á aðalskipulagi og tillögur að deiliskipulagi vegna þjónustustöðvar. Meðal annars efnis verður kynnt vinna við könnun þolmarka skipulagssvæðisins, aðgengi og vegtengingum, sjónarmið og væntingar ferðaþjónustuaðila í Skaftárhreppi, náttúrufar og náttúruminjar, þjóðgarður og heimabyggð og væntingar og framtíðarsýn.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Dagskrá ráðstefnunnar má finna á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.