Búsetuúrræði eldri íbúa og Framkvæmdasjóður aldraðra
28. júlí, 2021
Guðbrandur Einarsson

Það er alvarleg staða uppi þegar ekki er hægt að útskrifa eldra fólk af sjúkrahúsum vegna þess að það á ekki í önnur hús að venda. Til að leysa þennan vanda þarf að huga að búsetuúrræðum eldri íbúa, leysa fjárhagsvanda hjúkrunarheimila og greina þann grunnvanda sem biðlistar í kerfinu eru.

Þennan málaflokk þarf að taka föstum tökum. Eldra fólki fer hratt fjölgandi og nauðsynlegt að nálgast málaflokkinn frá mörgum hliðum, enda er ekki hér um einsleitan hóp að ræða.

Margir eru frískir og fjörugir og bjarga sér sjálfir. Aðrir eru sæmilega frískir og þurfa frekar á félagslegri aðhlynningu að halda en heilbrigðisþjónustu. Síðan eru þeir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda af ýmsum toga.

Þess vegna er nauðsynlegt að til staðar séu ýmis konar úrræði sem uppfylla þarfir mismundandi hópa.

Þjónusta á hendi ríkis og sveitarfélaga

Þjónustu við eldri íbúa hefur bæði verið sinnt af sveitarfélögum og ríki. Félagsleg heimaþjónusta, sem sveitarfélögin sinna, er fyrir þá sem búa í heimahúsum en þurfa aðstoð við að sjá um heimilishald og persónulega umhirðu.
Tilgangur heimahjúkrunar, sem er á forræði ríkis, er að gera fólki kleift að búa heima þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Oft skarast þessir þjónustuþættir og óvissa ríkir um hver á að gera hvað. Slík óvissa bitnar auðvitað mest á þeim sem þurfa á þjónustunni að halda og því nauðsynlegt að ríki og sveitarfélög skýri og skilgreini betur hvoru megin lækjar ábyrgðin liggur.

Ótækt að festa eldra fólk á sjúkrahúsum

Það liggur fyrir, miðað við þá biðlista sem eru til staðar, að nauðsynlegt er að fjölga hjúkrunarheimilum. Það er auðvitað ótækt að ekki skuli vera hægt að útskrifa eldra fólk af sjúkrahúsi vegna skorts á úrræðum.

Þetta eykur allan kostnað við heilbrigðisþjónustu þar sem verið er að nýta dýrasta úrræðið þegar aðrir kostir þyrftu að vera til staðar.

Framkvæmdasjóður aldraðra var stofnaður árið 1999. Hann starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra og er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins. Sjóðurinn er fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem lagt er á þá sem skattskyldir eru á aldrinum 16-70 ára.

Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagdvala, að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagdvalar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Lagabreyting var gerð á sjóðnum árið 2004 og heimild veitt til þess að nýta sjóðinn til viðhalds hjúkrunarheimila.

Fjármunir nýttir í rekstur en ekki fjárfestingar

Árið 2011 var hins vegar sett inn bráðabirgðaákvæði sem heimilaði að sjóðurinn yrði nýttur til reksturs og samkvæmt uppgjöri 2015 var staðan þannig að einungis 40% af fjármunum sjóðsins er nýttur í það sem hann var upphaflega stofnaður til, það er til fjárfestingar í úrræðum í öldrunarþjónustu.

Þá hefur það verið haft eftir Sigurði Jónssyni, sem er fulltrúi Landssambands eldri borgara í stjórn Framkvæmdasjóðs, að þriðjungur tekna sjóðsins hafi á árunum 2011-2017 verið notaður í rekstur.

Þá vekur það einnig athygli að sumir landshlutar hafa fengið talsvert minna af fjármunum úr Framkvæmdasjóði einhverra hluta vegna en slík mismunun ætti ekki að eiga sér stað. 

Ríkissjóður fær lánað hjá Framkvæmdasjóði aldraðra

Ríkissjóður skuldaði Framkvæmdasjóði aldraðra tæpa 2,9 milljarða króna í árslok 2019 samkvæmt ársreikningnum, sem var þá rúmlega gjaldið sem lagt var á fólk það ár.  Það er um það bil kostnaðurinn við fullbúið 60 rýma hjúkrunarheimili.

Mér finnst vel  hægt að líkja þessu við formann húsfélags sem fengi lánað úr hússjóðnum til eigin nota. Eitthvað myndi nú verða sagt við því.

Ný búsetuúrræði

Öldrunarþjónusta er talsvert fjárfrekur málaflokkur og því er nauðsynlegt að fjölga þeim úrræðum sem málaflokknum tilheyra, bæði til þess að auka fjölbreytni en einnig til þess að fara betur með fjármuni. Einn af þeim kostum sem rétt væri að skoða er búsetuúrræði einhvers staðar á milli þess að búa heima eða vera á hjúkrunarheimili.

Það gæti verið kostur að byggja dvalarheimili þar sem hver og einn hefði sína íbúð og boðið væri upp á sameiginleg rými eins og matsal og sali þar sem hægt væri að bjóða upp á félagslega virkni, líkamsrækt, tómstundir og samveru.

Það eru ekki allir sem treysta sér til að búa einir eftir að hafa til dæmis misst maka sinn og margir eiga það á hættu að einangrast félagslega.

Ef fjármunir Framkvæmdasjóðs aldraðra væru nýttir til þess sem þeir voru upphaflega ætlaðir til, væri hægt að fjölga úrræðum í þessum málaflokki verulega.

Guðbrandur Einarsson
skipar 1. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst