Dean Martin til ÍBV
Breski knattspyrnumaðurinn Dean Edward Martin verður aðstoðarþjálfari Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar, þjálfara knattspyrnuliðs ÍBV. Dean skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV en þessi reyndi knattspyrnumaður kom til Íslands árið 1995 og gekk í raðir KA. Hann hefur spilað um 300 leiki með bæði KA og ÍA en síðast var hann aðstoðarþjálfari hjá ÍA og lék jafnframt fjóra leiki með liðinu.
Atli Fannar Jónsson, ungur og efnilegur framherji skrifaði einnig undir tveggja ára samning hjá ÍBV. Atli Fannar kemur frá Breiðabliki en hann á að baki landsleiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands. Atli Fannar er 18 ára gamall.
�??Við erum afskaplega ánægðir með að fá Dean Martin til liðs við okkur Eyjamenn. Hann hefur mikla reynslu og þekkir íslenska knattspyrnu vel eftir að hafa leikið hér á landi í hartnær 20 ár með landsbyggðarliðunum KA og ÍA. Við væntum mikils af samstarfi þeirra Sigurðar Ragnars og Dean Martins. Við erum jafnframt í óða önn að vinna að leikmannamálunum og til marks um það skrifaði ungur og efnilegur framherji undir samning við ÍBV,�?? segir �?skar �?rn �?lafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV í tilkynningu frá félaginu.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.