Byrjað að dýpka um leið og veður leyfir - óhagstæð spá næstu daga

Enn hefur ekki tekist að opna Landeyjahöfn og eru heimamenn orðnir langþreyttir á ástandinu. Sigurður Áss Grétarsson hjá Vegagerðinni segir að verktakinn sé klár með dýpkunarskip og áhafnir og verði farið af stað um leið og færi gefst. Jóhann Garðar Jóhannson hjá Björgun tekur í sama streng og segir að um leið og veður leyfir verði byrjað að dýpka höfnina.

Veðurhorfur næstu daga samkvæmt vedur.is.
Á föstudag:

Vaxandi austan- og norðaustanátt, 13-20 m/s með snjókomu eða slyddu um kvöldið, hvassast við A-ströndina. Mun hægari og úrkomulítið V-til. Hiti kringum frostmark.



Á laugardag:

Norðan og norðvestan hvassviðri eða stormur og snjókoma um landið norðanvert, en mun hægari austantil fram undir kvöld og úrkomulítið sunnan jökla. Kólnandi veður.



Á sunnudag:

Vestlæg átt, víða 8-15 og él, en hvassari, suðlægari V-til og rigning eða slydda SV- og V-lands um kvöldið. Frost 1 til 6 stig, en hlánar V-til um kvöldið.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.