Dást að gæðum veitingastaðanna
Kokkarnir á Slippnum, Einsa kalda og Gott ásamt gestakokkunum á MATEY í ár. Aðsend mynd.

MATEY – sjávarréttahátíð hefst með opnunarhátíð í dag. Veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í  sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum taka höndum saman, í þriðja skiptið og vekja athygli á menningararfleiðinni og því fjölbreytta fiskmeti sem framleitt er í Eyjum. Boðið verður uppá margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni héðan úr Eyjum.

Hátíðin verður sett í Sagnheimum í dag, miðvikudag og stendur hún yfir fram á laugardag. Á vef Vinnslustöðvarinnar er rætt við Frosta Gíslason um hátíðina. Einnig er rætt við Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóra VSV um þessa yngstu hátíð Eyjamanna.

2024 09 03 519 (2)
Með hráefni úr fjörunni. Ljósmynd/aðsend

Von á hópum erlendis frá

Frosti Gíslason ber hitann og þungann af skipulagningunni. Hann segir í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar að það sé gaman að því hversu gott samstarf sé milli fiskframleiðenda hér í Vestmannaeyjum, veitingastaða og ferðaþjónustuaðila og annara samstarfsaðila.

Spurður um undirbúninginn segir Frosti að hann gangi mjög vel. „Við eigum von á hópum erlendis frá, blaðamenn frá stórum fjölmiðlum í Bretlandi eru væntanlegir og einnig frá stórum fjölmiðli á Spáni og að sjálfsögðu einnig frá Norðurey.”

Er hátíðin frábrugðin fyrri hátíðum á einhvern hátt?

Já,  nú erum við eingöngu með konur sem eru gestakokkar og við erum ákaflega stolt af.

Þetta árið verða eingöngu konur í forystuhlutverki  á MATEY, en allir gestakokkarnir eru öflugir kvenleiðtogar í matreiðslu og koma víða að.

Adriana Solis Cavita kemur frá Mexíkó og verður á veitingastaðnum GOTT. Rosie May Maguire – kemur frá Bretlandi og verður á veitingastaðnum Slippnum og Renata Zalles sem er frá Bólivíu og verður á veitingastaðnum Einsa kalda.

Svo má líka nefna það við hlustum á gestina okkar á hverju ári og von er á ýmiskonar betrum bótum til þess að upplifun gesta verði sem allra best.

Gestakokkarnir þrír suður á eyju. Ljósmynd/aðsend

Gott samstarf við ýmsa aðila og fyrirtæki

Nú er töluvert samstarf milli veitingastaða og sjávarútvegsfyrirtækja í Eyjum í tengslum við hátíðina. Í hverju felst það?

Samstarfið felst í því að fiskvinnslurnar í Eyjum leggja til fiskinn á hátíðina og veitingastaðirnir sjá um útfærslurnar í samstarfi við gestakokkana.  Ferðaþjónustuaðilar og hjálpa til við markaðssetningu á þessum einstaka fiski sem framleiddur er hér og hjálpa til við að koma okkur enn betur á framfæri sem sjávarsamfélag.

Við erum svo í samstarfi við Íslandsstofu og ferðaþjónustuaðila og  fleiri aðila til þess að koma fjölmiðlum hingað og hjálpa þeim að upplifa það sem besta sem Eyjan hefur uppá að bjóða í mat, drykk, gistingu, afþreyingu og skemmtun.

Gestir frá Bretlandi, Spáni, Portúgal og Ítalíu

Aðspurður um hvort von sé á gestum erlendis frá á hátíðina í ár svarar Frosti: „Já, í fyrra fengum við fólk m.a. sem kom sérstaklega frá Ítalíu til þess eins að sækja MATEY Seafood Festival, þetta árið eigum við von á fólki m.a. frá Bretlandi, Spáni, Portúgal og Ítalíu og eflaust fleiri stöðum sem ég veit ekki enn um.”

Sjáið þið sóknarfæri í framtíðinni?

Gríðarleg sóknarfæri eru framundan sem byggjast á því að við öll í þessu magnaða sjávarsamfélagi stöndum saman að byggja upp sjálfbært, öflugt og fjölbreytt mannlíf þar sem fyrirtæki í mismunandi greinum og íbúar standa saman að gera geggjaða hluti.

Frosti Gíslason

Þátttaka heimafólks lykilatriði

Er Frosti er inntur eftir svörum um hvernig salan gangi á hátíðina segir hann að hún gangi nokkuð vel. „Ég vil gjarnan hvetja heimafólk til þess að bóka borð og taka þátt í hátíðinni.  Kannski sérstaklega þau sem eru á leið á árgangsmót að fara saman út að borða á MATEY á fimmtudagskvöldið.  Því til þess að svona gangi upp er þátttaka heimafólks lykilatriði í að geta haldið hátíðina aftur og aftur og markaðssetja Vestmannaeyjar sem magnað sjávarsamfélag og einn helsta mataráfangasað Íslands.”

Eyjar skáka London

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir að Vinnslustöðin hvetji Eyjamenn og gesti þeirra til að fara út að borða af þessu frábæra tilefni.

„Það er einfaldlega þannig að eigendur veitingahúsanna þurfa á gestum að halda til að rekstur þeirra gangi.  Það er okkur gríðarlega verðmætt að hafa öll þessi frábæru veitingahús –  sem eru hvert öðru betra – starfandi. Leggjum því okkar af mörkum til stuðnings við þá og fyllum veitingastaðina um helgina.” segir Binni og bætir við að það sé ekki sjálfgefið að hafa slíka flóru af frábærum veitingastöðum í ekki stærra samfélagi.

„Það er gaman að segja frá því að allir viðskiptavinir Vinnslustöðvarinnar sem koma í heimsókn dást að gæðum veitingastaðanna og úrvali sem þeir bjóða upp á.  Sumir hafa meira að segja sagt að það sé betra að fara út að borða í Eyjum en London!  Þeir fái einfaldlega betri mat hér.  Þetta eru gríðarleg verðmæti í samfélaginu sem við verðum að styðja við.”

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

 

Vestmannaeyingum og gestum er boðið á opnunarhátíð MATEY Seafood Festival sem haldin verður i Sagnheimum í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum í dag, miðvikudaginn 4.september kl:17:00.

Hér má bóka borð á MATEY.

Opnunarhátíð MATEY í Sagnheimum í dag – Eyjafréttir (eyjafrettir.is)

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.